Fréttablaðið - 26.08.2010, Qupperneq 46
30 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> ekki missa af …
Sýningunni Nekt sem staðið
hefur yfir í Listasafni Reykjavík-
ur – Hafnarhúsinu frá því um
miðjan maí lýkur á föstudag-
inn. Sýningin samanstendur
af þrjátíu ögrandi myndum af
nöktum líkömum í raunstærð
eftir hinn heimskunna
ljósmyndara Gary Shneider.
Hafnarhúsið er opið daglega
frá 10 til 17 og alla fimmtu-
daga frá 10 til 22.
Kl. 22.00
Evróputúr íslensku hljómsveitarinn-
ar Kimono hefst á tónleikastaðnum
Faktorý, áður Grand Rokk, laugar-
daginn 28.ágúst klukkan 22.00.
Hljómsveitin Formaður Dagsbrúnar
mun styðja við bakið á Kimono en
það er Þormóður Dagsson sem er í
forsvari fyrir þá ágætu sveit.
Vesturport hefur ráðist í að gefa út DVD-mynd-
disk með uppfærslu sinni af Woyzeck en í henni
heyrist óútgefin tónlist eftir Nick Cave og Warren
Ellis. Diskurinn fæst í bókabúð Máls og menn-
ingar en Woyzeck var frumsýnt í Borgarleikhús-
inu árið 2005 og hefur gert góða hluti á erlendri
grundu undanfarin ár, að því er kemur fram í
fréttatilkynningu frá hópnum.
Þá kemur einnig fram að mikið sé lagt í að
hafa hljóð- og myndgæði sem allra best en
upptakan fór fram i Árósum í Danmörku árið
2009. Vesturport hefur í nægu að snúast um
þessar mundir því nú styttist í að Faust verði
sett upp í Young Vic-leikhúsinu í London en sýn-
ingin er sett upp í tilefni af fjörutíu ára afmæli
leikhússins. Þá ætlar hópurinn að reyna sig við
gamanleik eftir áramót í Borgarleikhúsinu, þrjár
sýningar verða á Hamskiptunum í Þjóðleikhús-
inu um helgina og svo er það BAM-leikhúsið í
New York þar sem sjálft Broadway gæti verið
innan seilingar.
Woyzeck gefið út á DVD
Á DVD Hinn margrómaða sýning Vesturports á
Woyzeck hefur verið gefin út á DVD.
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands hefur náð að marka
sér sína sérstöðu í menn-
ingarlífi landsmanna og á
sunnudaginn hefst nýr kafli
í sögu sveitarinnar.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
stendur á merkum tímamótum.
Því eftir átján ára samfelld ferða-
lög og flakk er hljómsveitin loks
komin með fastan samastað í
Menningar-húsi Akureyringa,
Hofi. Að því tilefni verður blás-
ið til hátíðartónleika 29. ágúst en
einleikari á þeim verður Víking-
ur Heiðar Ólafsson, einn fremsti
píanóleikari þjóðarinnar. Víking-
ur Heiðar hyggst flytja píanó-
konsert eftir Edward Grieg en
Víkingur hefur hlotið fjölda við-
urkenninga fyrir píanóleik sinn,
meðal annars Íslensku tónlistar-
verðlaunin tvisvar, annars vegar
sem flytjandi ársins og hins vegar
sem bjartasta vonin.
Að því er kemur fram í fréttatil-
kynningu frá hljómsveitinni verð-
ur nýtt verk eftir Hafliða Hall-
grímsson einnig frumflutt en það
var samið sérstaklega fyrir þetta
tilefni. Verkið hefur Hafliði nefnt
Hymnos op. 45 en tónskáldið býr í
Skotlandi og helgar sig tónsmíðum
þar. Þá verður einnig flutt sinfón-
ía númer 9 eftir Antonín Dvorák
en stjórnandi sveitarinnar á tón-
leikunum verður Guðmundur Óli
Gunnarssonar.
Fyrstu tónleikarnir í Hofi
MIKIÐ UM DÝRÐIR Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er komin með fastan samastað í
Menningarhúsi Akureyringa, Hofi.
Útgáfutónleikar Miri í Reykjavík
fara fram í Þjóðmenningarhús-
inu við Hverfisgötu á föstudag.
Þetta verða aðrir útgáfutónleik-
ar hljómsveitarinnar í tilefni af
útgáfu hennar á plötunni Okkar
sem Kimi Records gaf út í júní.
Þeir fyrri fóru fram á Seyðis-
firði þar sem fólk á öllum aldri
fyllti húsakynni Herðubreiðar.
Ásamt Miri stíga á stokk Bergur
Ebbi Benediktsson, Snorri Helga-
son og Loji Höskuldsson. Þetta
verða síðustu tónleikar Miri í bili
en trommuleikarinn Ívar Pétur
Kjartansson heldur til Danmerk-
ur í upphafi september.
Miri fagnar
nýrri plötu
MIRI Hljómsveitin Miri heldur útgáfutón-
leika á föstudagskvöld.
LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhá-
tíð í Reykjavík fer fram dagana
1.-5. september. Hátíðin er hald-
in í þriðja sinn og í ár er lögð sér-
stök áhersla á nýjar og spennandi
leiksýningar frá Norðurlöndunum.
Einnig verður boðið upp á lista-
mannaspjall eftir sýningar og efnt
til málþings um nýjustu strauma
og stefnur í norrænu leikhúslífi.
Gestir hátíðarinnar verða Rim-
ini Protokoll frá Berlín, sem er
einn kunnasti leikhópur Evrópu,
Teater får 302 frá Danmörku, leik-
hópurinn De Utvalgte frá Noregi,
Teatr Weimar frá Malmö, Nya
Rampen frá Finnlandi og reyk-
vísku leikhóparnir Kviss Búmm
Bang og 16 elskendur. Kviss
Búmm Bang setur á svið fund
fulltrúa helstu iðnríkja heims og
kallast viðburðurinn The Great
Group of Eight. 16 elskendur sýna
Nígeríusvindlið þar sem hópurinn
setur sig í samband við fjármála-
snillinga frá Nígeríu.
Nánari upplýsingar um hátíðina
má finna á síðunni Lokal.is.
Lókal-hátíðin í þriðja sinn
NYA RAMPEN Finnski leikhópurinn
Nya Rampen sýnir Undantekninguna á
Lókal.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Vitavörðurinn - kilja
Camilla Läckberg
Íslensk-dönsk/dönsk-íslensk
vasaorðabók - Halldóra Jónsd.
Borða, biðja, elska - kilja
Elizabeth Gilbert
Dönsk orðabók
Orðabókaútgáfan
Barnið í ferðatöskunni - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Frills
Ensk orðabók
Orðabókaútgáfan
Matsveppir í náttúru Íslands
Ása Margrét Ásgrímsdóttir
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
18.08.10 - 24.08.10
Sjálfstætt fólk - kilja
Halldór Laxness
Íslandsklukkan - kilja
Halldór Laxness
Meistarar og lærisveinar
kilja - Þórbergur Þórðarson