Fréttablaðið - 26.08.2010, Side 48
32 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Haldið var upp á hundrað ára afmæli íslensku hljómplötunnar með sýn-
ingu og dagskrá í Norræna húsinu á mánudaginn. Almenn ánægja var
með dagskrána yfir daginn og þótti hún bæði fróðleg og skemmtileg.
Fyrir marga átti boðuð endurkoma nokkurra af meðlimum hljómsveit-
arinnar Þeyr um kvöldið svo að verða hápunkturinn, en mikil stemmn-
ing hafði myndast fyrir henni. Gestir fóru að tínast inn í Norræna húsið
klukkutíma fyrir auglýstan tíma, enda salurinn lítill og ekki ráðlegt að
hætta á að verða af þessum stórviðburði.
Þegar á hólminn var komið fólst „end-
urkoman“ hinsvegar í sýningu á kvik-
mynd um sögu sveitarinnar og flutn-
ingi á þremur lögunum hennar í nýjum
útsetningum. Eini meðlimur Þeys sem
tók þátt í dagskránni var Guðlaugur
Kristinn Óttarsson sem kynnti flytj-
endur en tók ekki þátt í sjálfum tónlist-
arflutningnum. „Þetta eru ekki Þeyr,
þetta er hann!“ eins og einn tónleika-
gesturinn heyrðist segja.
Þeyr er að mínu mati flottasta hljóm-
sveit Íslandssögunnar. Hún gerði frábærar plötur og var stórkostleg
tónleikasveit. Þess vegna er kannski bara gott að hún kom ekki saman í
einhverri bæklaðri mynd í Norræna húsinu á mánudagskvöldið. Ef Þeys-
endurkoma á að standa undir nafni þurfa allir meðlimirnir að vera með
og þá þarf að gera þetta almennilega. Hálfkák er verra en ekkert.
Eins og fram kom í kvikmyndinni Þeyr the Movie (sem enn er á vinnslu-
stigi) þá kom hin endanlega útgáfa Þeys fram á sjónarsviðið 1981 og
verður því 30 ára á næsta ári. Það mætti vel halda upp á þau tímamót
með kombakki, en það mætti líka fagna þeim með endurútgáfu á plötum
bandsins og bæta við fágætu efni og tónleikaupptökum. Þetta er allt of
gott efni til að láta það rykfalla í einhverjum skúmaskotum.
Þó að tónlistaratriðin hafi verið ágæt þá stóð Þeys-dagskráin í Nor-
ræna húsinu ekki undir væntingum. Hún vakti hins vegar athygli á þess-
ari frábæru sveit sem er besta mál.
Hann og Þeyr
ÞEYR Ein flottasta hljómsveit Íslands-
sögunnar.
> Í SPILARANUM
Sufjan Stevens - All Delighted People EP
Best Coast - Crazy For You
Tired Pony - The Place We Ran From
Arcade Fire - The Suburbs
ARCADE FIRESUFJAN STEVENS
Enska rokksveitin The Liberti-
nes hélt sína fyrstu tónleika í sex
ár í HMV-höllinni í London fyrir
framan um þrjú hundruð vini og
ættingja. Sveitin hætti árið 2004,
aðallega vegna vaxandi eiturlyfja-
notkunar söngvarans Pete Doherty,
og töldu margir að hún ætti ekki
afturkvæmt.
Doherty og hinn forsprakki
sveitarinnar, Carl Barat, virð-
ast hafa grafið stríðsöxina langt
niður í jörðina því þeir náðu vel
saman á tónleikunum. Spiluð voru
22 lög, bæði af fyrstu plötunni
Up the Bracket frá árinu 2002 og
af þeirri næstu, The Libertines.
Sveitin var að sjálfsögðu klöppuð
upp og spilaði þá tvö lög af fyrstu
smáskífu sinni, What a Waster og
I Get Along.
Liðsmenn The Libertines litu
á tónleikana sem nokkurs konar
æfingu, enda umvafðir fólki sem
þeir þekktu. Í kvöld verða aðrir
tónleikar á sama stað fyrir aðdá-
endur sem unnu miða á Netinu.
Alvaran hefst síðan á morgun þegar
Doherty og félagar spila á Leeds-
tónlistarhátíðinni. Annað kvöld
er síðan röðin komin að Reading-
hátíðinni heimsfrægu. Þar stígur
sveitin næstsíðust á svið á undan
hinni kanadísku Arcade Fire.
Fyrstu tónleikarnir í sex ár
THE LIBERTINES Hljómsveitin The
Libertines hélt sína fyrstu tónleika í sex
ár í London.
Tired Pony er nýjasta
ofurgrúppan sem lítur
dagsins ljós. Liðsmenn
R.E.M., Snow Patrol og
Belle & Sebastian eru þar í
aðalhlutverkum.
Ofurgrúppur virðast vera í mik-
illi tísku um þessar mundir. Rokk-
arinn Jack White reið á vaðið með
The Dead Weather sem er skipuð
meðlimum The White Stripes, The
Kills og Queens of the Stone Age
og í kjölfarið steig fram í dags-
ljósið Them Crooked Vultures,
kröftug rokksveit með þríeykinu
Dave Grohl, Josh Homme og John
Paul Jones, fyrrum bassaleikara
Led Zeppelin.
Núna er röðin komin að popp-
kántríbandinu Tired Pony. Með-
limir hennar eru Gary Lightbody,
forsprakki hinnar norður-írsku
Snow Patrol, Peter Buck, gítar-
leikari R.E.M., Richard Colburn,
trommari Belle & Sebastian, og
þeir Ian Archer, Jacknife Lee,
Scott McCaughey og Troy Stew-
art sem eru allir reyndir úr tón-
listarbransanum.
Lightbody er maðurinn á bak
við Tired Pony. Hann byrjaði að
semja lög fyrir ímyndaða kántrí-
hljómsveit þegar Snow Patrol var
á tónleikaferð til að fylgja eftir
sinni síðustu hljóðversplötu, A
Hundred Million Suns. Það var
síðan í maí í fyrra sem Tired
Pony komst fyrst í fréttirnar
eftir að Lightbody játaði ást sína
á sveitatónlist. Hann útskýrði að
hann hefði gengið með kántrí-
plötu í maganum í langan tíma og
að hún yrði hans næsta verkefni.
Hljómsveitin varð síðan að
veruleika 4. janúar síðastliðinn
þegar hópi tónlistarmanna var
hóað saman í hljóðver í Portland í
Bandaríkjunum undir handleiðslu
upptökustjórans Garrett „Jack-
nife“ Lee sem stjórnaði einmitt
upptökum á A Hundred Million
Suns. Hann hefur unnið náið með
R.E.M. í gegnum árin og í gegn-
um hann gengu þeir Pete Buck og
Scott McCaughey, sem hefur spil-
að með R.E.M. á tónleikum síðan
1994, til liðs við Tired Pony.
Hópurinn náði sérlega vel
saman og fyrsta plata Tired Pony,
hin prýðilega The Place We Ran
From, kom út í Bretlandi í síðasta
mánuði. Fyrstu tónleikar sveitar-
innar voru síðan í London 14. júlí.
Góðir gestir stigu þar á svið, eða
Lisa Hannigan, sem hefur sungið
með Damien Rice, og Tom Smith,
söngvari Editors, sem kemur ein-
mitt við sögu á plötunni.
freyr@frettabladid.is
Ofurgrúppan Tired Pony
TIRED PONY Gary Lightbody og Peter Buck á fyrstu tónleikum Tired Pony í London í síðasta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarhátíðin Melodica Acoustic
Festival verður haldin í fimmta skipti
í Reykjavík núna um helgina. Í þetta
skipti verða um fimmtíu atriði á dag-
skrá, þar af þrír erlendir tónlistar-
menn.
Meðal nýjunga í ár eru órafmagn-
aðir tónleikar hljómsveita sem hingað
til hafa verið þekktari fyrir rafmagn-
aðri uppákomur. Má þar telja Morðingj-
ana, Ultra Mega Technobandið Stefán,
Sykur og Bloodgroup. Önnur nýjung er
lagasmíðavinnustofa Melodica-hátíð-
arinnar. Fjórir listamenn, þau Jona
Byron, Halla Norðfjörð, Daníel Jón
Jónsson og Jóhann Kristinsson, dvelja
nú á Hótel Djúpavík þar sem þau semja
saman lög í tvo daga. Þau kynna afurð-
irnar á föstudagskvöld á Café Rosen-
berg.
Melodica fer þannig fram í ár að á
föstudag og laugardag hefst dagskráin
kl. 16 á Hemma og Valda og stendur þar
til kl. 22.30.
Dagskráin á Rósenberg hefst kl. 21
og stendur yfir til kl. eitt eftir mið-
nætti. Á sunnudag verður síðan slakað
á í Slippsalnum við Mýrargötu 2 frá kl.
18 til 23. Ókeypis er á hátíðina en frjáls
framlög eru vel þegin.
Tilgangur Melodica-hátíðarinnar
er að hjálpa listamönnum úr grasrót-
inni að kynnast betur og vinna saman.
Enn fremur að kynna unga og upprenn-
andi tónlistarmenn og skapa þeim vett-
vang til að koma fram. Hátíðin er nú
haldin víða um heim, meðal annars í
Melbourne, Sydney, Hamborg, Berlín,
Árósum, Brighton og brátt í New York
og Amsterdam.
Melodica-hátíð í fimmta sinn
MORÐINGJARNIR Pönkararnir verða órafmagn-
aðir á Melodica Acoustic Festival.