Fréttablaðið - 26.08.2010, Side 58

Fréttablaðið - 26.08.2010, Side 58
 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR42 golfogveidi@frettabladid.is G O LF & H EI LS A Hollráð Hinna Varabolti Ein misskildasta reglan í golfinu er hvernig á að leika varabolta. Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu hjá GR, útskýrir regluna svona: 1. Leikmaður má taka varabolta ef bolti hans gæti verið týndur utan vatns- torfæru eða hann gæti verið út af. Hann verður að tilkynna það skýrt að hann ætli að taka varabolta. Geri hann það ekki og leiki öðrum bolta verður sá bolti, bolti í leik, með víti, höggi og fjarlægð, og upphaflegi boltinn er týndur. 2. Leikmenn ættu alltaf að taka varabolta við þessar aðstæður til þess að flýta leik. Athuga samt að það þarf að vera nánast öruggt að boltinn sé ekki í vatnstorfæru. 3. Eftir að leikmaður hefur hafið leit að upphaflega boltanum má hann leita í 5 mínútur og alls ekki lengur. Leikmenn ættu því að temja sér þann góða sið að taka tímann og hafa hann á hreinu frá því að leit hefst. Klukkan er eina gilda verkfærið til þess að mæla 5 mínútur, tilfinning um lengd þess tíma sem búið er að leita gildir ekki. Leiki leikmaður boltanum eftir að 5 mínútur eru liðnar fær hann 2 högg í víti. Leið- rétti hann það ekki áður en hann hefur leik af næsta teig fær hann frávísun. Leikmaður VERÐUR því að vita hvað tímanum líður. 4. Finni leikmaður upphaflega boltann áður en 5 mínútur eru liðnar verður hann að leika honum. Sé boltinn ósláanlegur verður leikmaður að nota hann og taka víti; til baka gegn víti og fjarlægð, láta boltann falla innan tveggja kylfulengda til hliðar gegn víti eða sem þriðja möguleika láta boltann falla handan við þann stað þar sem boltinn lá í beina línu milli hol- unnar og þess staðar og eins langt aftur og hann vill innan vallar. 5. Varaboltann má ekki nota finnist upphaf- legi boltinn. Rannsóknir sýna að kylfingur getur aukið sveifluhraðann með því að bæta styrktarþjálfun og liðleika- þjálfun við æfingakerfi sitt. „Til að geta slegið boltann lengra verður þú að hafa stöðugleika og styrk í neðri hluta líkamans, jafnt sem efri hluta líkamans og í hönd- um. Styrkur er aðeins grunnurinn; styrkur gefur þér möguleika á að framkvæma snúninginn og dregur klárlega úr líkum á meiðslum, en án liðleika og jafnvægis munt þú ekki geta aukið sveifluhraðann. Ef þú bætir styrk og eykur vöðva- massa án liðleikaþjálfunar þá getur þú misst það sem kallað er rétt tímasetning og sveifluhraðinn verður hægari. Flestir hafa nægan styrk til að sveifla golfkylfu en oftar er liðleikaþjálfuninni ábótavant. Að lokum, prófaðu að standa á öðrum fæti, hafðu hendur niður með síðum og horfðu beint fram. Þetta átt þú að geta gert vand- ræðalaust í 30 sekúndur. Ef ekki, gerðu þá þessa æfingu á hverjum degi. Þannig öðlast þú það jafn- vægi sem er svo mikilvægur hluti af golfsveiflunni.“ Höfundur starfaði með PGA-golfkenn- aranum Justin Stout í Bandaríkjunum árið 2007 við að hreyfi- og styrktar- greina nemendur hans. Aukinn sveifluhraði Magni M. Bernhardsson, kírópraktor með sérhæfingu í golfmeiðslum og öðrum íþrótta- meiðslum. ■ að golfboltinn er 46 grömm. ■ að golfboltinn er 0,0005 sekúndur á kylfuhausnum þegar hann er sleginn. ■ að hraði kylfuhauss þegar kylfan hittir boltann er 200 km/klst. ■ að boltinn flýgur á 250 km/klst. af kylfuhausnum. ■ að kylfuhaus í kyrrstöðu er um 200 grömm. ■ að rétt áður en kylfan hittir boltann er kylfuhausinn um 40 kíló. ■ að hendur sveiflast á um 42 km/klst. í 200 metra upphafshöggi. ■ að hendur sveiflast á um 41 km/klst. í 120 metra höggi með 9 járni. ■ að kylfingur notar um fjögur hestöfl í löngu upphafshöggi. Heimild/GKj.is Vissir þú? Golfklúbburinn Kjölur var stofn- aður 7. desember 1980. Skráðir stofnfélagar voru 95 en við stofn- un klúbbsins lá ekkert fyrir um hvort, hvenær eða hvar yrði leikið golf á hans vegum. Var því fljót- lega hafist handa við að reyna að útvega land fyrir golfvöll en í fyrstu var leikið golf á landi sem fékkst að láni í Leirvogstungu. Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Kjalar, segir að strax á fyrsta stjórnarfundi klúbbsins var ákveðið að sækj- ast eftir því landi sem golf- völlurinn er nú á. Í maí 1983 var undirritað- ur samningur milli Mosfells- hrepps og golf- klúbbsins um leigu á landinu til tuttugu ára. Hannes Þor- steinsson var fenginn til þess að hanna völl- inn og strax um sumarið var haf- ist handa. Sú framkvæmd var að mestu leyti unnin í sjálfboðalið- svinnu og lauk ekki fyrr en 1986. Sú vinna var ekki létt þar sem aðeins hluti þess var ræktaður. Fóru því ófáir klukkutímarnir í sáningu og grjóttínslu. Hlíðavöll- ur var formlega tekinn í notkun í júlí 1986 en völlurinn hefur tekið algjörum stakkaskiptum frá þeim tíma. Árið 2004 var hafist handa við að stækka Hlíðavöll í 18 holur. Árið 2008 voru fimm nýjar holur teknar í notkun á miðju sumri og þótti takast vel til. Framkvæmd- ir stöðvuðust síðan tímabundið þegar kreppan knúði dyra. „Þrátt fyrir kreppuástand er nú komin á koppinn ný áætlun um opnun vallarins í samvinnu við Landsbankann,“ segir Hauk- ur. „Mosfellsbær stendur líka við bakið á okkur.“ Stefnt er að því að opna nýja völlinn haustið 2011. „Það verður kannski ekki hægt að opna á full- kláruðum velli. Til dæmis bíðum við eftir mold í 14. brautina en við erum háð því að fá afgangsmold úr framkvæmdum. Það er ekki mikið um slíkt þessa dagana,“ segir Haukur. Í sumar kemur til greina að spila afmælismót og boðsmót á 16. holu velli og þá bætast við ell- efta og átjánda holan á nýja vellin- um. Haukur vill þó engu lofa eða nefna dagsetningar. Skráðir félagar í klúbbnum eru um 650 í dag. Með nýjum velli er stefnan að fjölga félögum í eitt þúsund. „Við teljum það raunhæft. Sérstaklega þegar litið er til golf- sprengjunnar sem hefur orðið á síðustu árum. Fólk veit af upp- byggingunni hér og hringir mikið til að spyrjast fyrir. Það hræðist að sitja eftir á biðlista.“ svavar@frettabladid.is Stefnt á að opna nýjan Hlíðavöll haustið 2011 Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Það er viðeigandi að nú hillir undir að nýr glæsilegur 18 holu völlur verði opnaður og má segja að klúbburinn hafi þá loks slitið barnsskónum. 10. HOLA Þessi glæsilega hola verður sú tíunda á fullkláruðum velli. Enginn getur velkst í vafa um að nýr völlur verði eftirsóttur. MYND/EWIN ROALD NÝR HLÍÐAVÖLLUR Hönnuðurinn, Edwin Roald, og Onno ehf., unnu þessa mynd af stækkun vallarins. Holurnar sem eru óklárað- ar eru allar á Blikastaðanesi og númeraðar frá 12 til 15. Nýju brautirnar eru í forgrunni, sem og nýtt æfingasvæði, áhaldahús auk aðstöðu fyrir hestamenn sem var hluti hönnunarinnar. Nýlega var lokið við að tyrfa síðustu fjórar flatirnar. MYND/EDWIN ROALD - ONNO EHF. HAUKUR HAFSTEINSSON Tiger Woods leikur í fyrsta ráshóp á The Barclays-mótinu sem hefst á PGA-mótaröð- inni í dag. Aðrir í ráshópnum eru Cameron Beckman og Troy Matteson og hefja leik um klukkan sjö að staðartíma, eins og segir á kylfingi.is. Woods hefur ekki áður leikið í fyrsta rás- hóp sem jafnan er fyrir lakari kylfinga á mótaröðinni. Ástæðan fyrir því að hann er settur í ráshópinn er staða hans á FedEx-bikar-list- anum þar sem Woods er í 112. sæti. Tiger Woods: Í fyrsta sinn í fyrsta ráshóp GOLFKLÚBBURINN KJÖLUR 10 hola: Par 4 – 283/251 metrar 11 hola: Par 4 – 344/280 metrar 12 hola: Par 5 – 494/432 metrar 13 hola: Par 4 – 437/376 metrar 14 hola: Par 4 – 317/269 metrar 15 hola: Par 3 – 171/127 metrar 16 hola: Par 4 – 279/236 metrar 17 hola: Par4 – 322/289 metrar 18 hola: Par 3 – 146/118 metrar högg var allt og sumt sem Guðlaugur Guðlaugsson, úr Golfklúbbi Flúða, þurfti til að klára 16. brautina á Selsvelli á Flúðum. Hann not- aði 4 járn á þessari braut sem er 172 metrar af gulum teigum. 361 dagar eru þar til Ryder-bikarkeppnin hefst á The Celtic Manor-vellinum í Newport í Wales. Hlíðavöllur 18 holur Opnun: Haustið 2011 Hönnuður: Edwin Roald

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.