Fréttablaðið - 26.08.2010, Síða 62
46 26. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
„Það er mjög gott fyrir íslenska
markaðinn að fá Elite Models
Management til Íslands,“ segir
Ingibjörg Finnbogadóttir sem
ásamt Tinnu Aðalbjörnsdóttur
mun sjá um rekstur fyrirtækisins
hér á landi. Elite er eitt stærsta fyr-
irsætufyrirtæki í heimi og hefur á
sínum snærum margar af fremstu
fyrirsætum heims.
Ingibjörg segir að hugmyndin að
opnun Elite hér á landi hafi komið í
kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli.
Fyrst hafi komið upp hugmynd
um að halda aðal fyrirsætukeppni
Elite, Elite Model Look, hér en síðan
var horfið frá því og byrjað að spá
í opnun fyrirtækisins hér á landi.
„Bernard Hennet, sem er stjórn-
arformaður Elite Worldwide, lýsti
þessu þannig fyrir okkur að Ísland
hafi komið sér ærlega á kortið með
því að stöðva allt flug í heiminum,“
segir Ingibjörg en fyrstu drög-
in voru lögð fram á fundum milli
athafnamannsins Jóns Ólafsson-
ar og áðurnefnds Hennets. „Svo
var haft samband við okkur og við
beðnar um að taka að okkur dagleg-
an rekstur á fyrirtækinu hér á landi
og nú er komið að þessu.“
Elite-fyrirtækið sérhæfir sig í að
finna ný andlit og áðurnefnd keppni
er hluti af þeirri leit en hún fer að
þessu sinni fram í Kína í október á
þessu ári. „Við ætlum að vera með
íslenska forkeppni 26. september
þar sem sigurvegarinn mun fara
út í aðalkeppnina í Kína,“ segir
Tinna en í verðlaun er samming-
ur upp á 150.000 dollara eða átján
milljónir. „Það besta er að stúlkur
sem skrá sig hjá okkur verða hluti
af alþjóðlega bókunarnetinu hjá
Elite. Þannig að þær verða á skrá
með mörgum af heitustu fyrirsæt-
unum í dag og geta verið bókaðar
út um allan heim,“ segir Tinna en
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GOTT Á GRILLIÐ
LÁRÉTT
2. nægilega, 6. utan, 8. samstæða, 9.
endir, 11. tveir eins, 12. gafl, 14. fáni,
16. sjó, 17. hlaup, 18. geislahjúpur,
20. guð, 21. ferðast.
LÓÐRÉTT
1. líkamshluti, 3. hróp, 4. alger, 5.
sarg, 7. nýta, 10. frostskemmd, 13.
námsgrein, 15. drykkjarílát, 16. aum,
19. strit.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nógu, 6. án, 8. par, 9. lok,
11. gg, 12. stafn, 14. flagg, 16. sæ, 17.
gel, 18. ára, 20. ra, 21. rata.
LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. óp, 4. gagnger,
5. urg, 7. notfæra, 10. kal, 13. fag, 15.
glas, 16. sár, 19. at.
Átta erlendir sjálfboðaliðar frá
SEEDS-samtökunum, sem eru með
bækistöðvar í Reykjavík, fundu
flöskuskeyti í Viðey á dögunum
er þeir unnu við hreinsun strand-
lengjunnar. Skeytið var frá krökk-
um í leikskólanum Brekkuborg og
var sent 25. júní síðastliðinn þegar
þeir voru í fjöruferð við Geldinga-
nes.
Í skeytinu segir: „Hæ hæ, við
erum nokkrir hressir krakk-
ar á leikskólanum Brekkuborg í
Reykjavík. Við erum öll í skólahóp
og erum 5-6 ára. Fimmtudaginn
25. júní skruppum við í fjöruferð.
Ferðin var haldin að Geldinga-
nesi. Þaðan sendum við skeytið.
Við eyddum morgninum í að leika
okkur og veiða með háfi. Veðrið var
frábært, sólskin og í kringum 17°.
Þegar þú finnur þetta væri gaman
að heyra frá þér.Bestu kveðjur,
Tinna Mjöll 5 ára, Kjartan Snær 5
ára, Aldís Dröfn 6 ára, Aþena Rós
5 ára, Olivía 6 ára, Brynjar Ingi 5
ára, Silja 5 ára, Gabríel Máni 5 ára,
Aleyna Júlía 5 ára, Gabríel 6 ára,
Aþena Ásta 6 ára, Birgir Sveinn 5
ára, Ragnar 5 ára og Bríet 6 ára.“
SEEDS-sjálfboðaliðarnir koma
frá Englandi, Þýskalandi, Tékk-
landi og Serbíu. Þeir munu halda
áfram að hreinsa strandlengjuna
og sinna umhverfismálum ásamt
því að undirbúa uppskeruhátíð Við-
eyjar, Töðugjöld, sem verður hald-
in á sunnudaginn. -fb
Fundu flöskuskeyti í Viðey
MEÐ FLÖSKUSKEYTIÐ Átta erlendir sjálfboðaliðar frá SEEDS-samtökunum með
flöskuskeytið sem þeir fundu í Viðey.
Kjúklinga-
bringur sem
pabbi grillar
og eru búnar
að liggja í
eins konar
maríneringu,
er það sem
mér finnst
best á grillið.
Með kart-
öflusalati,
venjulegu
salati og vatn að drekka með.
Einfalt og gott.
Ingi Hrafn Hilmarsson, leikari sem reif
liðþófa í miðri sýningu á leikritinu In the
beginning.
„Ég hafði bara séð eina mynd af leggingsbux-
um Beyoncé og af þeirri mynd að dæma virtust
þetta vera eins leggingsbuxur og okkar. Við
sögðumst ætla að skoða málið betur áður en
frekari ákvarðanir yrðu teknar og það höfum
við gert núna og í ljós kom að það er nokkur
munur á hennar leggings og okkar. Það lítur út
fyrir að hún hafi sótt innblástur í okkar hönnun
og við erum bara stolt af því,“ segir Heba Hall-
grímsdóttir, annar eigandi hönnunarmerkisins
E-label. Frétt um mögulegan stuld söngkonunn-
ar Beyoncé á hönnun E-label hefur farið eins og
eldur um sinu um netheima og hafa netmiðlar á
borð við Daily Mail, Toronto News og Mode.net
fjallað um málið og vitnað í orð Hebu.
„Mér finnst sumir þessara miðla hafa tekið
þetta úr samhengi og ekki greint nógu vel frá
málinu. Þarna eru til dæmis kvót sem ekki eru
kláruð,“ segir Heba og bætir við að sér finnist
sumar fréttirnar hafa verið skrifaðar í eins
konar æsifréttastíl.
E-label hefur verið fáanlegt í verslun Tops-
hop í London frá því í fyrrahaust og verður nú
einnig fáanlegt í tveimur verslunarkeðjum í
Þýskalandi og bætist sú þriðja við í lok þess-
arar viku. „Það er nú engin reynsla komin á
Þýskalandsmarkaðinn ennþá, en þetta lítur vel
út og menn eru bjartsýnir á að þetta eigi eftir
að ganga vel. Vonandi stenst það,“ segir Heba,
en verslunarkeðjurnar sem selja hönnun E-
label nefnast Kult, Elb og Olymp & Hads. „Þar
munum við selja nýjustu vörurnar í bland við
þær vinsælustu og leggingsbuxurnar víðfrægu
verða þar á meðal.“ - sm
Beyoncé málið búið
MÁLIÐ DAUTT Heba Hallgrímsdóttir segist hissa yfir
þeirri athygli sem erlendir fjölmiðlar sýndu málinu.
Átakið Á allra vörum
hefur varla farið fram
hjá nokkrum manni
en hápunkturinn
verður söfn-
unarþáttur
sem verður
í beinni
útsendingu
Skjás eins
á föstu-
dags-
kvöldið. Fjöldi landsþekktra
skemmtikrafta kemur fram en
meðal þeirra eru systkinin Páll
Óskar og Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir og Guðbjörg
Magnúsdóttir auk Helga Björns-
sonar og Reiðmanna vindanna.
Yngri kynslóðin fær auðvitað einnig
sitthvað fyrir sinn snúð en tvær vin-
sælustu hjómsveitir landsins
ætla að troða upp.
Þetta eru auðvitað
Hjaltalín og Dikta
en Hjaltalín fékk
fyrir nokkru frábæra
dóma í norskum
fjölmiðlum og
Dikta keypti
nýlega útgáfu-
réttinn á annarri
hljóðversplötu
sinni. Þá hyggst
stúlknasveitin
Elektra einnig
koma fram og
Thin Jim and the
Castaways.
Baltasar Kormákur og tökulið
kvikmyndarinnar Djúpið stóðu
í ströngu í gærkvöldi en þá var
skipskaði myndaður á
Suðurnesjum.
Bátur, sem var
sérstaklega
keyptur fyrir
kvikmyndina, var
settur á hliðina og
Ólafur Darri, sem fer
með aðalhlutverkið
í myndinni, fékk að
kynnast hinu ískalda
Atlantshafi. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Elite Models management var stofnað árið 1972
og er ein af stærstu fyrirsætuskrifstofum í heimin-
um í dag. Skrifstofan er með 800 fyrirsætur á
skrá hjá sér og um 35 skrifstofur víðs vegar um
heiminn að meðtaldri íslensku skrifstofunni.
Höfuðstöðvarnar eru í París en eigandi Elite
World er Bertrand Hennet. Fyrirsætur sem
starfað hafa fyrir skrifstofuna eru heims-
þekktar stjörnur á borð við Heidi Klum,
Naomi Campell, Claudiu Schiffer, Gisele
Bundchen, Tyru Banks, Cindy Crawford og
Elle Macpherson.
MEÐ FRÆGAR Á SKRÁ
INGIBJÖRG FINNBOGADÓTTIR: VERÐUM GÓÐAR MÓDELMÖMMUR
ELITE MODEL MANAG-
MENT OPNAÐ Á ÍSLANDI
hún mun hafa yfirumsjón með fyr-
irsætunum.
Elite er búið að fá skrifstofuhús-
næði á 3. hæð á Klapparstíg 25-27
og verður opið hús á laugardaginn
milli 11 og 17. „Við hvetjum allar
þær stúlkur sem telja sig eiga erindi
í keppnina og í fyrirsætubransann
til að koma og kíkja á okkur á laug-
ardaginn,“ segir Tinna og bætir við
að þær taki einnig við ábendingum.
„Við erum báðar með mikla reynslu
á þessu sviði og ætlum okkur að
verða góðar módelmömmur,“ segir
Ingibjörg.
alfrun@frettabladid.is
SUÐRÆN SVEIFLA
Suðræn sveifla er skemmtileg
líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri.
Námskeiðið byggist upp á mjúkri
upphitun, latín dönsum, kvið-
æfingum og góðri slökun.
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30 og
miðvikudögum kl. 18:00 og laugardögum kl. 11:00
Kennarar eru Bitgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari
og Ólöf Björk Björnsdóttir.
Skráning er hafi n á námskeið sem hefst 2. september.
Kennt verður í Mecca Spa, Nýbílavegi og íþróttasal
Hvassaleitisskóla við Stóragerði,
og hægt er að skrá sig í síma 899 8669
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Þjófarnir voru fimm.
2. Laxinn veiddist í Laxá í Aðaldal.
3. Um 60 þúsund manns.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
ELITE MEÐ ÚTIBÚ Á ÍSLANDI Tinna Aðalbjörnsdóttir og Ingibjörg Finnbogadóttir sjá
um rekstur Elite-fyrirsætuskrifstofunnar á Íslandi sem verður til húsa við Klapparstíg.