Fréttablaðið - 27.08.2010, Side 26
27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR4
Akureyrarvaka verður sett í átt-
unda skipti í dag og hafa viðburðir
hennar aldrei verið fleiri. Vakan,
sem er alltaf haldin í kringum
afmæli Akureyrarbæjar hefur
verið kölluð menningarnótt Eyfirð-
inga og verður af nægu að taka.
„Um sextíu viðburðir eru á dag-
skrá og voru nýir að bætast við allt
fram á síðasta dag,“ segir Guðrún
Þórsdóttir, verkefnastjóri vökunn-
ar, en vegna fjölda viðburða hefur
vakan, sem markar endalokin á
Listasumri listahátíðar, verið lengd
úr tveimur dögum í þrjá. Guðrún
segir vígslu Menningarhússins
Hofs á laugardag og mikinn fjölda
tónlistaratriða einkenna hátíðina
í ár.
„Hátíðin verður formlega sett í
Lystigarðinum klukkan átta í kvöld
en hann verður að venju ljósum
prýddur auk þess sem fjöldi atriða
verður á dagskrá. Eins munu Lay
Low og gestir halda tvenna tónleika
í Menningarhúsinu Hofi og leggja
sérstaka áherslu á eyfirsk skáld,“
segir Guðrún innt eftir helstu við-
burðum í dag.
Menningarhúsið Hof verður
formlega opnað á morgun klukk-
an 16. Þar verður fjöldi listvið-
burða alla dagana sem enda með
hátíðartónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands og Víkings
Heiðars Ólafssonar á sunnudag.
„Menningarhúsið mun þó ekki
gleypa alla viðburðina heldur
verða þeir úti um allan bæ jafnt úti
sem inni,“ segir Guðrún og nefnir
markað í miðbænum þar sem meðal
annars verður kynning á Kvenna-
frídeginum 25. október, snyrtivöru-
söfnun og margt fleira.
Síðustu ár hefur miðbæ Akureyr-
ar verið breytt í útileikhús á laugar-
dagskvöldinu. Viðburðurinn hefur
fengið nafnið Taumlaust karnival
og í ár verður ekkert gefið eftir.
Leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir
stýrir dagskránni og verður hægt
að hlýða á brasssveit, marimba-
sveit, óperusöng, rokk frá Blood-
group og Sjálfsprottinni Spévísi
ásamt því að horfa á sirkus Art-
ika og atriði úr Rocky Horror svo
dæmi séu nefnd. Pönkhljómsveit-
in Buxnaskjónar slær svo botninn
í hátíðina með tónleikum í Sundhöll
Akureyrar á sunnudag.
Guðrún segir flytjendur og
listamenn sem taka þátt í hátíð-
inni aðallega koma frá Akureyri
og nærsveitum þótt vissulega séu
undantekningar á því og að allir
séu velkomnir. „Þetta er engu að
síður okkar partý og ég held að það
eigi allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi enda boðið upp á alls kyns
listviðburði og allt frá klassík yfir
í pönk.“
vera@frettabladid.is
Klassík, karnival og pönk
Mikil menningarveisla er í uppsiglingu á Akureyri enda Akureyrarvaka sett í áttunda skipti í kvöld.
Menningarhúsið Hof verður vígt á morgun og aldrei hafa fleiri viðburðir verið á dagskrá.
Guðrún á Húna II sem mun fara með leikskólabörn frá leikskólanum Hólmasól í sigl-
ingu annað árið í röð. Í fyrra tóku þau þátt í friðarverkefni og sendu út flöskuskeyti
með friðarboðskap. Þau fengu svar að utan og munu endurtaka leikinn í ár.
MYND/HEIDA.IS
EINN ROSA GÓÐUR
Í NÝJUM LIT
Laugavegi 178 - Sími: 551 2070
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
teg. 81103 - létt fylltir í BC skálum
á kr. 4.350,- buxur í stíl á kr. 1.990,-
1.990 • 3.990 • 4.990
AÐEINS ÞRJÚ
VERÐ Í BÚÐINNI
50—70%
AFSLÁTTUR
NÝJAR VÖRUR
BEINT Á ÚTSÖLUNA
Sími 534 0073
Erum með opið á lau. kl. 11—16
Heilsusetur Þórgunnu
552 1850 / 896 9653 · www.heilsusetur.is
Viðurkenndur sérmenntaður
kennari með 20 ára reynslu
UNGBARNANUDD
Námskeið 2 september nk.
BAKNUDDNÁMSKEIÐ
Námskeið 2 september nk.
ANDLITS- OG HÖFUÐNUDD
Námskeið 10 september nk.
Upplýsingar í síma 896-9653
og á www.heilsusetur.is.
Rope Yoga • elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419
www.elin.is
námskeið hefjast 30. ágúst
Skráning er hafin
Upplýsingar á www.elin.is
og í síma 696 4419
Í boði eru Rope Yoga,
TRX og lyftinganámskeið.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Síðustu dagar Útsölunnar 27. ágúst – 4. september
Allar Útsöluvörur á 50% afslætti
Ný sending
af vetrarvörum
frá Basler
LaugardagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447