Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 1

Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Heimili & hönnun l Allt l Allt atvinna 11. september 2010 LAUGARDAGUR 1 Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 - Laugard. frá 11 til 16 34.900 k r Sófabor ð í úrval i verð frá Áklæði að eigin vali 170.900 kr Tungusó far Verð frá Unni Steinsson dauðlangar á Hollywood-ballið í kvöld en býst við að taka snemmtekinn nætursvefn fram yfir til að búa yfir orku í Svarthamarsrétt á morgun þar sem hún ætlar að leggja lið sitt við að draga í dilka þúsund ki d Snæfellsnesrallið , næststíðasta keppnin á Íslands- mótinu í rallakstri 2010, fer fram í dag og verður þá rall- að víða um Snæfellsnes. Keppnin er ræst klukkan 14 og tvær fyrstu umferðir eknar um Berserkjahraun. Þá liggur leiðin um Jökulsháls og auk þess er sérleið um Eysteinsdal. Síðasta sérleið rallsins, af alls níu, verður farin klukkan 22 á Breiðinni. www.skessuhorn.is Fegurðardrottningin Unnur Steinsson á annasama helgi fram undan, með námi, stuði og vinnu í bland. Diskódrottningog þúsund kindurÞ etta er ein af fáum helgum sem ég fer ekki vest-ur í Stykkishólm þar sem við eigum hús og höldum okkar annað heim-ili. Hvorugt okkar hjóna er ættað úr Hólminum en við heilluðumst af því fagra bæjarstæði, kúltúrn-um og fólkinu, og keyptum gamalt hús sem við höfum verið að dunda við að gera upp undanfarin átta ár. Því förum við meira og minna allar helgar og í öllum fríum vestur þar sem okkur líður mjög vel og höfum eignast marga góða vini,“ segir Unnur Steinsson, fegurðardrottn-ing, innkaupastjóri og háskólanemi, spurð hvort eitthvað sérstakt standi til um helgina. 2 11. september 2010 LAUGARDAGUR 1 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is Verkefnastjóri Við leitum að kraftmiklum og drífandi einstaklingi til starfa á Upplýsingatæknisviði. Starfi ð felur í sér verkefnastjórnun upplýsingaöryggis- og gæðamála auk annarra stærri verkefna þvert á fyrirtækið. Borgun er fjármálafyrirtæki og þarf að uppfylla öryggiskröfur eftirlitsaðila á Íslandi og alþjóðlegra kortasamsteypa. Nánari upplýsingar um störfi n veitir Anna Rut Þráinsdóttir starfsmannastjóri (art@borgun.is) í síma 560 1579. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfi ð á heimasíðu okkar www.borgun.is.Umsóknarfrestur er til og með 26. september næstkomandi. Helstu verkefni: - Verkefnastýring og innleiðing alþjóðlegra staðla - Ritstjórn á öryggishandbók og tengdri skjölun - Eftirfylgni við öryggishandbók innan UT - Rýni og endurbætur á verkferlum UT - Stýring annarra verkefna Menntun og hæfniskröfur: - Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfi sfræði eða verkfræði - Reynsla af verkefnastjórnun æskileg - Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af teymisvinnu- Mjög góð íslensku og enskukunnátta skilyrði - Skipulögð og nákvæm vinnubrögð - Sjálfstæði í starfi Borgun er framsækið fjármálafyrirtæki sem hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í 30 ár.Starfseminni má skipta í tvö meginsvið, Fyrirtækjaþjónustu sem býður fyrirtækjum heildarþjónustu í færsluhirðingu og Útgáfuþjónustu sem annast þjónustu og ráðgjöf við banka, sparisjóði og aðra kortaútgefendur vegna útgáfu greiðslukorta. [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLA ÐSINS UM HÍBÝLI ] heimili & hönnun september 2010 Ný og notalegri stof a Guðbjörg Magnúsdó ttir innanhúss- arkitekt efur lesend um góð ráð. SÍÐA 2 Tekk, litir og skandinavísk áhrif Útsjónar- samt heimilisfólk á Ránar- götu. SÍÐA 4 INNKAUP Í ÚTLÖNDUM Antíkmarkaðir og he imilisverslanir í Stokkhólmi, París og London. SÍÐA 6 11. september 2010 213. tölublað 10. árgangur Helgarútgáfa BÓNDI Í BEINAN KARLLEGG Veðrið lék við Mývetninga þegar réttað var í Hlíðarrétt um liðna helgi. „Ég man ekki eftir öðru eins blíðu- og sprettusumri,“ segir Árni Halldórsson fyrrum bóndi í Garði I. Hann veit hvað hann syngur því hann er fæddur og uppalinn á bænum og býr þar enn þótt sonur hans Halldór sé tekinn við búi með um 1.200 fjár. Árni er sjötti bóndinn í beinan karllegg í Garði, en hann tók við búinu af föður sínum árið 1958. Halldór sonur hans er því sá sjöundi. Sjá síðu 28 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í landi hinna klikkuðu karlmanna Andri Snær Magnason um græðgi og geðveiki á Íslandi fyrr og nú. umhverfismál 32 Höfuð, hjarta & hendur Hin pakistanska Shabana Zaman kennir börnum að skynja umhverfi sitt. fólk 30 Tolli í Tíbet ferðir 36 Fréttablaðið er með 201% meiri lestur en Morgunblaðið. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 74,9% 24,9% Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára. Könnun Capacent í maí til júlí 2010. Stolið & stælt hugverkastuldur 38spottið 16 Leikhús ímynd- unaraflsins Djúpið eftir Jón Atla Jónasson frumflutt í Úvarpsleikhúsinu. menning 52 Grátt er svart stíll 56 HEILBRIGÐISMÁL Allt bendir til þess að nýtt endurgreiðslukerfi lyfja verði tekið upp um áramótin, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, fráfar- andi heilbrigðisráðherra, í ítarlegu helgarviðtali. Endurskipulagning, ekki flatur niðurskurður, verður höfð að leiðarljósi til að ná mark- miðum fjárlaga innan heilbrigðis- kerfisins á næsta ári. „Markmiðið er að hlífa þeim, sem mest þurfa á lyfjum að halda, við þeim mikla kostnaði sem því fylgir. Núna fer lyfjakostnaður frekar eftir sjúkdómum en eftir stöðu einstaklingsins. Sumum sjúkdómum fylgja ókeypis lyf út lífið. En aðrir þurfa að borga mjög mikið fyrir sín lyf. Þetta er risa- mál sem dagaði uppi í hruninu, en það er mikilvægt að koma þessu á,“ segir Álfheiður um nýtt endur- greiðslukerfi lyfja sem verið er að leggja lokahönd á í heilbrigðis- ráðuneytinu. Spurð um fjárlagagerðina og málefni Landspítalans segir Álf- heiður ljóst að markmiðum fjár- laga verði aðeins náð með endur- skipulagningu, ekki flötum niðurskurði. „Það þarf að skera niður í heilbrigðisþjónustunni allri á næsta ári um 4,7 milljarða. Til að ná því þarf að mínu mati skipulags- breytingar, meðal annars að hætta uppbyggingu á litlum landspítölum vítt og breitt um landið. Við verð- um að styrkja stóru sjúkrahúsin, á Akureyri og Landspítalann. Á móti verður að auka nærþjónustuna á eins konar heilsugæslusjúkrahús- um og styrkja sjúkraflutninga.“ Álfheiður telur að samein- ing heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneyt- isins útheimti tilfærslu verkefna. Óbreytt sé ráðuneytið of stórt og innan þess verkefni sem eiga illa saman. Hún segir eina ástæðu þess að hún skipti út stjórn Sjúkratrygg- inga Íslands hafa verið að stöðva síendurteknar yfirkeyrslur. Í ár stefnir í að stofnunin fari 2,5 milljarða fram úr fjárheimildum sínum. - shá / sjá síður 22, 24 og 25 Hillir undir byltingu í endurgreiðslu lyfja Þeir sem bera mikinn lyfjakostnað fá mikla réttarbót með nýrri tilhögun á endurgreiðslum. Tilfærsla verkefna frá nýju velferðarráðuneyti er nauðsynleg og styrkja þarf stóru sjúkrahúsin með endurskipulagningu við gerð fjárlaga. Það þarf að hætta uppbyggingu á litlum landspítölum vítt og breitt um landið. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR FRÁFARANDI HEILBRIGÐISRÁÐHERRA ÍRAN, AP Bandaríkjastjórn tekur undir með írönskum stjórnvöldum, sem segja ekkert hæft í fullyrðing- um stjórnarandstæðinga í Írak um að leynileg úranauðgunarstöð sé í smíðum neðanjarðar skammt frá Qazvin, um 120 kílómetra vestur af höfuðborginni Teheran. Tvenn samtök stjórnarand- stæðinga í Írak, NCRI og PMOI, fullyrtu þetta á fimmtudag, en bandarískur embættismaður segir að Bandaríkjamenn hafi vitað af þessum stað og byggingum þar árum saman. Þeir sjái enga ástæðu til að telja að þar fari fram starf- semi sem tengist kjarnorku á neinn hátt. - gb Bandaríkjastjórn styður Írana: Ekkert hæft í ásökunum FYRIR OPNUM TJÖLDUM Rússar hafa aðstoðað Írana við að koma sér upp kjarnorkuveri í friðsamlegum tilgangi. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.