Fréttablaðið - 11.09.2010, Qupperneq 2
2 11. september 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hvenær kemur í ljós hvort ráðherrar verða dregnir
fyrir landsdóm, og hvaða lög gilda um dóminn?
Þingnefnd sem Alþingi skipaði til að fjalla um
mögulega ábyrgð ráðherra vegna efnahags-
hrunsins árið 2008 mun skila Alþingi niður-
stöðu sinni klukkan 17 í dag. Nefndin getur
lagt það til við Alþingi að ákveðnir ráðherrar
verði dregnir fyrir landsdóm.
Nöfn fjögurra fyrrverandi ráðherra eru
oftast nefnd í því samhengi: Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjár-
málaraðherra, og Björgvin G. Sigurðsson,
fyrrverandi viðskiptaráðherra. Ekkert hefur
heyrst frá nefndinni um hvort landsdómur
verði kallaður saman eða hvort lagt verði til
á Alþingi að höfðað verði mál á hendur ein-
hverjum einstaklingum.
Landsdómur hefur aldrei verið kallaður
saman á Íslandi. Dómurinn hefur það eina
hlutverk að dæma í málum sem Alþingi
ákveður að höfða gegn ráðherrum vegna
embættisreksturs þeirra. Í landsdómi eiga
sæti fimm hæstaréttardómarar, lagaprófess-
or, dómstjórinn í Reykjavík og átta aðrir sem
kjörnir eru af Alþingi. Alþingi kaus síðast í
landsdóm árið 2005 til sex ára.
Ráðherrar bera ábyrgð gagnvart Alþingi
vegna embættisstarfa sinna. Ábyrgðin er
annars vegar pólitísk en hins vegar lagaleg.
Pólitísk ábyrgð lýsir sér þannig að meirihluti
Alþingis getur samþykkt vantraust á hendur
ráðherra og neytt ráðherrann til að segja af
sér. Lagaleg ábyrgð ráðherra lýsir sér þannig
að meirihluti Alþingis getur samþykkt að
ákæra ráðherra fyrir embættisrekstur hans.
Alþingi getur samþykkt að draga ráðherra
fyrir landsdóm telji þingmenn að ráðherr-
ann hafi gerst sekur um að fara í bága við
stjórnarskrána, landslög eða stofnað hags-
munum ríkisins í fyrirsjáanlega hættu. Til
þess þarf ráðherrann að hafa sýnt af sér stór-
kostlegt hirðuleysi eða ásetning um að brjóta
lög.
Í lögum um ráðherraábyrgð kemur einnig
fram að hægt sé að ákæra ráðherra sem veld-
ur því að eitthvað sé gert sem „stofnar heill
ríkisins í fyrirsjáanlega hættu.“ Það sama á
við ef hann lætur farast fyrir að „framkvæma
nokkuð það, er gat afstýrt slíkri hættu, eða
veldur því að slík framkvæmd ferst fyrir.“
Þingið tilgreinir sakarefnið
Ákvörðun um málshöfðun gegn ráðherra
tekur Alþingi með því að samþykkja fram
lagða þingsályktunartillögu. Þar á að til-
greina kæruatriðin nákvæmlega. Sókn máls-
ins verður bundin við þau kæruatriði sem
tilgreind eru af Alþingi, og því mikilvægt að
vandað sé afar vel til verka, segir Sigurður
Líndal, lagaprófessor við Háskóla Íslands.
Alþingi á einnig að kjósa saksóknara í mál-
inu, auk fimm manna þingnefndar sem vera
á saksóknaranum til aðstoðar. Saksóknarinn
gefur út formlega ákæru á hendur ráð-
herrunum, en er bundinn af þeim kæru-
atriðum sem nefnd eru í þingsályktun
Alþingis.
Róbert Spanó, lagaprófessor við
Háskóla Íslands, segir að ákveði
Alþingi að höfða skuli mál á hend-
ur ráðherrum sé mikilvægt að þings-
ályktun Alþingis sé eins skýr um
ákæruefnin og nokkur sé kostur. Best
væri að þingsályktunin væri sett fram
eins og hefðbundin ákæra svo sóknin
verði skýr strax frá upphafi.
Ekki er beinlínis kveðið á um
það í lögunum hvernig skuli
fara með mál þar sem fleiri en
einn er ákærður, segir Róbert.
Ákveði Alþingi að höfða mál
á hendur fleiri en einum ráð-
herra mætti gefa út eina
ákæru fyrir alla eða sérstaka
ákæru fyrir hvern og einn.
Róbert og Sigurður eru
sammála um að ómögulegt
sé að segja fyrir um hversu
langan tíma málaferli fyrir
landsdómi komi til með
að taka. Það velti til dæmis á fjölda ráðherra
sem séu ákærðir og hversu flókin ákæruatrið-
in séu. Sigurður segir þó ljóst að séu ákæru-
efnin flókin og hörðum vörnum haldið uppi
geti málaferlin dregist verulega á langinn.
Ekki er kveðið á um það í lögum um lands-
dóm hvar hann skuli koma saman, utan þess
að það á nema í undantekningartilvikum að
vera í Reykjavík. Þeir sérfræðingar sem
Fréttablaðið ráðfærði sig við í gær töldu lík-
legast að landsdómur þingaði í húsakynnum
Hæstaréttar, verði hann kallaður saman.
brjann@frettabladid.is
Niðurstöðu um ábyrgð
ráðherranna vænst í dag
Skýrsla þingmannanefndar sem fjallað hefur um ábyrgð fyrrverandi ráðherra á hruninu verður birt kl. 17 í
dag. Þá kemur í ljós hvort nefndin mælir með því að fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm.
Ráðherrar sem dæmdir eru í landsdómi eiga engan kost
á að áfrýja dóminum til æðra dómstigs, og er dómur
landsdóms því endanlegur. Þeir sem dæmdir hafa
verið eiga þó kost á því að fá málið tekið upp aftur fyrir
dóminum komi fram ný gögn sem sýna fram á sýknu eða
minni sök.
Róbert Spanó, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segir
engin ákvæði í íslensku stjórnarskránni sem áskilji rétt
til áfrýjunar. Í viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu sé
þó áskilið að í sakamálum sé réttur til áfrýjunar. Þar er
þó einnig að finna undantekningarákvæði, þar sem segir
að fjalli æðsta dómstig um mál strax á frumstigi þurfi
möguleiki á áfrýjun ekki að vera til staðar.
Árið 1995 var Erik Ninn-Hansen, þáverandi dómsmála-
ráðherra Danmerkur, sakfelldur í danska ríkisréttinum í
svokölluðu Tamílamáli. Í málum sem danski ríkisrétturinn
dæmir í er ekki heimild til áfrýjunar. Ninn-Hansen skaut
málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu, sem taldi þetta
fyrirkomulag standast ákvæði mannréttindasáttmálans,
segir Róbert.
Geta ekki áfrýjað dómi landsdóms
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLA-
DÓTTIR, ÁRNI M. MATHIE-
SEN, GEIR H. HAARDE OG
BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON
Þetta eru fyrrum ráðherrarnir
fjórir sem oftast eru nefndir
í tengslum við mögulega
ábyrgð á hruninu.
STJÓRNSÝSLA Viðar Már Matthías-
son, prófessor við lagadeild
Háskóla Íslands, hefur verið skip-
aður dómari við Hæstarétt sam-
kvæmt tillögu
Ögmundar Jón-
assonar dóms-
málaráðherra.
Aðrir
umsækjendur
um embættið
voru Sigríður
Ingvarsdóttir
héraðsdómari,
Sigrún Guð-
mundsdóttir
héraðsdómari
og Þorgeir Örlygsson, dómari við
EFTA-dómstólinn í Lúxemborg.
Hæfisnefnd mat Viðar og Þor-
geir hæfasta. Viðar tekur sæti
Hjördísar Hákonardóttur, sem
baðst lausnar fyrir aldurs sakir
í sumar. Viðar Már er 56 ára að
aldri. Hann hefur þrívegis verið
settur dómari við Hæstarétt tíma-
bundið. - sh
Ögmundur skipar dómara:
Viðar Már í
Hæstarétt
VIÐAR MÁR
MATTHÍASSON
Erlendur, dæmir þetta sig ekki
sjálft?
„Það er annarra að dæma um það.“
KR-ingar segjast ekki treysta dómaranum
Erlendi Eiríkssyni til að dæma leik þeirra
á móti ÍBV í Pepsi-deildinni á morgun
vegna þess að hann hafi dæmt á þá tvö
víti í leik gegn FH.
SPURNING DAGSINS
Køben
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Borgarferð
65.800 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum. Gisting á Hótel Wakeup í þrjár nætur, sem er vel
staðsett og með ríkulegum morgunverði.
1. – 4. október
Verð á mann í tvíbýli,
aðeins frá:
á kostakjörum
Þeir fimm hæstaréttardóm-
arar sem setið hafa lengst
eiga sæti í landsdómi. Forseti
hæstaréttar er alltaf forseti
landsdóms. Dómararnir fimm
eru:
■ Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti
hæstaréttar
■ Árni Kolbeinsson
■ Garðar Kristjánsson Gíslason
■ Gunnlaugur Claessen
■ Markús Sigurbjörnsson
Landsdómurinn
Alþingi kýs átta menn í landsdóm á fimm
ára fresti. Síðast var kosið í dóminn árið
2005. Þá voru eftirtaldir kjörnir:
■ Brynhildur Flóvenz lögfræðingur
■ Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður
■ Fannar Jónasson viðskiptafræðingur
■ Hlöðver Kjartansson lögmaður
■ Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fyrrv. alþingismaður
■ Linda Rós Michaelsdóttir kennari við Menntaskól-
ann í Reykjavík
■ Sigrún Magnúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi
■ Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður
Að lokum eiga sæti í lands-
dómi dómstórinn í Reykjavík
og prófessor í stjórnskipunar-
rétti við Háskóla Íslands. Þeir
eru:
■ Helgi I. Jónsson dómstjóri Héraðs-
dóms Reykjavíkur
■ Annaðhvort Björg Thorarensen,
prófessor í stjórnskipunarrétti við HÍ,
eða Eiríkur Tómasson, prófessor í
stjórnskipunarrétti við HÍ.
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Hvera-
gerðis vill kaupa til baka hitaveitu
bæjarins sem seld var Orkuveitu
Reykjavíkur árið 2004.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæð-
isflokks segja söluna hafa verið
afar umdeilda á sínum tíma. Veitu-
kerfið hafi verið selt og veittur
einkaréttur á sölu og dreifingu á
heitu vatni, einnig einkaréttur til
virkjunar jarðhita í eignarlandi
bæjarins. Nú ætli Orkuveitan „að
varpa ábyrgðarlausri skuldasöfn-
un“ yfir á Hvergerðinga með 35
prósenta hækkun á heitu vatni.
Hagsmunir bæjarbúa hafi verið
„gróflega fyrir borð bornir“ með
sölunni.
Minnihluti A-listans segir það
dylgjur að vegið hafi verið að hags-
munum bæjarbúa með sölunni. Hita-
veitan hafi verið rekin með tapi og
mjög dýrar endurbætur verið yfir-
vofandi. Peningarnir hafi farið í að
borga niður erlendar skuldir. Nú
stefni skuldsetning í að verða 165
prósent af tekjum bæjarins:
„Í ljósi þessarar erfiðu skulda-
stöðu telja bæjarfulltrúar A-list-
ans sjálfstæðismenn sýna mikið
ábyrgðarleysi að ætla að skuldsetja
bæjarfélagið enn frekar með kaup-
um á hitaveitunni og þannig varpa
ábyrgðarlausri skuldasöfnun yfir
á íbúa Hveragerðisbæjar,“ segir í
bókun A-listans. - gar
Meirihlutinn í bæjarstjórn Hveragerðis segir sölu hitaveitu hafa verið mistök:
Vilja kaupa hitaveitu til baka
Í HVERAGERÐI Orkuveita Reykavíkur
hefur einkarétt á sölu heits vatns og
gufu í Hveragerði. FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra hefur fengið boð
á þjóðfund sem haldinn verður í
nóvember. Jóhanna var ein þús-
und Íslendinga sem valdir voru
með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Jóhanna greindi frá þessu að
loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
Hún sagðist þurfa að skoða alvar-
lega hvort hún tæki boðinu. Ýmsir
teldu ekki hlutverk ráðherra að
taka þátt í fundum sem þessum.
Fundurinn á að leggja til stjórn-
arskrárbreytingar áður en stjórn-
lagaþing kemur saman. - sh
Fékk boð á þjóðfund:
Jóhanna lenti í
slembiúrtaki
DÓMSMÁL „Evrópudómstóllinn var
nú að dæma með fyrirtækjum á
frjálsum markaði,“ segir Lárus
Páll Ólafsson hjá veðmálafyrir-
tækinu Betsson um dóm sem féll
á miðvikudag í máli gegn þýska
ríkinu.
Deilt var um lög í Þýskalandi
sem hindra starsfemi sjálfstæðra
veðmálafyrirtækja. Evrópudóm-
stólinn segir þetta kunna að vera
óréttlætanlegt. Lárus Páll segir
að í sumar hafi verið samþykkt
lög á Ísland um að erlend fyrir-
tæki á borð við Betsson megi ekki
auglýsa happdrætti og veðmál.
Lögin hafi verið klæðskerasaum-
uð af aðilum tengdum íslenskum
happdrættum til að koma í veg
fyrir samkeppni. - gar
Betsson fagnar Evrópudómi:
Einokun ríkis
sögð vafasöm