Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 4
4 11. september 2010 LAUGARDAGUR
Umhverfis landið
Ranglega var farið með nafn Lilju
Rafneyjar Magnúsdóttur alþingis-
manns í kynningu með aðsendri
grein sem birtist á leiðaraopnu
blaðsins í gær. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Niðurskurður stjórnvalda hjá Háskóla
Íslands sem fjallað var um í blaðinu í
gær nær til áranna 2009 til 2011, ekki
næstu þriggja ára líkt og hermt var í
fréttinni.
LEIÐRÉTTING
BOLUNGARVÍK Brimbrettakappar
vöktu athygli á sandinum í Bolungar-
vík í fyrradag, að því er greint er frá á
vefnum bb.is. Þar munu hafa verið á
ferð fjögur kanadísk ungmenni sem
öll stunda nám í haf- og strandsvæða-
stjórnun hjá Háskólasetri Vestfjarða.
Brimbrettaíþróttin hefur ekki notið
mikilla vinsælda hér á landi, en það
þótti Kanadamönnunum sérkennilegt
að heyra, enda væru aðstæður til
iðkunar hér hinar bestu. Sjórinn er þó
býsna kaldur og því þurftu brimararnir
að halda sér sæmilega þurrum með
því að klæðast blautbúningum.
Brimuðu í
Bolungarvík
AKUREYRI Tekist var á um staðsetningu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri
á íbúafundi í bænum fyrir skemmstu. Í samtali við vefmiðilinn Vikudag segir
Oddur Helgi Halldórsson, formaður bæjarráðs, að fundurinn hafi verið góður
en að vissulega hafi komið fram skiptar skoðanir. Þar var kynnt ný stefna
í málefnum aldraðra, svokölluð Edenstefna, fjallað var um nýja staðsetn-
ingu og arkitekt heimilisins kynnti sínar hugmyndir. Fyrstu hugmyndir um
hjúkrunarheimilið gerðu ráð fyrir að það yrði í Naustahverfi, nú er rætt um
lóð við Vestursíðu og loks hafa menn nefnt Oddeyri sem ákjósanlegan stað.
Oddur Helgi telur Síðuhverfið henta best.
Tekist á um hjúkrunarheimili
VATNSNES Í vikunni afhentu Húsfreyjurnar á Vatnsnesi fjall-
skilastjórninni á staðnum 45 endurskinsvesti sem líklega
munu koma sér vel í göngunum sem fram undan eru, að
því er segir á vefmiðlinum nordanatt.is. Smalað verður á
Vatnsnesi í dag. Húsfreyjurnar er félagsskapur sem stend-
ur reglulega fyrir ýmsum viðburðum til styrktar góðum
málefnum.
Húsfreyjur gáfu endurskinsvesti
STÖÐVARFJÖRÐUR Forstjóri Landsbank-
ans segir að minni viðskipti á Stöðvarfirði
hafi orðið til þess að ákveðið var að loka
útibúi bankans á
staðnum. Þetta kemur
fram í svarbréfi sem
bankastjórinn, Steinþór
Pálsson, sendi sveitarfé-
laginu þegar lokuninni
var mótmælt, að því er
segir á vef Austurglugg-
ans. Þar segir Steinþór
að bankanum þyki
ákvörðunin miður en hún sé þó óhjá-
kvæmileg. Þá hafi verið reynt að tryggja að
starfsfólk útibúsins héldi vinnu sinni þótt
útibúinu væri lokað. Enn fremur er því hafn-
að að Landsbankinn hafi gengið fram fyrir
skjöldu í að draga úr þjónustu í bænum, því
aðrir hafi orðið þar fyrri til eins og sveitar-
stjórnarmönnum sé kunnugt um.
Þykir miður að loka
þurfti á Stöðvarfirði
VOPNAFJÖRÐUR Paola, drottning
Belgíu, kom óvænt til Vopnafjarðar með
skemmtiferðaskipinu Vessel Plancius
síðastliðinn þriðjudag. Drottningin skoð-
aði sig um á norðausturhorni landsins
og hófst skoðunarferðin í Mývatnssveit,
að því er fram kemur á vefnum austur-
landid.is. Fulltrúar frá sérsveit Ríkislög-
reglustjóra fylgdu drottningunni hvert
fótmál, en haft er eftir leiðsögumannin-
um Ágústu Þorkelsdóttur að hún hafi
verið virðuleg en jafnframt hin alþýðleg-
asta.
Belgíudrottning á Vopnafirði
VESTMANNAEYJAR Skógræktarfélag
Íslands hefur valið álm við Heiðarveg 35
í Vestmannaeyjum sem tré ársins 2010.
Íbúum hússins var veitt viðurkenning
við hátíðlega athöfn og lúðraþyt
síðdegis í gær. Magnús Gunnarsson,
formaður Skógræktarfélags Íslands, fór
þar fögrum orðum um tréð og skráði
það á spjöld sögunnar, að því er sagði á
fréttavefnum eyjafrettir.is.
Álmur við Heiðarveg
valið tré ársins
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
22°
22°
17°
23°
23°
19°
19°
24°
20°
28°
24°
35°
15°
25°
20°
18°
Á MORGUN
8-15 m/s S- og V-til.
MÁNUDAGUR
5-10 m/s.
13
13
14
14
14
13
11
12
9
11
13
4
3
2
2
2
4
2
1
3
5
2
12
12
13
13
14
12
12
11
11
10
LEIÐINLEGT
FRAMUNDAN
Gengur í vaxandi
suðaustanátt með
talsverðri rigningu
sunnan og vestan-
lands seint í nótt.
Fínt veður fyrir
norðan og austan á
morgun en annað
kvöld fer einnig
að rigna duglega
norðaustan til.
Kólnar lítillega í
veðri í dag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
ÖRYGGISMÁL Mistök voru gerð hjá
Neyðarlínunni á fimmtudags-
kvöld þegar starfskona á KFC í
Kópavogi hringdi þangað vegna
þriggja starfsbræðra sinna
sem brenndust af gufu úr potti.
Mennirnir þrír komu sér sjálfir
á bráðamóttöku.
Dagný Halldórsdóttir, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Neyðarlín-
unnar, segir konuna sem hringdi
ekki hafa óskað eftir aðstoð held-
ur sett fram fyrirspurn.
„Það var spurt hvort ekki
væri rétt að fara á neyðarmót-
tökuna vegna bruna af völdum
heits vatns. Neyðarvörðurinn tók
undir það og þannig lauk samtali
þeirra,“ segir Dagný sem kveður
viðbrögð neyðarvarðarins ekki
hafa verið samkvæmt bókinni.
„Hann hefði átt að taka betur
stjórn á símtalinu; afla upplýs-
inga um hvað væri um að vera og
alvarleika áverkanna. Þetta hefði
líklega leitt til þess að sjúkrabíl-
ar hefðu verið sendir,“ útskýr-
ir Dagný. Aðspurð segir hún að
samkvæmt upplýsingum frá lækni
hafi þessi mistök þó ekki komið að
sök. Mennirnir hafi komist fljótt á
sjúkrahús.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Helga
Vilhjálmssyni, eiganda KFC, var
það neyðarvörður sem átt frum-
kvæðið í samtalinu. „Spurði starfs-
maður Neyðarlínunnar hvort við-
komandi væri þannig á sig kominn
að annað starfsfólk treysti sér til
að aka viðkomandi á neyðarmót-
töku í Fossvogi. Það væri fljótleg-
asta leiðin,“ segir í yfirlýsingunni.
Tveir starfsmannanna sem brennd-
ust hafa verið útskrifaðir af sjúkra-
húsi og sá þriðji er á batavegi. - gar
Neyðarlínan viðurkennir mistök þegar hringt var frá KFC vegna brunasára:
Gleymdi að spyrja um áverka
LANDSPÍTALINN FOSSVOGI Starfsmaður
sem brenndist illa af gufu úr potti á KFC
á fimmtudagskvöld fór með félögum
sínum á bráðamóttöku. Hann er á bata-
vegi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UMHVERFISMÁL Leik- og grunnskól-
ar borgarinnar hafa hafið átak til
að draga úr magni sorps sem fell-
ur til frá þeim. Þetta verður gert
með því að flokka sorp og endur-
nýta í meiri mæli.
Í greinargerð með þessari til-
lögu, sem var samþykkt á fundi
menntaráðs á dögunum, segir
að fyrir utan kosti þess að gera
umhverfissjónarmiðum hátt undir
höfði í uppeldi og menntun barna
og ungmenna, hafi verkefnið einn-
ig kosti frá rekstrarsjónarmiði.
Þannig kemur fram að þeir skólar
sem ynnu meðvitað að úrgangs-
málum greiddu talsvert minna
í sorphirðu en skólar sem ekki
gerðu slíkt. - þj
Stefnt að minni úrgangi:
Reykvískir skól-
ar endurvinna
Í ENDURVINNSLUNNI Menntaráð Reykja-
víkur vill gera umhverfissjónarmiðum
hærra undir höfði í menntun barna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 10.09.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,1526
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,09 118,65
182,38 183,26
182,38 183,26
20,170 20,288
19,090 19,202
16,300 16,396
1,4051 1,4133
178,47 179,53
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR