Fréttablaðið - 11.09.2010, Síða 10

Fréttablaðið - 11.09.2010, Síða 10
 11. september 2010 LAUGARDAGUR Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarna- og framfara- sjóði Reykjavíkurborgar. Upplýsingar um úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð er að finna á vef Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg kallar eftir góðum hugmyndum á sviði forvarna og fegrunar í hverfum borgarinnar > Fegurri ásýnd hverfis > Eflingu lýðheilsu > Aukið öryggi íbúa > Forvarnir í þágu barna og ungmenna > Samstarf íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og borgarstofnana Verkefnin geta komið frá einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum eða stofnunum en þau verða að fela í sér eitt af eftirfarandi: Enn betri Reykjavík www.reykjavik.is/ennbetri UM SÓ KNA RFRESTUR RENNUR ÚT 1. OKTÓBER 2010 NJÓTIÐ ÞESS AÐ FLJÚGA NÁMSKEIÐ GEGN FLUGFÆLNI – 9. OKTÓBER 2010 Icelandair efnir til námskeiðs fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni. Kenndar verða aðferðir til að vinna bug á kvíða og fælni og farið verður yfir þætti sem tengjast flugvélinni og fluginu sjálfu. Námskeiðinu lýkur með flugferð til eins af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Leiðbeinendur: Álfheiður Steinþórsdóttir, sálfræðingur, og Páll Stefánsson, flugstjóri. Námskeiðið hefst 4. október 2010. + UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING eline@icelandair.is I SÍMI: 50 50 300 Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 30. september 2010. Gísli Jónsson, dr.med., sérfræðingur í hjartalækningum og lyflækningum hefur opnað læknastofu í Domus Medica. Tímapantanir alla virka daga milli kl. 9 og 17 í síma 563 1000. BANDARÍKIN, AP Að venju hafa Bandaríkjamenn skipulagt ýmsar minningarathafnir 11. september þetta árið, þegar níu ár eru liðin frá árás hryðjuverkamanna á land- ið. Meiri styr stendur þó um atburð- ina og ýmislegt þeim tengt þar vestra en áður. Áform múslíma um að opna mosku í New York, rétt hjá staðn- um þar sem Tvíburaturnarn- ir stóðu, hafa farið fyrir brjóstið á mörgum sem tengja árásirnar beint við trú múslíma. Áform fámenns kristins safn- aðar í Flórída um að brenna helgi- rit múslima þennan dag hafa ekki síður vakið andmæli, bæði þeirra sem óttast viðbrögð herskárra og strangtrúaðra múslíma víða um heim og hinna sem telja fráleitt að kenna múslímum almennt um árásirnar. Barack Obama forseti ætlar að taka þátt í minningarathöfn í Pentagon, byggingu varnarmála- ráðuneytisins í Washington, sem varð fyrir einni farþegaþotunni af fjórum sem hryðjuverkamenn rændu og notuðu sem árásar- vopn. Joe Biden varaforseti tekur þátt í annarri athöfn í New York, þar sem tveimur flugvélum var flogið á turna Heimsviðskipta- stofnunarinnar, Tvíburaturnana, en þær Michelle Obama forseta- frú og Laura Bush, fyrrverandi forsetafrú, halda til Shanksville í Pennsylvaníu, en þar rétt hjá hrapaði fjórða farþegaþotan eftir að nokkrir farþeganna gerðu upp- reisn gegn flugræningjunum. Nokkur óvissa ríkir um hvort Terry Jones, leiðtogi fimmtíu manna safnaðar í bænum Gai- nesville í Flórída, lætur verða af áformum sínum um að brenna Kóraninn. Hann gaf út tilkynningu í fyrra- kvöld, eftir að Robert Gates varn- armálaráðherra hafði rætt við hann, um að hann væri hættur við. Síðar sagðist hann enn vera að hugsa málið. Á nokkrum stöðum í Afganistan tóku samtals nokkur þúsund manns í gær, á bænadegi múslíma, þátt í mótmælum gegn áformum prests- ins. Sums staðar kom til átaka og meiddust á annan tug manna. Ekki fréttist af fjölmennum mót- mælum annars staðar. Í Indónesíu, fjölmennasta múslímaríki heims, sagði klerkurinn Rusli Hasbi að Jones hefði þegar sært hjörtu mús- líma hvort sem hann léti verða af brennunni eða ekki. gudsteinn@frettabladid.is Árása minnst vestanhafs Bandarískir leiðtogar taka að venju þátt í minn- ingarathöfnum. Óvíst hvort klerkurinn Jones lætur verða af áformum sínum um að brenna Kóraninn. DANMÖRK, AP Sprengjumaður, sem særðist þegar sprengja hans sprakk á hóteli í Kaupmannahöfn í gær, lá klukkutímum saman í lystigarði skammt frá meðan lögregla full- vissaði sig um að svört taska, sem hann bar í belti um sig miðjan, væri hættulaus. Maðurinn var á endanum fluttur á sjúkrahús. Hotel Jørgensen, sem er lítið hótel ekki langt frá Jónshúsi í Kaupmannahöfn, var rýmt eftir að sprengjan sprakk og lokað meðan lögregla leitaði af sér grun um að aðrar sprengjur kynnu að vera þar. Garðurinn Örstedsparken var sömuleiðis girtur af meðan lög- reglan gekk úr skugga um að engin hætta væri á ferðum. - gb Sprengjumaður handtekinn í Kaupmannahöfn: Fluttur á sjúkrahús VIÐ HOTEL JØRGENSEN Sprengjuleitar- hundur við störf í gær. NORDICPHOTOS/AFP MUHAMMED MUSRI OG TERRY JONES Trúarleiðtogi múslíma í Flórída spurði brennu- klerkinn, sem var tvístígandi í gær, hvað Jesús myndi gera. NORDICPHOTOS/AFAP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.