Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 18
18 11. september 2010 LAUGARDAGUR
Stjórn fiskveiða
Niðurstaða starfshóps um endurskoðun laga um stjórn
fiskveiða liggur nú fyrir. Til-
gangur með skipun hópsins var
að skilgreina helstu álitaefni
sem fyrir eru í löggjöfinni, láta
vinna nauðsynlegar greining-
ar og leggja fram valkosti til
úrbóta. Markmiðið var að leggja
grunn að nýrri og betri löggjöf
sem skapaði sjávarútveginum
góð rekstrarskilyrði til langs
tíma og að sem víðtækust sátt
yrði um fiskveiðistjórnunina
meðal þjóðarinnar. Starfshóp-
urinn skilaði skýrslu til sjávar-
útvegsráðherra með niðurstöð-
um sínum um einstök mál og
gerði tillögur til úrbóta í þeim
álitaefnum sem uppi hafa verið í
greininni. Auk þess leggur hóp-
urinn fram valkosti um leiðir við
stjórn fiskveiða til langs tíma og
líklegt er að sem mest sátt geti
verið um.
Meginniðurstöður
Í stuttu máli er meginniðurstað-
an sú að allir aðilar starfshóps-
ins að undanskildum LÍÚ eru
þeirrar skoðunar að í stjórnar-
skrá lýðveldisins verði skýrt
kveðið á um að fiskistofnar við
landið séu sameign þjóðarinnar.
Um þetta er þverpólitísk niður-
staða allra flokka á Alþingi og
fullt samkomulag allra hags-
munaaðila í sjávarútvegi – nema
LÍÚ. Sjónarmið þeirra sem hafa
haldið því fram að fiskurinn í
sjónum sé séreign tiltekinna
aðila hafa því beðið fullkomið
skipbrot. Aðeins rétt rúmt ár
er liðið síðan sjálfstæðismenn
á Alþingi beittu málþófi og tóku
þingið í gíslingu til að koma í
veg fyrir að gerðar yrðu breyt-
ingar á stjórnarskrá landsins í
þessa veru. Nú hafa þau sjónar-
mið verið brotin á bak aftur og
þverpólitísk samstaða orðin um
meðferð málsins.
Í öðru lagi er það niðurstaða
meirihluta starfshópsins, að eig-
andi auðlindarinnar (þjóðin) geti
gert tímabundna afnotasamn-
inga við þá sem vilja nýta fiski-
stofnana við landið gegn gjaldi
og tilteknum öðrum skilyrðum.
Með þeim hætti er verið að fara
álíka leið og farið er með aðrar
sameiginlegar auðlindir, þ.e.
eignarhaldið sé skýrt og samn-
ingar gerðir um tímabundin
afnot. Í þriðja lagi er starfshóp-
urinn samhljóða um að aflaheim-
ildum skuli skipt upp í tvo potta.
Annar potturinn verði til ráð-
stöfunar innan aflamarkskerf-
isins gegn samningum um afnot
eins og áður segir en hinn ætlað-
ur til atvinnu- og byggðatengdra
aðgerða. Hlutfall þessara tveggja
potta verði lögbundið þannig að
báðir stækki eða minnki eftir því
hvort útgefnar heimildir aukist
eða dragist saman hverju sinni.
Það er mat mikils meirihluta
hópsins að byggða- og atvinnu-
mál verði betur tryggð með þess-
um hætti frekar en að aflaheim-
ildir verði boðnar upp á markaði
á hverju ári eins og gerð hefur
verið tillaga um. Stefnulaus hönd
markaðarins tekur ekki tillit til
slíkra sjónarmiða og virðir engin
mörk í því tilliti. Það ættu menn
að vera búnir að læra af sárri
reynslu í þróun byggðar á Íslandi
á undanförnum áratugum. Í
fjórða lagi gerir starfshópurinn
ítarlega grein fyrir þeim álita-
efnum sem uppi hafa verið í sjáv-
arútvegi á síðustu árum og gerir
tillögur til úrbóta í þeim efnum.
Í því sambandi má nefna að tak-
marka verði hve stórt hlutfall
veiðiheimilda megi vera á einni
hendi og kanna þurfi innbyrðis-
tengsl fyrirtækja í sjávarútvegi
með það í huga. Starfshópurinn
leggur áherslu á að aflahlutdeild-
ir eða tryggur aðgangur að afla-
heimildum þurfi að vera tengdur
við byggðir til atvinnusköpun-
ar. Starfshópurinn er sammála
um að heimild til framsals afla-
marks þurfi að þrengja frá því
sem nú gildir, afnema eða ein-
göngu heimila skipti á aflaheim-
ildum. Ef framsal verði leyft
fari það fram á vegum opin-
berra aðila þannig að tryggt sé
að aðgangur að heimildum verði
jafn öllum sem áhuga hafa. Hér
er skiljanlega aðeins drepið á
örfáum atriðum í skýrslu starfs-
hópsins sem er bæði yfirgrips-
mikil og fróðleg aflestrar.
Ný hugmyndafræði
Aðalatriðið er að breið samstaða
hefur náðst um nýja hugmynda-
fræði við stjórn fiskveiða og
sjónarmiðum þeirra sem farið
hafa með þau mál á hinum pól-
itíska vettvangi undanfarna tvo
áratugi, hefur verið vísað frá
með afdráttarlausum hætti. Sú
samstaða er á milli stéttarfélaga
sjómanna, sveitarfélaga, fisk-
framleiðenda, LÍÚ, Landssam-
bands smábátaeigenda og allra
stjórnmálaflokka á Alþingi utan
Hreyfingarinnar. Það er sann-
færing mín að tillögur starfs-
hópsins verði til að móta nýtt
upphaf við stjórn fiskveiða hér
á landi. Tillögur hópsins eru
að mínu mati vel rökstuddar,
byggðar á haldgóðum upplýs-
ingum og til þess fallnar að ná
sátt hjá þjóðinni um þessa mik-
ilvægu atvinnugrein og leiða til
lykta þau deilumál sem uppi hafa
verið í greininni. Á grundvelli
vinnu starfshópsins og þeirra
valkosta sem hann bendir á mun
ráðherra síðan ákvarða frekari
tilhögun við endurskoðun fisk-
veiðilöggjafarinnar.
Sjávarútvegur
Björn Valur
Gíslason
alþingismaður
Tillögur hópsins eru að mínu mati
vel rökstuddar, byggðar á haldgóð-
um upplýsingum og til þess fallnar
að ná sátt hjá þjóðinni um þessa
mikilvægu atvinnugrein og leiða til lykta þau deilu-
mál sem uppi hafa verið í greininni.
Það er alveg með ólíkindum hvað fyrverandi og núver-
andi rikisstjórnir eiða miklu af
ónýtu púðri í orkumálaumfjöllun
sinni. Það er eins og stefnuleys-
ið í orkumálum sé algert. Það er
þó helst að núverandi íðnaðarráð-
herra hafi einhverja stefnu og er
hún aðalega fólgin í því að selja
orkuna úr landi, og það er einmitt
það sem hún er byrjuð að fram-
kvæma, því miður.
Að hennar mati er það nægjan-
jegt fyrir íslenska þjóð að orku-
lindirnar sjálfar skuli vera í eigu
Íslendinga. Og hvert ættu orku-
lindirnar svo sem að fara.
Hvaða gagn hafa Íslending-
ar af orkulindum sínum þegar
orkan sjálf er horfin úr landi.
Það er svona álíka og að segja
við innbrotsþjóf sem er staðinn að
verki að hann megi taka öll verð-
mætin úr peningaskápnum svo
lengi sem hann skilji bara skáp-
inn eftir. En lausnin við þessum
vandræðagangi öllum er kanski
fólgin í Írsku leiðinni sem er
einföld, snjöll og áhrifarík. Að
bjóða erlendum fyrirtækjum að
koma til Íslands þar sem stjórn-
Írska
leiðin
Orkumál
Jóhann L.
Helgason
skrifar
Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða veitt 3. desember nk. þeim
sem hafa stuðlað að jafnrétti, sjálfstæðu lífi fatlaðra og
einu samfélagi fyrir alla.
Verðlaun eru veitt í flokki:
1. Einstaklinga
2. Fyrirtækja/stofnana
3. Umfjöllunar/kynninga
Þekkir þú einhvern sem er verðugur
verðlaunahafi?
Sendu okkur tilnefningu fyrir 15. september nk. á þar til
gerðu eyðublaði sem nálgast má á www.obi.is.
Tilnefningar óskast!
Undirbúningsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2010
Bentu á þann ...
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki