Fréttablaðið - 11.09.2010, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 11. september 2010 25
BOLIR
MARGIR LITIR
2.499.-
Eru fleiri sóknarfæri varðandi
lyfin?
„Það er annað mál sem ég hefði
viljað að væri í höfn og það er nýtt
endurgreiðslukerfi í lyfjum, svip-
að því sem tíðkast í Danmörku og
í Færeyjum. Þetta er vinna sem
Guðlaugur Þór hóf, og hefur verið
kennd við nefnd Péturs Blöndal.
Við tókum þann
þráð upp aftur í vor
og ég vonast til þess
að það geti jafnvel
verið komið á nýtt
og réttlátara end-
urgreiðslukerfi um
áramótin. Það væri
til þess að jafna
lífskjörin í land-
inu verulega. Það
er búið að tala um
þetta lengi og nú er
lag. Hópurinn sem
er að vinna þetta
er vonandi á loka-
sprettinum.“
Getur þú skýrt
þetta betur?
„Þá greiða menn
bara fyrir lyf upp að
ákveðnu hámarki,
eftir aldri og efna-
hag, svipað og er í
lækniskostnaðinum
núna þar sem
hámarkið er 27 þús-
und krónur á ári,
fyrir aðra en börn
og lífeyrisþega.
Eftir það greiða menn hlutfall af
því sem er umfram. Markmiðið
er að hlífa þeim sem mest þurfa
á lyfjum að halda við þeim mikla
kostnaði sem því fylgir. Núna fer
lyfjakostnaður frekar eftir sjúk-
dómum en eftir stöðu einstakl-
ingsins. Sumum sjúkdómum fylgja
ókeypis lyf út lífið. En aðrir þurfa
að borga mjög mikið fyrir sín lyf.
Þetta er risamál sem dagaði uppi
í hruninu, en það er mikilvægt að
koma þessu á.“
Það hangir auðvitað margt á
spýtunni hvað varðar lyfjamálin.
„Já, ég er mjög ánægð með að
hafa tekið ákvörðun um að byrja að
bólusetja börn fyrir lungnabólgum
og eyrnabólgum. Þar er um gríð-
arlega stórt for-
varnamál að ræða
og bólusetning-
in mun ná til allra
barna sem fæðast
á næsta ári. Þarna
kemur inn mikil
sýklalyfjanotkun
og ónæmi við þeim
lyfjum. Sýklalyf eru
ekki niðurgreidd á
Íslandi en með nýju
endurgreiðslukerfi
gæti orðið breyting
þar á.“
Er eitthvert eitt
mál sem þú ert sér-
staklega stolt af?
„Já. Réttarbót
fyrir þá sem eru
með skarð í vör eða
tannleysi. Þó ég
hefði ekkert gert
annað, hefði ég
gengið stolt út úr
ráðuneytinu. Þar var
um mikið réttlætis-
mál að ræða sem
menn trúðu ekki,
til dæmis í fjár-
málaráðuneytinu, að væri í þeim
farvegi sem raunin var. Mönnum
kom ekki til hugar að fólk þyrfti
sjálft að borga allan þennan kostn-
að, jafnvel milljónir króna. Já, ég
er stolt af því að hafa breytt þessu
til betri vegar, og svo verð ég að
nefna Heilsuverndarstöðina en
nú hillir undir að hún muni aftur
þjóna upphaflegu hlutverki sínu.“
Ég vonast til þess
að það geti jafn-
vel verið komið á
nýtt og réttlátara
endurgreiðslu-
kerfi um ára-
mótin. Það væri
til þess að jafna
lífskjörin í land-
inu verulega.
Hafðu samband
Skammtímabinding er óverðtryggður innlánsreikningur og spennandi nýjung fyrir þá sem vilja
binda fé sitt í stuttan tíma.
Kynntu þér kosti á , hringdu í síma 444 7000
eða komdu við í næsta útibúi okkar og kynntu þér fjölbreytt úrval innlánsreikninga.
Nýr innlánsreikningur
Binditími er ákveðinn við stofnun reiknings:
3, 6, 9 eða 12 mánuðir.
Lágmarksinnlegg er 500 þúsund krónur og
innstæðan er bundin út binditímann.
Nýjung: Vextir eru allan binditímann.
Að loknum binditímanum greiðist höfuð-
stóllinn út ásamt vöxtum.
Viðskiptavinir sem opna Skammtímabindingu fyrir
21. september fá 5,01% vexti, hvort sem þeir velja
3, 6, 9, eða 12 mánaða binditíma.
ÍS
LE
N
S
K
A
S
IA
.IS
A
R
I
5
1
2
3
2
0
9
/1
0