Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 36
36 11. september 2010 LAUGARDAGUR
Fjallið Kailash er í vesturhluta Tíbet og
tilheyrir tíbeska hluta Himalaya-fjall-
garðsins. Það er álitið heilagt í fjórum
trúarbrögðum, hindúisma, búddisma,
jainisma og bön.
Hindúar telja það bústað Shiva,
guðsins sem berst við hið illa, þar situr
hann ásamt konu sinni Parvati, dóttur
Himalaya. Í búddatrú er fjallið sagt
heimkynni Búdda.
Í grennd við fjallið er uppspretta
fjögurra meginfljóta í Asíu, og líta má
þannig á það sem meginvatnsból
Suður-Asíu. Þetta eru Indus-áin, Sutlej-
áin, Brahmaputra-áin og Karnali, sem
síðar rennur í Gangesfljót. Í goðsögum
hindúa var fjallið talið miðja heimsins
og fljótin fjögur runnu til fjögurra átta,
og skiptu þannig heiminum í fernt.
Á hverju ári fara þúsundir píla-
gríma að fjallinu og ganga í kringum
það, en sú leið er 52 kílómetrar. Í
kjölfar þess að Kínverjar náðu yfir-
ráðum í Tíbet, árið 1950, bönnuðu
þeir indverskum pílagrímum að fara
að fjallinu og leyfðu það ekki á nýjan
leik fyrr en árið 1978. Pílagrímar
koma yfirleitt í gegnum Lhasa, aka
yfir tíbesku hásléttuna að þorpinu
Darcham.
Kailash-fjall er 6.638 metrar á
hæð. Það hefur aldrei verið klifið,
vegna virðingar við helgi fjallsins. Það
er því frægasta háa fjall í heimi sem
aldrei hefur verið reynt að klífa svo
vitað sé.
Heimild www.wikipedia.com
T
olli hefur iðkað búdd-
isma í nokkur ár og
heillast af þeim menn-
ingarheimi sem hann
sprettur úr. Sú hugmynd
að fara í pílagrímaför að
fjallinu Kailash í vesturhluta Tíbet
kviknaði í desember. Þegar hald-
ið var af stað átta mánuðum síðar
voru með í för Bergþór Morthens,
bróðir hans, Arnar Hauksson og Jón
Már Gunnnarsson kvikmyndatöku-
maður. Sá festi ævintýrið á filmu en
heimildarmynd um Tolla er í bígerð
sem stefnt er að að verði lokið að ári
og verður myndin að öllum líkind-
um í samstarfi við RÚV.
En víkjum að ferðinni. „Mig
langaði í ferð sem fullnægði bæði
fjalla- og útivistarþörfinni, og
áhuganum á búddisma,“ segir
Tolli. „Kailash er heilagt fjall
bæði í augum búddista og hind-
úa og reyndar hafa menn trúað á
fjallið í árþúsundir.“
Fjallið er því eins og gefur að
skilja eftirsóttur áfangastaður píla-
gríma. Ekki var hlaupið að því fyrr-
um að komast þangað, Tíbet var
lengi mjög lokað land og þar fyrir
utan erfitt yfirferðar. Greiðasta leið
Vesturlandabúa í dag liggur í gegn-
um Khatmandu, höfuðborg Nepal.
„Pílagrímar fá í dag leyfi til að fara
þessa leið og í kringum hana hefur
sprottið upp ferðamennska. En leið-
in er torsótt. Hún liggur yfir tíbesku
hásléttuna, og þó að Kínverjar séu
að leggja þarna veg þá er hann ekki
tilbúinn.“ Fararskjótinn var gam-
all Landcruiser sem var vitanlega
drekkhlaðinn, sex karlmenn um
borð og útbúnaður til langrar ferð-
ar.
Lögmál breytinganna
Hásléttuvegurinn á eftir að breyta
Tíbet að sögn Tolla. „Þessi vegur
liggur í gegnum landsvæði hirð-
ingja og mun vitanlega hafa gríð-
arleg áhrif á þá. Bæir og borgir
munu styrkjast og allur iðnaður.
Bættari samgöngur eru lykilatriði
til að koma upp meiri iðnaði í Tíbet
eins og Kínverjarnir vita.“ Tíbet
lýtur stjórn Kínverja og segir Tolli
að hann hafi upplifað það sterkt að
landið sé hersetið, þar búi annars
vegar innfæddir og svo Kínverjar.
„Það er í raun alveg ljóst að gamla
Tíbet er að hverfa,“ segir Tolli sem
bendir á að þrátt fyrir eftirsjá eftir
hinu liðna þá sé „eitt lögmálið sem
að Búdda kennir, lögmál breyting-
anna.“ Breytingar séu óhjákvæmi-
legar.
Ekki var haldið stystu leið að
Kailish heldur tóku ferðalangarn-
ir á sig krók að grunnbúðum norð-
urhliðar Everest. „Ég varð að sjá
fjallið þarna megin, ég hef komið
upp í grunnbúðirnar í Nepal, við
suðurhlið fjallsins. Norðanmegin
er það miklu þverhníptara og miklu
færri sem hafa klifið það, 260 en um
3.000 hinum megin. Þarna eru einn-
ig helgir staðir búddista sem gaman
var að skoða, hellar sem spámenn
höfðust í.“
Þúsund kílómetrum vestur af
Lhasa var svo komið að göngunni
í kringum Kailish en pílagrímar
flykkjast þangað til að ganga rétt-
sælis kringum fjallið.
ALLIR MEÐ KÚREKAHATTA
Hirðingjaþjóðin hefur heillast
af kúrekahöttum eins og þessi
drengur ber. Í baksýn má sjá
Landcruiserinn góða.
MINJAGRIPIR Í FJALLSHLÍÐ-
UM Mörg þúsund pílagrímar
ganga í kringum fjallið
Kailash ár hvert og þeim
bjóðast til kaups steinar úr
fjallinu helga sem sjá má.
MYNDIR/TOLLI
BÆNAFÁNAR Alls staðar þar sem vinds gætir hefur bænafánum verið komið upp. VIÐ RÆTUR EVEREST Tolli við hina illkleifu norðurhlið Everest-fjalls.
Fjallið sem ekki má klífa
Lhasa
Kailash
KÍNA
INDLAND
NEPAL
TÍBET
PAKISTAN
BANGLADESH
BÚRMA
BÚTAN
Tolli í Tíbet
Listamaðurinn Tolli er nýkominn að utan.
Áfangastaðurinn var fjallið Kailash í Tíbet,
sem er heilagt í augum bæði búddista og
hindúa. Sigríður Björg Tómasdóttir fékk ferða-
söguna í máli og myndum.