Fréttablaðið - 11.09.2010, Qupperneq 80
40 11. september 2010 LAUGARDAGUR
K
eppnin er kannski ung
en hún er þegar orðin
hluti af hjarta og sál fót-
boltans í Evrópu,“ segir
Michel Platini, lifandi goðsögn í
fótboltaheiminum og forseti knatt-
spyrnusambands Evrópu. Flestir
eru sammála því að stórt fram-
faraskref hafi verið tekið þegar
UEFA-bikarinn endurfæddist sem
Evrópudeildin fyrir leiktímabilið
2009/2010.
Atletico Madrid var fyrsta liðið
til að vinna hina nýju Evrópudeild
þegar félagið sigraði Fulham í vor.
Bikarinn sjálfur hefur verið not-
aður í UEFA-bikarnum frá stofnun
keppninnar. Hann er ekki flókinn
en þó glæsilegur, búinn til úr silfri
en stendur á gylltum fleti. Hann
vegur fimmtán kíló og var búinn
til í Mílanó.
Saga keppninnar
Í apríl 1955 var sett á laggirnar
keppni þar sem sérstök úrvalslið
tíu borga í Evrópu mættust inn-
byrðis. Barcelona, Birmingham,
Kaupmannahöfn, London og Míl-
anó voru þar á meðal keppenda.
Borgarlið Barcelona bar þar sigur
úr býtum í úrslitum gegn London,
8-2 samanlagt í tveimur leikjum
en liðið var nær eingöngu skipað
leikmönnum frá knattspyrnufélag-
inu Barcelona.
Eftir þetta fyrsta ár var ákveð-
ið að breyta fyrirkomulaginu á
þann hátt að félagslið tækju þátt.
Keppnin stækkaði með árunum
og þátttökuliðum fjölgaði. Árið
2971 tók UEFA, knattspyrnusam-
band Evrópu, yfir keppnina og til
varð UEFA-bikarinn. Tottenham
var fyrsta félagið til að vinna þá
keppni.
Lið í Norður-Evrópu einokuðu
nánast bikarinn fyrstu ár keppn-
innar en svo tók Ítalía völdin. Eftir
að Napoli vann bikarinn 1989 vann
ítalskt lið bikarinn í átta af ellefu
tímabilum þar á eftir. Í úrslita-
einvíginu voru leiknir tveir leik-
ir, heima og að heiman. Því fyr-
irkomulagi var breytt 1998 þegar
Inter rúllaði yfir Lazio, 3-0 í
úrslitaleik í París.
Frá síðustu aldamótum unnu
bikarmeistarar hvers lands sér
inn þátttökurétt í keppninni eftir
að Evrópukeppni bikarhafa var
lögð af. Þá fóru einnig lið sem
féllu út úr Meistaradeild Evrópu á
þriðja stigi forkeppninnar og höfn-
uðu í þriðja sæti síns riðils í loka-
keppninni að koma inn í UEFA-
bikarinn.
Evrópudeildin verður til
UEFA-bikarinn var alltaf útslátt-
arkeppni frá fyrsta stigi þar til
tímabilið 2004/2005 þegar riðla-
keppni var fyrst tekin upp. Hún
innihélt 40 lið sem léku hvert fjóra
leiki.
Það var svo fyrir tímabilið
2009/2010 sem ákveðið var að taka
skref upp og UEFA-bikarnum var
breytt í Evrópudeildina. Keppnin
varð þá meira í líkingu við Meist-
aradeild Evrópu, riðlakeppnin
inniheldur 48 lið sem leika í fjög-
urra liða riðlum og mætast heima
og að heiman.
Inter, Juventus og Liverpool
eru sigursælustu félög keppninn-
ar en þau hafa unnið hana þríveg-
is hvert. UEFA hefur eytt miklu
púðri í að stækka þessa keppni og
er á ansi góðri leið, umfang henn-
ar fer ört stækkandi og sér enn
ekki fyrir endann á því ferli.
Evrópudeildin stækkar ört
Gamli UEFA-bikarinn endurfæddist sem Evrópudeildin í knattspyrnu fyrir síðasta tímabil. Elvar Geir Magnússon rennir yfir sögu
keppninnar og skoðar þá þrjá íslensku leikmenn sem verða í eldlínunni á þessu leikári.
FYRSTA KEPPNISTÍMABILIÐ Fernando Torres, hinn skeinuhætti framherji Liverpool, á í höggi við Adil Rami, leikmann Lille, í 16
liða úrslitum Evrópudeildarinnar í mars síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Alls 194 félagslið frá 53 Evrópu-
löndum koma við sögu í Evrópu-
deild UEFA þetta tímabilið. KR og
Fylkir voru fulltrúar Íslands en kom-
ust ekki í gegnum forkeppnina. 48
félög taka svo þátt í riðlakeppninni
en þangað kemst Atletico Madrid
sjálfkrafa sem ríkjandi meistari.
Augu flestra beinast að Liverpool
en enska liðið er talið eiga frekar
auðvelda leið upp úr sínum riðli.
Mótherjarnir eru Steaua Búkarest,
ítalska liðið Napoli og Utrecht frá
Hollandi.
Sigurvegari hvers riðils ásamt
liðinu í öðru sæti kemst svo áfram
í heðfbundna útsláttarkeppni 32
liða. Hinn 18. maí 2011 verður
úrslitaleikurinn leikinn og fer hann
fram að þessu sinni í Dublin á
Írlandi. Hann verður á Aviva-leik-
vanginum en þar sem reglur UEFA
banna að völlurinn sé kallaður
eftir styrktaraðila mun hann vera
kallaður Dublin-Arena í tengslum
við leikinn.
Þessi völlur gekk í gegnum
miklar endurbætur sumarið 2007
og tekur hann 50 þúsund manns
í sæti.
TÍMABILIÐ 2010/2011Íslendingarnir þrír í Evrópudeildinni
Henrik Larsson
Sænski sóknarmaðurinn Henrik
Larsson er markahæsti leikmaður
í sögu keppninnar. Hann hefur þar
nokkuð örugga forystu eftir að hafa
skorað 40 mörk með Feyenoord,
Celtic og Helsingborg.
Giuseppe Bergomi
Ítalski varnarmaðurinn Giuseppe
Bergomi lék allan sinn feril fyrir Inter
en hann er leikjahæsti leikmaður í
sögu UEFA-bikarsins. Hann lék alls
96 leiki í keppninni.
Jürgen Klinsmann
Jürgen Klinsmann er löngu orðin
þýsk goðsögn. Hann er sá leikmaður
sem skorað hefur flest mörk á einu
tímabili í UEFA-bikarnum. Tímabilið
1995/1996 skoraði hann alls fimmt-
án mörk fyrir FC Bayern.
Giovanni Trappatoni
Ítalski þjálfarinn Giovanni Trappa-
toni er sigursælasti þjálfari í sögu
UEFA-bikarsins, lið hans hafa unnið
með 57 leiki. Hann hefur þrívegis
lyft bikarnum og er sá eini sem
hefur unnið allar Evrópukeppnir
félagsliða ásamt því að vinna HM.
Hann hefur stýrt Juventus, Inter, FC
Bayern, Fiorentina, Benfica, Stuttgart
og Salzburg í UEFA-bikarnum.
KRINGLUNNI Sími 568 9400 | www.byggtogbuid.is
Hártækjadagar
Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga.
Sléttujárn, bylgjujárn, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar, hitaburstar,
rakvélar og margt fleira. Vörumerki á borð við Remington og Babyliss.
Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga.
Sléttujárn, bylgjujárn, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar,
hitaburstar, rakvélar bartskerar, krullburstar, hárplokkarar, hitarúllur og margt fleira.
Vörumerki á borð við Remington og Babyliss
Þrír íslenskir leikmenn verða í eld-
línunni í Evrópudeildinni í vetur en
þeir eiga það allir sameiginlegt að
vera hluti af nýjustu kynslóð íslenska
landsliðsins.
Jóhann Berg Guðmundsson
og Kolbeinn Sigþórsson (AZ
Alkmaar)
Þeir Jóhann og Kolbeinn
fóru upp í aðallið hol-
lenska félagsins fyrir
yfirstandandi tímabil
eftir að hafa verið í
unglingaliði þess.
Jóhann er væng-
maður og var ekki
lengi að festa sig
í sessi eftir að
hafa skorað
glæsilegt mark
gegn Gautaborg í
forkeppni Evrópudeildar-
innar í sínum fyrsta mótsleik
fyrir aðalliðið. Jóhann hefur
verið byrjunarliðsmaður en
Kolbeinn, sem er sóknarmaður,
verið að koma inn af bekknum
en mun væntanlega fá fjölda
tækifæra í vetur.
Báðir eru þeir gríðarlega
spennandi leikmenn enda
búa þeir yfir miklum hæfi-
leikum og eiga eftir að verða meðal
okkar fremstu leikmanna um ókomin
ár. Þeir eru báðir fæddir 1990,
Jóhann er uppalinn hjá Breiðabliki en
Kolbeinn hjá Víkingi og vakti fyrst
athygli mjög ungur að aldri.
AZ er í riðli með Dynamo
Kiev, BATE Borisov og FC Sheriff
Rúrik Gíslason (OB)
Rúrik hefur heldur
betur náð að
slá í gegn
í danska
boltanum.
Þessi 22
ára leik-
mað-
ur er
uppalinn
hjá HK í Kópavogi
þar sem hann fór
hamförum í yngri
flokkunum og fór
til Anderlecht í Belgíu
og svo Charlton á
Englandi.
Hann náði ekki
að vinna sér inn sæti í
aðalliði Charlton
en hjólin fóru að
snúast þegar
hann gekk til
liðs við Viborg í Danmörku. Þar
fór hann á kostum og var keyptur
til eins stærsta félags Danmerk-
ur, OB, þar sem hann varð strax
lykilmaður.
OB er í einum skemmtilegasta
riðli Evrópudeildarinnar með
Stuttgart, Getafe og Young Boys.
ÞEIR STANDA UPP ÚR