Fréttablaðið - 11.09.2010, Síða 86
11. september 2010 LAUGARDAGUR46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Mjólkursamsalan hóf í vikunni nýtt
málræktarátak á mjólkurfernum
en þar er lögð áhersla á nýyrði og
nýyrðasmíðar auk þess sem fjallað
er um nýyrði sem hafa náð fótfestu í
málinu. Fernurnar eru myndskreytt-
ar með myndum skopmyndateiknar-
ans Halldórs Baldurssonar en þannig
er vonast til að þær höfði til sem
flestra.
Átakið mun standa yfir næstu tvö
ár og er gert ráð fyrir að teikningar
Halldórs verði prentaðar í 65 millj-
ónum eintaka. Halldór fékk að sögn
alls kyns misskiljanleg nýyrði í hend-
urnar í vor og hefur teiknað í kring-
um sjötíu myndir sem munu birtast
í tveimur skömmtum. „Orðin eru
skemmtilega valin, sum eru þekkt
en önnur ekki,“ segir Halldór. „Það
vita til dæmis allir hvað gemsi er en
svo koma orð eins og spekileki sem
er kannski illskiljanlegra. Það mun
vera íslenska þýðingin á enska orðinu
braindrain sem gæti meðal annars
vísað til þess þegar gáfur eru flutt-
ar úr landi. Þá eru þarna kunnugleg
orð eins og dömpa og blogg en líka orð
eins og endurfinning, sem er þýðing á
hugtakinu déjà vu, kitla sem er þýð-
ing á auglýsinga-teaser og ópera sem
er íslenska orðið yfir au pair.“
Halldór segist búast við því að
mörg orðanna verði lífseig enda mjólk
á borðum landsmanna alla daga. Það
sama á við um Fréttablaðið þar sem
myndir Halldórs eru birtar á leiðara-
síðu á hverjum degi. „Ég er víst að
verða fastagestur við morgunverðar-
borð flestra landsmanna og fer þetta
eiginlega að jaðra við ósvífni,“ segir
Halldór og hlær.
Með málræktarátakinu vill Mjólk-
ursamsalan hvetja landsmenn til að
nota íslensk orð í stað erlendra og
vekja jafnframt áhuga á nýyrðasmíð-
um. Hún hefur frá árinu 1994 beitt sér
fyrir eflingu móðurmálsins á grund-
velli samstarfssamnings við Íslenska
málnefnd og þykja mjólkurfernur til-
valinn vettvangur til að koma skila-
boðum á framfæri, enda koma þær
fyrir augu þúsunda manna daglega.
Á heimasíðunni www.ms.is verður
samhliða átakinu hægt að kjósa uppá-
halds nýyrðin og koma með ábending-
ar um önnur nýyrði en dregið verð-
ur úr innsendum hugmyndum á degi
íslenskrar tungu hinn 16. nóvember
næstkomandi. vera@frettabladid.is
TVEGGJA ÁRA MÁLRÆKTARÁTAK MJÓLKURSAMSÖLUNNAR: FARIÐ AF STAÐ
Fastagestur við morgunverð-
arborð flestra landsmanna
SKOPLEGAR HLIÐAR NÝIRÐA Gert er ráð fyrir því að myndir Halldórs verði prentaðar í um 65 milljónum eintaka næstu tvö árin.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra bróður
og frænda,
Ragnars Vilhelms
Bernhöft
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi.
F.h. aðstandenda,
Kristín Bernhöft Pétur Orri Þórðarson.
Heimilisiðnaðarfélag
Íslands verður með opið hús
að Nethyl 2e í dag frá klukk-
an 13 til 15.
Þar munu meðal annars
kennarar Heimilisiðnaðar-
skólans kynna námskeið
vetrarins, svo sem faldbún-
inganámskeið, svuntuvefn-
að, jurtalitun, hekl og prjón
og fleira.
Heimilisiðnaðarafélagið
var stofnað árið 1913 og
er hlutverk þess að vernda
þjóðlegan íslenskan heimil-
isiðnað, auka hann og efla,
auk þess að stuðla að vönd-
un heimilisiðnaðarins og
fegurð. Jafnframt er það
markmið félagsins að vekja
áhuga landsmanna á því að
framleiða fallega og nyt-
sama hluti, sem hæfa kröf-
um nýrra tíma án þess þó
að gleyma tengslum sínum
við menningararfinn.
Jafnframt heldur félagið
úti verslun að Nethyl 2e í
Reykjavík, en þar eru einn-
ig námskeið félagsins hald-
in. Félagið gefur svo út rit
á hverju ári sem ber heit-
ið Hug og hönd sem flytur
fréttur af starfinu og kynn-
ir einnig ýmiss konar heim-
ilisiðnað og fróðleik honum
tengdan.
Allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, enda
allir boðnir velkomnir til að
kynna sér námskeið félags-
ins og dreypa á kaffi í leið-
inni. - jbá
Veita innsýn í
þjóðlegar hefðir
MENNINGARARFUR Á nám-
skeiðsskrá Heimilisiðnaraskólans
er meðal annars hægt að skrá
sig í námskeið í því að sauma
þjóðbúning kvenna og karla.
Skógræktarfélag Eyfirðinga efnir til mál-
þings í Kjarna, húsi Náttúrulækningafélags
Akureyrar, í dag frá klukkan 13.30 til 17.
Útivera og hreyfing í skjóli grænna skóga
er yfirskrift málþingsins, þar sem fjall-
að verður um mikilvægi skóga í þéttbýli
og verður viðfangsefnið nálgast með ýmsu
móti.
Meðal fyrirlesara eru Eiríkur Björn
Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, sem
mun tala um skóga út frá tækifærum til fjöl-
breyttrar útivistar, Magne Kvam hreyfi-
hönnunarstjóri fjallar um fjallahjólabrautir
og aðstöðu til þeirrar útivistar og Anna Guð-
mundsdóttir, aðstoðarskólastjóri Hrafnagils-
skóla, flytur erindi um útikennslu í skógi en
þónokkur aukning hefur verið á að grunn-
skólar bjóði upp á kennslu utandyra þar sem
þess gefst kostur.
Að framsögum loknum verða umræður.
Fundarstjóri er Pétur Halldórsson dagskrár-
gerðarmaður.
Allir eru velkomnir og ekkert þátttöku-
gjald. - jbá
Í skjóli grænna skóga
TÆKIFÆRIN LEYNAST VÍÐA Fjallað
verður um nauðsyn skóga í þétt-
býli á málþinginu og möguleik-
ana sem í þeim eru fólgnir.
75
Þennan dag árið 1976 var Fjölbrautaskóli
Suðurnesja settur í fyrsta sinn. Skólinn, sem
er til húsa að Sunnubraut 36 í Keflavík, var
stofnaður og rekinn í samvinnu sjö sveitar-
félaga og ríkisins. hann varð til við samruna
Iðnskóla Suðurnesja, framhaldsdeilda Gagn-
fræðaskólans í Keflavík og öldungadeildar
Gagnfræðaskólans í Keflavík. Hann fékk til
umráða húsnæði Iðnskólans sem þá þegar var
allt of lítið.
Strax á öðru starfsári skólans var farið að
byggja ofan á húsið og hefur verið byggt við
það nokkrum sinnum auk þess sem gerðar
hafa verið gagngerðar endurbætur á eldra
húsnæðinu. Nú er skólinn búinn nemenda-
mötuneyti, vönduðum raungreinakennslustof-
um og nýrri kennaraaðstöðu svo dæmi séu
nefnd.
Fyrsti skólastjóri skólans var íslenskufræð-
ingurinn og Njálusérfræðingurinn Jón Böðv-
arsson en núverandi skólastjóri heitir Kristján
Ásmundsson.
ÞETTA GERÐIST: 11. SEPTEMBER ÁRIÐ 1976
Fjölbrautaskóli Suðurnesja settur
EISTNESKA TÓNSKÁLDIÐ ARVO PÄRT er 75 ára í dag
„Mannsröddin er fullkomnasta hljóðfæri í heimi.“
Merkisatburðir
1953 Fjórða ríkisstjórn Ólafs Thors tekur við völdum. Hún sat í þrjú
ár.
1976 Farþegaþota frá TWA, sem hafði verið rænt, hefur viðkomu á
Keflavíkurflugvelli til þess að taka eldsneyti. Vélin flaug síðan
til Parísar þar sem ræningjarnir gáfust upp.
2001 Hryðjuverkamennirnir fljúga þremur breiðþotum á Tvíbura-
turnana í New York og Pentagon í Virginíu. Fjórða þotan, sem
talið er að hafi verið rænt, hrapaði til jarðar í Pennsylvaníu.
2003 Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, deyr á sjúkrahúsi
daginn eftir að hún var stungin í verslunarmiðstöð.