Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 3
MORGUNN
73
Fundur spíritista
á Norðurlöndum.
haldinn í Kaupmannahöfn haustið 1946.
Fundarboð og fundarsókn.
Dagana 1.—6 september síðastliðinn var háður í Kaup-
mannahöfn fundur spiritista á Norðurlöndum. Til fundar-
ins boðaði „Köbenhavns Spiritist Alliance“, sem er sam-
band hinna mörgu hópa eða safnaða spíritista í Kaup-
mannahöfn. Forseti þessa sambands er Alfred Nielsen,
aldraður maður, sem hefir um mjög langt skeið staðið í
fylkingarbrjósti hreyfingarinnar í Kaupmannahöfn, ritað
allmargar bækur og smærri rit um málefnið og stýrir litlu
félagsblaði, ,,Budbringeren“, sem gefið er út á vegum
spíritista þar i borg. — En hvatamaður mótsins og lífið
og sálin í störfum þess var hinn kunni og stórmerki miðill,
Einar Nielsen. Heimili hans stóð opið öllum gestum móts-
ins. Hann hafði boð inni hvað eftir annað. Þar voru háðir
hinir fámennari umræðufundir, og þar voru haldnir aliir
merkustu miðilsfundirnir á vegum mótsins.
Svo hafði verið til ætlast, að þátttaka í mótinu fengist
frá öllum Norðurlöndum. Þó fór svo, að frá Noregi kom
enginn fulltrúi. Virðist málefnið skorta forustu þar í landi,
síðan hinn merki oddviti þess, Bengt Thorstenson, leið. —
Frá hinum löndunum öllum komu fulltrúar, þó aðeins væri
einn frá hvoru, Islandi og Finnlandi. Frá Svíþjóð komu
tæpur tugur gesta. Hafði þó verið gert ráð fyrir meiri
þátttöku þaðan, en forföll bönnuðu á siðustu stundu. Danir
voru fjölmennastir á mótinu.