Morgunn - 01.12.1946, Page 7
MORGUNN
77
fróðleg erindi Harald Ahlgren og Ernst Broberg. H. Ahl-
gren sagði frá för þeirra hjóna til Englands árið 1939, en
þangað fóru þau og dvöldust þar um mánaðartíma til þess
að kynnast enskum miðlum. — Ernst Broberg sagði frá
skyggni sinni og reynslu frá barndómi. Hann hélt því
fram, að hann væri og hefði jafnan verið skyggn á núttru-
anda, svo sem blómálfa, heimilisálfa o. s. frv.
Á þessum fundum fóru fram skyggnilýsingar þeirra
Einars Nielsen og Emilie Nielsen.
Þessar tvær siðari almennu samkomur fóru fram í Dan-
ielskirkjunni við Dosseringen, en þá kirkju eiga spíritistar
í Kaupmannahöfn. Miðvikudagssamkoman var hin síðari
almenna samkoma, og að henni lokinni var erlendum gest-
um og starfsliði fundarins boðið til kaffidrykkju í kjallara-
sal kirkjunnar. Þar voru flutt stutt lcveðjuávörp, og tóku
margir hinna erlendu gesta til máls. Þökkuðu þeir Dönum
ástúðlegar móttökur og allan fyrirbeina. En Danir þökk-
uðu norrænum frændum sínum komuna og óskuðu þeim
fararheilla, þjóðum þeirra blessunar og sameiginlegu mál-
efni allra viðstaddra góðs gengis á komandi árum.
Hér vil eg segja það, að eg var mjög snortinn af þeim
einlæga bróðuranda, sem ríkti á þessu móti. Má svo til
orða talca, að hver vildi þar annan að sér vefja. Þetta
var mér aukin sönnun þess, sem ég hafði áður vitað, að
spíritisminn er sannur farvegur kærleikans á þessari jörð.
Tilfinning spíritista fyrir samskiptum og samfélagi er
ekki bundin við hverful augnablik daglegs lífs, né heldur
við jarðlífið sjálft. Hún á sér ríka framvissu. Þeir, sem
í dag kveðjast, vita með vissu, að lokinn fundur verður
aldrei hinn síðasti.
Fundir með miðlum.
Samhliða hinum almennu fundum mótsins og öðrum
fámennari fóru fram fundir með miðlum fimm daga eða
frá mánudegi til föstudags. Þó fórust fyrir fundir tveggja
miðla vegna sjúkdóms og forfalla, en það voru miðlarnir