Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 8
78
M O R G U N N
Berndt Zenoff, líkamningamiðill frá Linköbing í Svíþjóð,
og skyggnimiðillinn frú Mimi Severensen, Maglekildevej
16 í Kaupmannahöfn. Þessir miðlar störfuðu í sambandi
við mótið: Einar Nielsen, Jul. Thomsensgade 20 Khöfn,
líkamninga- og skyggnimiðill, Ernst Broberg, raddmiðill
frá Stokkhólmi, frú Anna Melloni, Soborghusallé 4 Khöfn,
Telikinesemiðill, þ. e. hreyfingar og hljóðmerki, og Eimilie
Nielsen, skyggnimiðill, Ravnsborggade 6 Khöfn. Skal þess
nú freistað að segja nokkuðr frá miðlum þessum og því,
sem fram kom á fundum þeirra, að því leyti sem eg átti
kost þess að kynnast því af eigin raun.
Miðittinn Emilie Nielsen.
Frú Emilie Nielsen er kunnur miðill í Danmörku. Hún
er nú nokkuð við aldur og á langan starfsferil að baki. Hún
er ,,trance“- og skyggnimiðill. Skyggnilýsingar hennar á
hinum almennu samkomum virtust merkilegar, ef það má
ráða af undirtektum fólksins, sem lýsingarnar fékk, víðs
vegar um salinn. Um það get eg þó ekki frekar borið. Eg
var á einkafundi hjá þessari konu. Mjög fátt af því, sem
eg fékk þar, var verulega sannfærandi. Og þegar eg bar
þann fund saman við aðra fundi, sem eg hefi átt kost á
hjá miðlunum Andrési Böðvarssyni Guðrúnu Guðmunds-
dóttur frá Berjanesi og Hafsteini Björnssyni, þá þótti mér
ekki mikið til hans koma. 1 þessu getur þó sízt falist neinn
dómur um miðilshæfileika frú Nielsen, en hún er, eins
og áður var sagt, mjög kunn í Danmörku fyrir starf sitt.
-Miðillinn Anna Melloni.
Fyrirbærin, sem gerast hjá þessum miðli, nefnast á út-
lendu máli „Telikinese", en það eru hreyfingar, ,högg og
hljóðmerki. Frú Melloni mun vera um eða lítið yfir fimmt-
ugt. Hún er ekki einungis kunn í Danmörku, heldur miklu
víðar, því hún hefir, ásamt eiginmanni sínum, ferðast tals-
vert og fyrirbærin verið rannsökuð af vísindamönnum,
sem hafa vottað það, að þau gætu ekki orðið skýrð út frá
veitt. Síðan biður hann um að lóðin í lokuðum glerkassan-