Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 10
80
MORGUNN
um séu hreyfð, fyrst annað, síðan hitt. Allt gengur eftir
því, sem um er beðið. Þar næst biður hann um að tiltek-
inn lampi á litla borðinu sé látinn lýsa, og vogarstöngin
tekur að sveiflast, ofur hægt fyrst, en hreyfingin eykst,
unz samband myndast og á lampanum kviknar. óskum
gestanna í þessu efni er fullnægt, ekki siður en húsbónd-
ans, og sífellt er skift um lampa, eftir því sem um er
beðið. Húsbóndinn spyr Dr. Lazarus, hvort hann muni
geta leikið á hljóðfærið núna. Hann vill reyna. Hljóð-
færið er margstrengjað (Zitar). Hann lætur það undir
borðið, þar sem fætur fundarmanna ná ekki til. Eftir litla
stund heyrist brakhljóð slíkt, sem verður, er strengir þessa
hljóðfæris eru stilltir. Þar næst er gripið í streng og síð-
an 1 annan. Húsbóndinn spyr, hvort hann geti strokið yfir
alla strengina. Alllöng stund líður, unz strokið er kröftug-
lega yfir alla strengina og þeir óma samtímis. — Síðan
grípur frú Melloni blýant og tekur að skrifa. Hún byrj-
ar neðst á blaði og skrifar afarhratt upp eftir því. Engin
leið er að ráða í, hvað á blaðið kemur. Dr. Lazarus skrif-
ar spegilskrift. Þegar við berum hin skrifuðu blöð upp
við birtuna, getum við lesið gegnum þau. Þannig rabbar
Dr. Lazarus við okkur góða stund og svarar spurningum
okkar, og við fáurn öll með okkur skrifuð blöð. Síðan
kveðjum við Dr. Lazarus og hin alúðlegu hjón og þökkum
fyrir góða skemmtun.
MiSiTlinn Ernst Bröberg.
Eins og fyrr var sagt, kveðst Emst Broberg hafa verið
skyggn frá barnæsku. Skyggni hans er ekki einungis sú
hin nokkuð algenga, að menn sjái svipi og framliðna menn.
Hann telur sig einnig skyggnan á náttúruanda ýmis kon-
ar. Verður hér hvorugt gert, að rengja það né staðfesta.
Maðurinn býður af sér afargóðan þokka, og enginn, sem
tekur í hönd hans og horfir í augu hans, getur hneigst til
að trúa því, að hann sé maður óheill og fari með ósann-
indi. Félagi hans, Charles Aldor, hefir verið leiðtogi hans
J