Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 20
90
MORGUNN
lagi hafa þeir gert spíritismann að kirkjulegri hreyfingu,
án þess að hafa vígða presta eða hlíta dönskum kirkjusið-
um. Þetta síðamefnda mun vera meginorsök þeirrar gíf-
urlegu andúðar og mótspyrnu, sem hreyfingin á að mæta
af hálfu prestastéttarinnar þar í landi. Og mjög verður á
annan hátt torskýrður hinn megni fjandskapur danskra
blaða í garð spíritista. Með nálega engum undantekning-
um grípa þau hvert tækifæri, sem gefst, til þess að sverta
málstað þeirra, birta upplognar óhróðurssögur um svik og
annað það, er horfir til tortryggni, en neita staðfastlega
að birta nokkuð það, er miðar til leiðréttinga og máls-
bóta. Og löggjöf sú, er í Danmörku helzt snertir málstað
spíritista., myndi sóma sér betur í lagabálkum galdra-
brennualdarinnar heldur en í nútímalöggjöf. Þess vegna
eru danskir lygarar, sem bera óhróður á spíritista, ávallt
sýknaðir. Verð eg hér að segja það, að eg hlaut að þessu
leyti mikla andstyggð á danskri þröngsýni. — Kom það
mjög fram í ræðum Dana á þessu móti, að þeir þykjast
eiga um sárt að binda og hugsa sér þá eina leið að efla
samtök sín, unz þeir geti orðið viðurkenndir, sem sérstök
kirkjudeild og öðlast réttindi samkvæmt því.
Þessa kynning af reynslu Dana opnaði augu mín fyr-
ir því, hversu þeim Einari H. Kvaran og Haraldi Níels-
syni, sem mótuðu starf og stefnu íslenzkra spíritista, hef-
ir farist viturlega og giftusamlega. Islenzkir spíritistar
hafa enga tilhneigingu til að einangra sig né snúa til
neins konar öfga. Starf þeirra er kyrrlát viðleitni að veita
hverjum þeim, sem leitar, sannanir og ef verða mætti lif-
andi sannfæringu fyrir áframhaldi hins persónulega lífs
einstaklingsins. Sú sannfæring veitir hverjum manni nýja
og alvarlega útsýn yfir lífið, kennir honum að leggja hóf-
legt mat á lystisemdir og eftirsóknarefni þessa lífs, án
þess að fjarlægja hann skyldum og starfi. Þessi hófsemi
hefir áunnið íslenzkum spíritistum samúð og fylgi margra
presta þjóðkirkjunnar og orkað því að setja blæ spíritist-
iskrar sannfæringar á kenningar þeirra. Enda mun ís-