Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Síða 27

Morgunn - 01.12.1946, Síða 27
MORGUNN 97 heldur ekki vart. Og þótt bæði þessi einkenni kæmu í Ijós, náðist enginn árangur, ef eitthvað varð til þess að dreifa hugsunum mínum frá tilrauninni. Og því má skjóta inn hér, að finni ég ekki með sjálfum mér, að ég geti veitt sjúklingnum hjálp, þá er mér ekki unnt að verða honum að neinu liði, virðist skorta alla orku til þess. Þetta er eitt af þeim fyrirbrigðum undirvitundarinnar, sem játað skal, að ég fæ ekki gert mér skiljanlega grein fyrir. Annað, er mér þótti kynlegt við þessar fyrstu tilraunir mínar, var, hve þreyttur ég var að þeim loknum. Fyllri þekking á þessum málum hefur sannfært mig um, að mátt- ur sá, er þessu kom til leiðar, hafi verið segulmagn. Ég virtist því vera að gefa af segulorku míns eigin líkama, er sennilega hefur safnast fyrir í hreyfitaugahnýtunum. 1 sambandi við þetta skal þegar tekið fram, að dáleiðsla og segulmagnsorka eigi ekkert sameiginlegt, þótt einatt virð- ist, að svo geti verið. Að svo miklu leyti sem þekking mín nú hrekkur til hef ég komist að raun um, að þegar sjúkl- ingurinn hvílir í djúpum dásvefni og ég held hönd minni yfir einhverjum líkamshluta hans án þess að snerta hann eða beina hugsanaáhrifum til hans, verður einatt vart á- kveðinna hreyfinga i þeim líkamshluta, er ég held hönd minni yfir, og er mér þá næsta auðvelt að láta hann halla sér til hægri eða vinstri, aftur á bak eða áfram með hreyf- mgu handa minna einni. Samtímis því, er ég komst að raun um, að ég var áður- greindum hæfileikum búinn, olli sú uppgötvun mér nokkr- um heilabrotum og talsverðum áhyggjum. Ég hafði alltaf átt ríka námslöngun. Mannslíkaminn var mér alltaf hugð- arefni. En jafnframt átti þráin eftir þekkingu og skiln- ingi á hinu ókunna og óskiljanlega sterk ítök í huga min- Um, engu minni en efnisvísindin. Læknisfræðin og guð- fræðin toguðust á um mig. Faðir minn hvatti mig til að lesa læknisfræði. Að athuguðu máli valdi ég guðfræðina. En hvernig færi þá um þessa hæfileika mína? Var mér unnt að rækta þá og hagnýta í þágu mannanna? En var ekki 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.