Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 38
108
MORGUNN
verið sannað með tilraunum. Oss er ekki leyfilegt að gera
tilraunir með það fyrirbrigði lífsins, er vér nefnum dauða,
en hví skyldi dauðinn, sem í öllu öðru hlýðir óbreytilegum
lögmálum lífsins, vera eina undantekningin í þessu sam-
bandi? Ef persónuleiki undirvitundar vorrar getur losað sig
úr tengslum við jarðneskan líkama vorn og þorfið yfir til
eigin heimkynna meðan Pétur eða Signý hvílir í dásvefni,
hvað getur þá hindrað hann í för sinni þangað, er dauðinn
í stað dásvefnsins þrýstir innsigli sínu á jarðneskan líkama
vorn? En — þannig er starfsemi hans varið.
öll vitund er aðeins broteind alheimsvitundarinnar, en
kjarni hennar er guð. Herbert Spencer segir á einum stað:
„Orka sú, sem opinberast í alheiminum umhverfis oss, er
sama eðlis og lind vors eigin vitundarlífs“. Prófessor Mac
Donald talar á einum stað um augað, sem er til á undan
fæðingunni og sýnir, að heilinn hefur orðið fyrir leyndar-
dómsfullum, ósýnilegum en óhrekjanlegum samræmisáhrif-
um“.
En hvaðan stafa þau? Eiga þessi samræmisáhrif upptök
sín í vitundarheimi, þar sem rúm og tími er ekki til, eins og
þetta kemur oss fyrir sjónir. Mörg dæmi mætti nefna, er
sanna, að heili mannsins og vitund hans eru ekki ævinlega
í sambandstengslum. Þess vegna er til sá möguleiki, að rétt-
mætt sé að skipa vitund mannsins á bekk með ytri áhrif-
um, er aðeins verki á heilann, þegar hann er í sérstöku
starfhæfu ástandi. Svo mikið hefur lífeðlisfræðin þegar gert
Ijóst. Dáleiðsluvísindin gera oss kleift að skyggnast lengra.
Hugsið t. d. um þráðlausu skeytin. Þau byggjast á þekk-
ingu á sérstökum orkusveiflum, er berast fram og aftur um
geimdjúpið, gegnum hvað sem fyrir er. Og þessar orkuöld-
ur hafa verið til frá upphafi og ekki valdið neinum sýni-
legum áhrifum fyrr en mönnum tókst að búa til tæki, er
reyndist hæft til að veita þeim móttöku. Máske þetta geti
átt við um heilann. Ef til vill er hann aöeins sérstaklega
tilbúið tæki til að nema áhrif og skilaboð frá umræddri al-
heimsvitund. Dáleiðsluvísindin hafa í miklu fyllra skilningi