Morgunn - 01.12.1946, Qupperneq 40
110
MORGUNN
þekkingu á hinum spíritistisku fyrirbrigðum. Ég læt það
eftir þeim, sem mér eru fróðari".
„Einu sinni kom maður einn til mín með konu sína, er
hann kvað þjást af taugaveiklun og bað mig að veita henni
hjálp. Hún var sezt í stólinn og ég ætlaði að fara að skýra
fyrir henni, hve auðvelt væri að falla í dásvefn, en þá gerð-
ist nokkuð óvænt. 1 stað þess að falla í rólegan og eðlilegan
svefn, var sem hún stirðnaði öll, frussaði og hvæsti, veif-
aði handleggjunum og bablaði eitthvað, sem ég skildi ekki,
og mér var ekki unnt að róa hana. Ég beið átekta og von-
aði, að þetta flog mundi líða hjá, en hafði aldrei rekið mig
á slíkt fyrr. Ég hafði ekki náð neinni stjórn á henni eða
gefið henni neinar skipanir. Ég sneri mér að eiginmanni
hennar. Hvernig stendur á þessum ólátum í manneskjunni,
ég ræð ekki við þetta, getið þér gefið mér einhverja skýr-
ingu á þessu? Hann brosti. Hún verður búin að jafna sig
eftir tvær mínútur. Jæja, hver djöfullinn hefur hlaupið í
hana, getið þér ekki hjálpað mér til að reka þennan skratta
út af henni? Hann varð hálfsmeikur við orð mín og hálf-
hvíslaði: Þei, þei, hann er enginn djöfull. Við hefðum átt að
segja yður áður, að við hjónin erum spíritistar og stjórn-
andi hennar er Japani. Hann kemur alltaf svona. Hvort sem
hann er djöfull eða djöfull ekki, er hann auðsjáanlega fjand-
samlegur mér, komið honum á brott. Hann fór nú til konu
sinnar, gerði ýmsar hreyfingar með höndunum framan við
andlit hennar og yfir höfðinu og skipaði honum að hafa sig
á brott. Auðsjáanlega höfðu tiltektir hans tilætluð áhrif,
því að konan róaðist brátt og varð eins og hún átti að sér.
Sennilega var þessi fylgivera hennar mér fjandsamleg af
einhverjum ástæðum, en annars er mér þetta atvik með
öllu óskiljanlegt. Ég hef rætt um þetta við ýmsa nafnkunna
spíritista, en þeir hafa ekki talið sér fært að benda á neina
skýringu á þessu einkennilega fyrirbrigði. Stuttu á eftir
báðu þau mig aftur aðstoðar við taugaveiklun hennar, en
ég neitaði að verða við þeirri ósk.
öðru sinni gerðist atvik í sambandi við tilraunir mínar,