Morgunn - 01.12.1946, Side 76
146
MORGUNN
miklu nauðsyn mannanna — og vil þar enn við bæta.
Norska skáldið Olav Gullvaag gerði í bréfkaflanum, sem
ég birti nýlega í Alþbl., ekki beinlínis ráð fyrir allsherjar
tortímingu í sambandi við glæfraspilið með ýms þau öfl til
velfarnaðar eða dauða, sem mannkynið hefur nú ráð yfir,
en Gullvaag er maður, sem hefur ávalt látið sig miklu varða
menningarhagi og andlega velferð þjóðar sinnar og vann
störf sín með sigð dauðans yfir höfði sér á hernámsár-
unum. Og Gullvaag sagði:
„Það er min ófrávíkjanleg skoðun, að lýðræðisþjóðfé-
lag standi og falli með hinni yfirskilvitlegu SAMVIZKU,
sem yfirleitt svífur í lausu lofti, ef við viðurkennum ekki
neitt allsherjarmáttarvald, sem sé öllum mönnum æðra.
Við getum valið um viðurkenningu slíks máttarvalds og
einræðisins með heraga og lögrgelueftirliti á öllum svið-
um. Annað hvort verðurn við að kjósa oJckur mamdegt
samfélag í lotningu fyrir og í þjónustusamlegri lilýðni viö
þann ANDA, sem sé öllum ÖNDUM æðri, eöa mauraþjóö-
félag, þar sem einstaJdingarnir séu eklá annaö en eitt af
núdunum aftan við hinn mikla 1 í tölu.
Ég sagði, að ég vildi í sambandi við þessa bók benda á
hina miklu nauðsyn, þá, að hver og einn, sem vill maður
vera, athugi, íhugi, hvernig nú er háttað horfum manna
og menningar. Góðgjarnlegri líkingu er ekki unnt að nota
um mannkynið eins og nú er ástatt, en að líkja því við
böm, sem fundið hafa sagir og eru stödd í húsi, þar sem
þungu þaki er þannig fyrir komið, að það hvílir á trjá-
viðarstoðum. Svo vill hvert barnið ráða þarna sem mestu.
Þeim misfellur, börnunum, og svo standa þau reiðubúin
til að saga sundur stoðirnar, og ekki annað sýnna en að
þau muni gera það, því að jafnvel gerðar sættir eru að-
eins yfirskin, einkum hjá þeim stæi’stu. Afleiðingin: Þak~
iö dettur niður yfir þau öll.
Væri svo ekki æskilegt, að einhver máttug rödd næði
eyrum þeirra — eða að einhver máttur þeim meiri, ein-