Morgunn - 01.06.1956, Síða 10
4
MORGUNN
inn Fred Archer átti við hann fáum árum fyrr en hann
dó, sýnir, að fram í háa elli hafði hann varðveitt óbreytta
sannfæringu sína um sannleiksgildi spíritismans og þýð-
ingu sálarrannsóknanna. Eftir hálfa öld kvaðst hinn hári
öldungur enn vera jafnsannfærður um, að framhaldslífið
væri sönnuð staðreynd og að samband við framliðna menn
væri mögulegt. Hann spáði því, að þeir tímar hlytu að
koma, að kirkjan tæki gild sönnunargögn sálarrannsókn-
anna fyrir framhaldslífi. Fyrir löngu síðan átti þessi víð-
kunni kirkjumaður náið samstarf við tvo af kunnustu
brautryðjendum sálarrannsóknanna, þá Sir William Bar-
rett og Sir Oliver Lodge.
Nýlega var Cuthbert Bardsley kjörinn til biskups í Co-
ventry-biskupsdæmi í Bretlandi. Hann er 48 ára gamall
og nýtur þeirrar virðingar innan biskupakirkjunnar, sem
biskupskjör hans ber vitni um. Nýkjörni
annamrnar ]ýgj.j y£jr þvþ þegar arjg 1952,
eru komnar. . . „ *
að hann væri sannfærður um, að sannanir
fyrir framhaldslífi mannssálarinnar væru þegar komnar
fyrir atbeina sálarrannsóknanna. Hann sagði, að vel
þyrfti og vandlega að þessum sönnunum að leita innan
bókmennta sálarrannsóknanna, en þær væru komnar, væru
til. Hann kvaðst líta á dauðann eins og dyr úr einu her-
bergi í annað. Hann lýsti enn yfir þessum skoðunum sín-
um í brezka stórblaðinu Daily Express árið 1954 og sagði
þá ennfremur frá dæmum, sem sannfærðu hann um sálræn-
ar lækningar. f lúterskum kirkjum frænda vorra á Norður-
löndum mundi ekki koma til greina, að fela manni með
slíkar skoðanir biskupsdóm. Brezka biskupakirkjan er aft-
ur á móti ekkert hrædd við það. Raunar er meginstraum-
ur hennar æði íhaldsamur á trúarskoðanir, en jafnvel
íhaldsamir guðfræðingar margir innan þeirrar kirkju-
deildar eru víðsýnni menn en annars staðar.
Á liðnum vetri kom til Reykjavíkur frægur þýzkur guð-
fræðingur og lærdómsmaður, dr. Fr. Heiler, prófessor við
háskólann í Marburg í Þýzkalandi. Hann var á heimleið