Morgunn


Morgunn - 01.06.1956, Page 18

Morgunn - 01.06.1956, Page 18
12 MORGUNN færar um að taka á sig- annarra byrðar, og sem ekki hagg- ast við þá strauma vanþroska og kærleiksskorts, sem legg- ur frá dimmu stöðunum. Ég hefi oft séð þessar geisla- verur í kærleika sínum kljúfa rökkrið, og veita varanlegri birtu að einhverri sál, þegar stundin var komin, að hún þráði af öllu hjarta æðra líf. Oftast virðast mér þetta vera ástvinir hinna vansælu sálna, tengdir þeim kærleiks- og skyldleikaböndum, en þó ekki alltaf. En það hefi ég alltaf séð undantekningarlaust, að eftir því sem björtu verurnar færast neðar, þá er eins og birtan, sem fylgir þeim og um- lykur þær, þjappist saman meira og meira, unz hún verð- ur að sterku, skínandi ljósi, ofarlega á brjóstinu. Ef til vill fá þær frá þessari birtuuppsprettu kraft til þess að haldast við á hinum lægri sviðum. Ekki get ég séð, að ver- urnar niðri verði varar við návist kærleikssálnanna af birtunni einni saman, sem þær færa með sér, heldur er eins og dálítill tími þurfi að líða, þar til áhrifin frá æðri veröld fara að segja til sín. Allar eru þessar björtu verur formfagrar, og hvílir yfir þeim ólýsanlegur yndisþokki og ljómi, og kærleikur, sem vermir inn að hjartarótum. Mjög er misjafnt, hverju þær fá áorkað hverju sinni, en út í það skal ekki farið lengra hér. Að hve miklu leyti þessi reynsla mín er táknræn og að hve miklu leyti hún er raunveruleg í þrengri merkingu, get ég ekki sagt um, en að þar er að verki einhver æðri veruleiki, ér fyrir mér fullvissa, sem ekkert fær haggað, og þegar allt kemur til alls, hvað er þá táknrænt og hvað er veruleiki ? 1 raun og veru er allur heimurinn tákn, tákn guðs, þess æðsta veruleika, sem við erum ekki fær um að sjá augliti til auglitis, hvað sem verða kann síðar, því eins og postulinn segir, þá sjáum við nú eins og í skuggsjá eða ráðgátu, en ekki er fyrir það að synja, að við kunnum síð- ar að þekkja, eins og vér erum gjörþekktir, eins og sami postuli segir. En það er dýrðlegt að vita til þess, að kærleikur guðs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.