Morgunn


Morgunn - 01.06.1956, Side 30

Morgunn - 01.06.1956, Side 30
24 MOEGUNN aði hún, prófaði sjálfa sig og leitaði þess, sem Guði kynni að vera andstætt í fari hennar. Eftir eins árs fjarveru kom hún í klaustrið aftur, og var þá hrum að sjá, eins og gömul kona. En hún hló og gerði að gamni sínu, þótt hún gæti ekki gengið upprétt. Hún var þá rétt um tvítugt. I átta mánuði var hún sjúkl- ingur í sjúkrastofu klaustursins, en þá lét hún flytja sig í klefa sinn, svo að hún gæti fengið næði til guðrækniiðk- ana sinna og þeirrar andlegu þjálfunar, sem hún vildi stunda. í löngum veikindum hafði hún orðið að hugsa mikið um sjálfa sig, til að ná heilsu. Nú vildi hún fá næði til að hugsa eingöngu um Guð og vilja hans. Með leiftrandi andríki og sálfræðilegri glöggskyggni segir hún frá því í ævisögu sinni, hvílíka sælu hún hafi lifað í heimi hugleið- inga, vitrana og bæna um þetta skeið ævinnar, er hún fylgdist með því, hvernig eigin vilji hennar var að smá- deyja, en vilji Guðs að taka sæti hans. Þá sælu segir hún svo djúpa, að fegin hefði hún dáið eilífum dauða fyrir eitt slíkt augnablik. í þrjú ár var hún að ná fullum kröftum. Þá reis hún upp úr sjúkdóminum í fullum b'lóma, sterkari, glaðari, hraustari en hún hafði nokkuru sinni verið fyrr. Allt líf Teresu var barátta. Allt varð hún sjálf að prófa. Hún tók engar kenningar annarra gildar fyrr en hún var sjálf búin að sannreyna gildi þeirra í harðri, innri bar<- áttu. En umburðarlynd og viðmótsþýð var hún við aðrá, þótt hún væri ósveigjanlega ströng við sjálfa sig. í innrí baráttu þessara ára, bænum og vitrunum hafði hún eign- azt hærri hugsjónir en aðrir, og þess vegna biðu hennar nú erfið ár í Encarnacion. Regluhaldið í klaustrinu var afar frjálslegt. Nunnurnar máttu koma og fara því nær að eigin vild, ef þær gættu aðeins hinna fyrirskrifuðu guðrækniiðkana í kirkjunni og klefum sínum á réttum tíma. Þær áttu vinkonur óg vini í bænum, sem tíðum komu að máltíðum þeirra í klaustrinu, svo að úr þessu varð hreinasta samkvæmislíf. Sakir andlegra og líkamlegra yfirburða sinna varð Teresa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.