Morgunn - 01.06.1956, Blaðsíða 31
MORGUNN
25
iljótlega hinn sjálfkjörni miðdepill í þessu samkvæmislífi.
Æskuvinir hennar, ungar konur og ungir menn, söfnuðust
utan um hana og sátu við borð hennar, svo að með þessu
fékk hún allmikla uppbót á því, sem hún hafði fórnað af
®eskugleði sinni, er hún geklc í klaustur.
En undir niðri var hún óánægð með þetta samkvæmis-
líf í klaustrinu. Henni var ljóst, að til þess konar lífs hafði
Guð ekki kallað hana. Með þessu móti gat líf hennar ekki
°rðið meira en hálft, en Teresu nægði aldrei hálfur leikur
í neinu. Margoft stóð hún upp frá borðhaldinu hrygg í
^uga og óánægð, þótt augu hinna glöðu borðgesta fylgdu
henni eftir með aðdáun. Hún gekk inn í klefa sinn og
baðst þá lengi fyrir, en vinaböndin gat hún enn ekki slit-
!ð. Svo var það einhverju sinni, er hún var í djúpri bæna-
^ðkun, að Kristur birtist henni, og á sama augnabliki varð
henni ljóst, að líf hennar væri honum ekki þóknanlegt.
Um þetta leyti varð faðir hennar mjög veikur, og fór
hún heim til að hjúkra honum. Skömmu síðar dó hann, og
uú voru öll böndin við æskuheimilið slitin. Af níu bræðr-
um hennar voru sjö fyrir vestan haf og einn í klaustri.
Systur hennar tvær voru í fjarlægð, og eftirlætisbróðir
hennar, Rodrigo, dó skömmu á eftir föður þeirra.
Teresa var nú orðin fulltíða kona. Æskublóminn fór að
fölna, en fegurð hennar varð æ andlegri. í andlegum iðk-
unum sínum náði hún æ hærra og hærra flugi, sýnir henn-
ur urðu æ háleitari, samfélagslífið við ójarðneska veröld
varð henni æ meiri og meiri veruleikur. En lífið í Encarna-
cionklaustri nægði henni ekki, það var hálfleikur, sem hún
gat ekki sætt sig við, og loks opnuðust augu hennar fyrir
Pví, hver væri vilji Guðs með hana: í lokuðu klaustri átti
hún að lifa samfélagslífi með nunnum, sem brotið höfðu
allar brýr að baki sér og lifðu Guði einum.
Hún ákvað að fylgja vilja Guðs og láta það kosta hvað
sem vera skyldi. Nú urðu fullkomin þáttaskil í lífi hennar
og sú barátta hófst, sem entist henni fram í dauðann. Vit-
andi vits og með opnum augum gekk hún út í þessa bar-