Morgunn - 01.06.1956, Side 73
MORGUNN
67
inni. En þrátt fyrir lærdóm hans og kunnáttu tók það hann
nokkurn tíma að komast að raun um, að hér væri um fyrir-
brigði pei’sónuklofningar að ræða, og engu ómerkara en
var hjá Sally Beauchamp.
í þrjú ár var Doris sjúklingur undir hendi hans og stöð-
ugri rannsókn. Og hann gerði hárnákvæmar skýrslur yfir
rannsóknir sínar. Smám saman kynntist hann og lærði að
þekkja hina ýmsu og ólíku persónuleika, sem komu fram
hjá Doris og tóku á víxl stjórn á líkama hennar. Hér var
um fjóra, skýrt afmarkaða persónuleika að ræða, sem dr.
Prince nefndi þessum nöfnum: aðal-Doris, sjúka-Doris,
Margrét og sofandi-Margrét. Auk þess gáfu sig til kynna
þrír aðrir persónuleikar, sem voru óskýrari og ekki eins
auðkenndir.
„Aðal-Doris“ var skyldurækin, elskuleg og alvörugefin
stúlka, sem reyndi ávallt að gera hið rétta. „Margrét“ birt-
ist sem krakkaleg, illgjörn telpa, á að gizka 10 ára gömul.
Hún hafði fyrst komið í ljós, þegar Doris var þriggja ára
og drukkinn faðir hennar hafði barið hana. Þessir tveir
Persónuleikar skiptust stöðugt á um Doris öll bernskuár
hennar. En þegar Doris var 16 ára gömul og móðir henn-
ar dó, kom „veika-Doris“ í ljós hjá henni, dapurlegur og
sorgmæddur persónuleiki. Og loks kom fjórði persónuleik-
mn í ljós skömmu eftir að dr. Prince fór að annast stúlk-
una, en það var „sofandi-Margrét“, sem kom fram líkust
fullþroskuðum verndarengli.
Dr. Morton Prince hafði á sínum tíma notað dáleiðslu
til að lækna Sally Beauchamp. Dr. Walter Prince notaði
ekkert, nema heilbrigða skynsemi og sefjun, boma uppi af
niikilli ástúð. Hann naut samstarfs konu sinnar, og að lok-
um fengu þau svo mikla elsku til þessarar ungu stúlku, að
þau tóku hana sér að kjördóttur og gáfu henni nafn sitt.
Upp frá því hét hún Theodosia Brittia Prince.
Ur. Prince leit svo á, að í Doris Fischer væru tveir
skýrir grundvallarpersónuleikar, Doris og Margrét. Þeir
birtust ekki sem tvær hliðar á sama persónuleikanum,