Morgunn


Morgunn - 01.06.1956, Page 75

Morgunn - 01.06.1956, Page 75
MORGUNN 69 stúlka, samstæður og heill persónuleiki, gæddur háþrosk- uðum sálrænum næmleika. Margs konar sálrænar tilraunir gerði dr. Prince með hana síðar. Og þessi unga stúlka hefði ekki orðið meira lifandi, skilgetið afkvæmi þeirra, þótt hún hefði verið þeirra eigið barn. Þýðing þessa merkilega starfs með Doris fyrir afbrigði- lega sálfræði er auðsæ. En hver er þýðing þess fyrir sálar- rannsóknirnar? Þýðing þess fyrir sálarrannsóknirnar er þessi: í Beauchamp-málinu staðhæfði Sally, eða „B-3“, eins og dr. Morton Prince kallaði hana, að hún væri andi. I Doris- málinu staðhæfði „sofandi-Margrét" einnig, að hún væri andi. Morton Prince vísaði staðhæfingu Sally algerlega á bug. En hinn frægi sálfræðingur, dr. William McDougall, setti fram þær niðurstöður, að Sally væri áreiðanlega sálarleg vera, og hann setti fram sem skoðun sína, að venjulegur persónuleiki samanstæði af líkama og sál, sem orkuðu hvort á annað, en sálin væri ekki háð líkamanum eða heilanum um minnishæfileika sinn, en væri gædd sjálf- stæðu minni. Hann lýsti ennfremur yfir því, að slík dæmi sem þetta „nálguðust mjög að réttlæta trú manna á fram- haldslíf persónuleikans eftir dauða líkamans“. Dr. Walter Prince skráði samvizkusamlega þá staðhæf- ing „sofandi-Margrétar“, að hún væri andi og verndar- engill. En hann treystist ekki til að lýsa yfir því, að þessi staðhæfing hefði við rök að styðjast. Var „sofandi-Margrét“ sjálfstæður andi? Yér vitum það ekki. Árið 1933 reit dr. Gardner Murphy um þetta mál og sagði: „Árið 1950 getur verið að vér skiljum þetta. Nú á því herrans ári 1935 skiljum vér þetta ekki enn“. Árið 1950 kom, og vér skildum þetta ekki enn. Árið 1955 er komið, og enn skiljum vér þetta ekki. En hitt er vissulega rétt, sem dr. Murphy segir: „Samt er ekkert það skjal ennþá skráð um rannsóknir á mannlegum persónu- leika, sem borgar sig betur að lesa, eða varpar skærara ijósi yfir vandamálin en skjalið um Doris Fischer".
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.