Kylfingur - 01.01.1944, Side 7

Kylfingur - 01.01.1944, Side 7
KYLFINGUR 5 Skipulagsskrá MinningarsjóSs Gunnlaugs Einarssona . 1. gr. Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Gunnlaugs Einarsson- ar, læknis, og er stofnaður að honum látnum af hluta af fé því, er ætlað var til eirmyndar af honum í sambandi við fimmtugsafmæli hans, svo og frjálsum samskotum að honum látnum. 2. gr. Stofnfé sjóðsins er kr. 5.653.13, af samskotafénu frá fimmtugsafmælinu, og samskot við andlát Gunnlaugs. Fé sjóðsins skal ávaxta í tryggum verðbréfum og við- urkenndum banka eða sparisjóði. Sparisjoðsbækur og verð- bréf sjóðsins skal skrá á nafn hans. 4. gr. Tilgangur sjóðsins er að styrkja gerð fullkominna flata á golfvelli Golfklúbbs íslands, einkum með því að styrkja rannsókn jarðvegs á þeim, útvegun grassáðs, „toppdressing“, og „greenkeeping“ og annað, er að fullkomnun flatanna lýtur. 5. gr. Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða. Af vöxtum má ár- lega verja % samkvæmt 4. gr. en % skal leggja við höfuð- stól sjóðsins, þangað til hann er orðinn tíu þúsund krónur — kr. 10,000,00 — Eftir það má verja öllum árstekjum sjóðsins samkvæmt 4. gr. Heimilt er stjórn sjóðsins að geyma fé það, sem eitthvert ár fellur til ráðstöfunar, allt eða nokk- uð af því, til ráðstöíunar síðar, ef henni þykir það betur henta.

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.