Kylfingur - 01.01.1944, Blaðsíða 57
kylfing.uk
55
8. gr.
Klúbbstjórn getur falið kappleikanefnd að sjá um áletr-
un á bikara og önnur verðlaun og aðstoða við val þeirra og
afhendingu síðar, ef ekki hefur tekist að afhenda þau að
kappleik loknum.
9. gr.
Kappleikanefnd aðstoðar stjórn klúbbsins í öllum golf-
kennslumálum, og ætlar kennslunni stund og stað í samráði
við stjórn klúbbsins.
10. gr.
Kappleikanefnd ber að hafa samvinnu við vallarnefnd
og eftirlit með því að hún hafi völlinn og flatir hans í hæfi-
legu standi þegar keppnir fara fram. Ennfremur aðstoðar
kappleikanefnd vallarnefnd í vallarvörzlu, meðan keppni
stendur yfir, einkum að því er snertir óviðkomandi fólk og
skepnur á veHinum.
11. gr.
Veigamiklum kænrm og alvarlegum ágreiningsmálum
getur kappleikanefnd skotið til úrskurðar stjórnar klúbbsins,
sem hefur úrskurðarvald í öllum málnm hans, en úrskurði
hennar má skjóta til stjórnar Golfsambands íslands, sem
hefur æðsta úrskurðarvald í öllum ágreiningsatriðum.
Verksvið vallarnefndar og starfsreglur.
(Samþykktar á golfþinginu, 1944) .
1. gr.
Stjórn klúbbsins skipar 8—5 félaga í vallarnefnd og
skal einn þeirra vera úr stjórn klúbbsins. Stjórnin skipar
formann nefndarinnar og varamenn, þegar þörf gerist, en
að öðru íeyti skiptir nefndin með sér störfum og kýs sér
ritara, sem bókar fundi og gjaldkera, sem annast fjárreiður