Kylfingur - 01.01.1944, Síða 21
KYLFINGUR
19
IIL Frá Golfklúbbi Vestmannaeyja.
Hér fer á eftir, í mjög fáum dráttum, frásögn af hinum
markverðustu atburðum, sem urðu í sögu klúbbsins á árinu:
Þessir kappleikir voru háðir:
1. Keppt um sæti í stiga 30. apríl. Þátttakendur voru 19.
2. Einkylfukeppni, 1. maí. Þátttakendur voru 22. Sig-
urvegari varð Ragnar Stefánsson.
3. Forgjafarkeppni. Hófst hún 29. maí. Þátttakendur
voru 25, þar af 4 konur. Sigurvegari varð Sveinn Ársælsson.
4. Flaggkeppni, 25. júní. Sigurvegari varð Ragnar
Stefánsson.
5. Blindlceppni, 8. júlí. Sigurvegari varð Sveinn Ár-
sælsson.
6. Meistarakeppni kvenna og hófst hún 19. ágúst. Sig-
urvegari varð Unnur Magnúsdóttir.
7. Meistarakeppni karla, sem hófst 26. ágúst. Sigurveg-
ari varð Hinrik Jónsson. Þar með urðu bæjarstjórinn og
kona hans meistarar samtímis, hvor í sínum flokki. Þáttak-
endur voru 24. Kepptu 16 í meistaraflokki og 8 í sárabóta-
flokknum. Meistarakeppnin var oft hörð. í fyrstu umferð
voru Anton og Hinrik jafnir eftir 18 holur en Hinrik vann
hina 19. Lárus Ársælsson og Sigurður Ólason voru jafnir í
annari umferð, eftir 19 holur. Lárus vann hina 20. f semi-
final.sem var 24 holur, vann Guðlaugur Gíslason Gunnar
Bjarnasen á 31. holu.
8. Einkylfukeppni, hin seinni, 9. september. Sigurveg-
ari varð Ólafur Halldórsson.
9. Bændaglíman, lokakeppni ársins, og var hún háð 16.
september. Þátttakendur voru 24. Að keppninni lokinni
höfðu menn fataskipti og mættu til síðari hluta hennar,
fyrsta flokks kvöldverðar með tilheyrandi og dansi á eftir.
Undir borðum voru afhent verðlaun ársins: Meistarabikar
karla, Meistarastytta kvenna, Forgjafarbikarinn, Flagg-
keppnibikarinn og Einkylfubikarinn. Hófið var hið ánægju-