Kylfingur - 01.01.1944, Blaðsíða 26
24
KYLFTNGUR
bréfaviðskipti. M. a. var æskt álits þeirra um það, hvort
heyja skyldi golfmót utan Reykjavíkur. Var það einróma
ósk þeirra, að svo yrði gjört, og var einkum bent á Skaga-
fjörð í því sambandi. í samræmi við það boðaði stjórn
G. S. í. til golfmóts og þings, hinn 22. júlí þ. á., en stað-
urinn var þó eigi ákveðinn að sinni. En hinn 20. maí skrif-
aði stjórn G. I. stjórn G. S. í. og mælti eindregið með því
að .mótið yrði háð á Þingvöllum. Stjórnin tók málið til at-
hugunar og ræddi það við Þingvallanefnd. Einnig fóru þeir
forseti og ritari G. S. í. til Þingvalla og í fylgd með þeim
Gunnar Kvaran, heildsali og Sigurður Jónsson, verkfræð-
ingur og athuguðu þeir staðhætti. Við athugun virtist þeim
ógerningur að gera þar nothæfan golfvöll fyrir 22. júlí.
Var því boðað til mótsins í Skagafirði. Jafnframt var þó
gerð lausleg áætlun um kostnað við að gera 12 holu völl á
Þingvöllum. Taldist svo til að kostnaður við það yrði eigi
undir kr. 127.000.00.
Nefnd sú, er unnið hefur að því að endurskoða þýðingu
golfreglnanna og gera tillögur um fyrirkomulag á útgáfu
þeirra, hefur lokið störfum. Reglurnar eru nú í prentun
en henni hefur seinkað vegna annríkis í prentsmiðjum.
Nefndin var upphaflega kjörin til þessa starfa af stjórn
G. f., en síðasta golfþing samþykkti að fela henni að starfa
áfram að málinu í sínu umboði. Nefndina skipuðu: Einar
E. Kvaran, Helgi H. Eiríksson og Helgi Eiríksson og hefur
E. E. K. unnið ritstjórastarfið og leyst það af hendi með
mikilli prýði.
Sambandsstjórnin hefur átt þátt í stofnun golfklúbbs
á fsafirði og var hann stofnaður í vor, með 20 félögum. Fvr-
ir milligöngu stjórnarinnar dvaldist golfkennarinn, hr.
Robert Waara, um 10 daga skeið á ísafirði við golfkennslu.
Síðar fór hann þangað aftur, í fylgd með forseta sambands-
ins, til þess að athuga og mæia fyrir vallarstæði. Sambandið
útvegaði hinum nýstofnaða klúbbi holupotta, stengur og
flögg.
Næst á eftir skýrslu stjórnarinnar voru lagðir fram
endurskoðaðir reikningar sambandsins og Kylfings. Voru
þeir samþykktir athugasemdarlaust.