Kylfingur - 01.01.1944, Side 33

Kylfingur - 01.01.1944, Side 33
KYLFJNGUR 31 9. gr. Keppendum skal bent á, að það varðar holumissi e'ða tveggja högga víti (í höggleik) að snerta sandinn með kylfunni, áður en sleg- ið er úr hindrun. Völl þennan, sem hér hefur verið lýst, hafa þau móðir Náttúra og forseti G. S. í. skapað í sameiningu. Með sínum alkunna dugnaði tókst honum að gera völlinn leikhæfan á tæplega viku tíma. Varð hann þó að mestu leyti að vinna að honum einn, með eigin höndum. Þó hefði verkið crðið A þriðjti flö't. Hérðnsvötn oj Blöndulilíðarfjöll í baksýn. honum óvinnandi, ef eigi hefði notið aðstoðar Haralds bónda og varaalþingismanns á Völlum, sem lét í té aðstoð við siátt o. fl. og var jafnan reiðubúinn til hverskonar fyrirgreiðslu, er hann mátti, þrátt fyrir heyannir. Land sitt lánaði hann og með glöðu geði og það án nokkurs endurgjalds. Er af því ljóst, að vér stöndum í mikilli þakkarskuld við hann. Þessum tveim mönnum eigum vér það mest að þakka, að mótið gat farið fram svo vel sem raun varð á og notum vér hér með tækifærið til að færa þeim beztu þakkir fyrir. Einnig þökk- um vér golfkennaranum, R. Waara, ; em var gestur sam- bandsins á mótinu og veitti jafnframt af reynslu sinni og þekkingu aðstoð við endanlegar ákvarðanir um staðsetningu flata og teiga, samningu sérreglna o. fl. og var jafnframt.

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.