Fréttablaðið - 17.11.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.11.2010, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2010 16 Á vegum Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Ríkisendurskoð- unar og Stofnunar stjórnsýslufræða var haldinn morgunverðarfund- ur þann 10. nóvember síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var „Starfs- mannamál ríkisins – er breytinga þörf?“. Fyrsta erindi fundarins kom frá Ingunni Ólafsdóttur sér- fræðingi á stjórnsýslusviði Ríkis- endurskoðunar og fjallaði hún um könnun á viðhorfi forstöðumanna til starfsmannalaga. Í könnun Ríkis endurskoðunar koma fram mjög alvarlegar vísbendingar um takmarkaða þekkingu og getu for- stöðumanna ríkisstofnana í mann- auðsmálum. Styrkur þeirra virðist sannarlega ekki liggja í mannauðs- stjórnun heldur á fagsviði viðkom- andi forstöðumanns. Hvernig er þá ástandið í starfsmannamálum? Helmingur forstöðumanna metur ekki frammistöðu starfsmanna með formlegum hætti, flestir þeirra telja sig þó umkomna til að sinna starfsmannamálum með fullnægj- andi hætti og rúmlega þriðjungur þeirra telur sig geta bætt þjónustu sinnar stofnunar með því að reka eldri starfsmenn og ráða nýja! Hér er verulegra umbóta þörf. Ríkisendurskoðun hefur í gegn um tíðina oft komið fram með ábendingar og leiðsögn sem virðast bæði vera þarfar og gagn legar. Það var því nokkuð sérstakt að hlýða á málflutning fulltrúa stofnunar- innar á umræddum fundi því ekki var lagt út af augljósustu og alvar- legustu niðurstöðu könnunar innar; að helmingur stjórnenda innan ríkis- kerfisins hefur ekki sérþekkingu á sviði mannauðs stjórnunar. Af þessu má að minnsta kosti draga eina ályktun. Það er innbyggt í starfs- mannahald ríkisins að upp muni koma vandamál hvað varðar stjórn- un starfsmanna og árangur þeirra deilda og sviða þar sem stjórnend- ur hafa enga eða litla þekkingu á mannauðsstjórnun. Í ljósi þessarar stöðu þá liggur það beint við að sá stjórnandi sem illa veldur hlutverki sínu í stjórnun starfsmanna, er lík- legur til að kenna öðrum um slaka frammistöðu sinnar einingar. „Bara ef ég gæti nú rekið þig, já og líka þig, þá myndi allt verða í himna- lagi“. Því miður þá getur viðhorf af þessu tagi orðið að meinsemd. Við höfum dæmin allt í kring um okkur; agaleysi barna er skólanum að kenna, vont hjónaband er mak- anum að kenna og slæleg frammi- staða í rekstrinum er starfsmönn- um að kenna. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Á umræddri ráðstefnu átti Gunnar Björnsson skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu fjármála- ráðuneytisins lokaerindið. Ef hægt er að tala um kjarna málsins, eða vandans, þá kom hann fram í máli Gunnars. Hann lagði út af því hvert væri hlutverk og ábyrgð stjórnenda innan ríkis kerfisins. Erindi hans bar yfirskriftina „Betri mannauðs- stjórnun – öflugri stjórnsýsla“. Í máli Gunnars kom meðal annars fram; 60%-75% af lélegri frammistöðu í rekstri má skrifa á stjórnun. Góðir stjórnendur skila meiri framleiðni og starfsánægju en slakir stjórnendur. Helsti einstaki áhrifavaldur fyrir tryggð og frammistöðu starfsfólks er leiðtogahæfni stjórnenda. Helsta ástæða uppsagna starfs- fólks er óásættanleg samskipti við næsta stjórnanda. Þar höfum við það. Fjölmiðlar hafa gert sér mat úr þessum morgun fundi. Það hefur vakið athygli að þeir hafa látið hjá líða að fjalla sérstaklega um þennan kjarna málsins. Það er að sínu leyti leitt hvað heimskulegar fullyrðingar um ófullnægjandi frammistöðu ríkis- starfsmanna vekja krampakennd viðbrögð hjá ákveðnum hópi manna. Það er einnig leitt að Ríkis- endurskoðun skuli ekki í annars góðum verkum sínum, benda á meinsemdina í stjórnun ríkis- stofnana og leggja til skynsam- legar úrbætur. Staðreyndin er sú að almennir ríkisstarfsmenn sinna verkum sínum og ábyrgðar sviðum af stakri prýði og fyrir lægri laun að jafnaði en aðrir njóta. Vitaskuld koma upp vandamál varðandi starfsmannahald í öllum skipulags- einingum. Gunnar Björnsson hefur bent á hið augljósa; að efla beri þekkingu og getu stjórnenda stofn- ana ríkisins til að stýra starfsfólki sínu með faglegum hætti. Þetta eru góðar og gagnlegar ábending- ar. Um þetta eru fræðin afdrátt- arlaus; góð stjórnun skilar góðum árangri – slök stjórnun skilar slökum árangri. Til þess að auka árangur í rekstri ríkisstofnana er því lykilatriði að tryggja að stjórn- endur hafi forsendur til að axla þá ábyrgð sem í stjórnun starfsmanna felst. Meðal annars þar er að finna lykilinn að góðum árangri. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað Ríkisrekstur Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR Helsti einstaki áhrifavaldur fyrir tryggð og frammistöðu starfsfólks er leiðtoga- hæfni stjórnenda. Árangur þinn er okkar takmark
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.