Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 2
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR2
JARÐSKJÁLFTI Erfitt er að segja til
um lyktir jarðskjálftahrinu sem
hafin er í námunda við Kleifarvatn
að mati Páls Einarssonar jarðeðlis-
fræðings. Hann segir litlar líkur á
gosi á svæðinu.
Hrinan hófst á fimmtudagskvöld
og jókst virknin aftur í gærmorg-
un. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu
urðu margir varir við jarðskjálfta
sem reið yfir skömmu eftir klukk-
an níu í gærmorgun en sá mældist
3,7 að stærð. Annar stór skjálfti
varð um klukkan hálf sex í gær-
kvöldi og mældist sá 4,1 að stærð.
Að sögn Sigþrúðar Ármannsdótt-
ur, landfræðings hjá Veðurstofu
Íslands, er ekki óalgengt að hrin-
ur sem þessar eigi sér stað á svæð-
inu. „Þessi hrina er í raun búin að
að standa yfir með hléum frá því
á fimmtudaginn. Stór skjálfti varð
um klukkan níu í gærmorgun og
fylgdu nokkrir minni skjálftar
í kjölfarið. Það dró svo úr þessu
upp úr hádegi í gær en upp úr
tvö kom aftur um hálftímaskot af
minni skjálftum,“ sagði Sigþrúður.
Í gærkvöld höfðu mælst á svæðinu
á finnta hundrað jarðskjálftar frá
því aðfaranótt sunnudags.
Friðbjörn Orri Ketilsson, kaf-
ari, var staddur ásamt tveimur
öðrum á rúmlega 20 metra dýpi
í norðausturhluta Kleifarvatns
þegar skjálftinn reið yfir klukkan
hálf sex í gærkvöldi. Hann segist
hafa fundið þungt högg er skjálft-
inn varð. „Við vorum búnir að
vera ofan í vatninu í um tuttugu
mínútur þegar við fengum mikið
högg á okkur. Við héldum í fyrstu
að kútur hefði gefið sig en svo
komu fleiri högg og hvellir og þá
áttuðum við okkur á því að þetta
væri skjálfti.“ Háhitasvæðið er í
sunnanverðu vatninu og því staf-
að köfurunum ekki mikil hætta af
skjálftanum.
Páll Einarsson segir atburða-
rásina sem átt hefur sér stað á
Krýsuvíkursvæðinu undanfarna
daga vera mjög áhugaverða og að
engin ástæða sé til að óttast frek-
ari jarðhræringar eins og gos.
„Orsök skjálftanna má rekja til
þess að svæðið stendur á megin-
flekaskilum og til viðbótar við
það hefur verið landris á Krýsu-
víkursvæðinu síðan á síðasta ári.
Þá myndast bunga á landinu og
skjálftarnir tengjast því mjög
greinilega en svo er spurning hvað
veldur þessu landrisi og verið er
að rannsaka það núna.“ Síðast varð
gos á Reykjanesskaga í kringum
árið 1240 og segir Páll gos á þessu
svæði vera frekar meinlítil gos
sem standi sjaldan yfir í lengri
tíma.
sara@frettabladid.is
Skjálftahrina á Reykjanesi
Kleifarvatn
Krýsuvík
Reykjavík
Reykjanesbær
Grindavík
Skjálftinn sem
átti sér stað um
klukkan hálf sex í
gær mældist 4,1
stig á Richter.
4,1
Reynir, er þetta strætó-stopp?
Nei, þetta er bara biðskylda.
Nýjustu breytingar hjá Strætó tóku
gildi í gær. Strætó hættir nú að ganga
klukkustund fyrr á kvöldin og akstur
hefst tveimur klukkustundum síðar á
laugardögum. Breytingarnar eru vegna
niðurskurðar.
Skjálftarnir fundust
vel í höfuðborginni
Á fimmta hundrað jarðskjálftar höfðu í gærkvöld mælst í námunda við Kleifar-
vatn frá aðfaranótt sunnudags. Tveir sterkir skjálftar fundust á höfuðborgar-
svæðinu í gær. Ekki ástæða til að óttast gos á svæðinu að mati jarðeðlisfræðings.
FRIÐBJÖRN ORRI
KETILSSON
PÁLL
EINARSSON
UMHVERFISMÁL Um sjötíu manns
mótmæltu í gær fyrirhugaðri lokun
endurvinnslustöðvar Sorpu á Kjal-
arnesi. Sorpu hefur verið gert að
draga úr útgjöldum um tólf millj-
ónir á þessu ári.
Íbúasamtök Kjalarness segja lok-
unina í algjörri andstöðu við aukna
áherslu á flokkun heimilissorps. Þá
benda þau á misrétti sem í því sé
falið að íbúar annarra hverfa borg-
arinnar búi aðeins við skerta þjón-
ustu. Þau segja að með lokuninni
beri 0,5 prósent íbúa höfuðborgar-
svæðisins um 30 prósent af niður-
skurði Sorpu.
„Samstöðufundurinn var meiri-
háttar og mætingin glæsileg. Þetta
skiptir okkur íbúana gríðarlega
miklu máli,“ segir Ásgeir Harðar-
son, formaður Íbúasamtaka Kjalar-
ness. - sm
Íbúar á Kjalarnesi mótmæltu:
Lendir á hálfu
prósenti íbúa
Á KJALARNESI Um 70 mættu á
samstöðufund við þjónustustöð Sorpu á
Kjalarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hótar að éta andstæðinginn
Yoweri Museveni, forseti Úganda,
segist ætla að „veiða og éta“ Kizza
Besigye, mótframbjóðanda sinn í
forsetakosningum sem hefur efast
um úrslitin.
ÚGANDA
ALÞINGI Allsherjarnefnd Alþingis
mun fjalla um þingsályktunar-
tillögu um heimild til staðgöngu-
mæðrunar á fundi sínum í dag.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá um helgina eru þrettán af
þeim fimmtán aðilum sem skilað
hafa inn umsögn um tillöguna
ekki fylgjandi því að hún verði
samþykkt nú.
Átján hafa ekki skilað inn
umsögn um málið. - þeb
Allsherjarnefnd fundar:
Fjalla um stað-
göngumæðrun
JEMEN, AP Stjórnarandstöðu-
flokkar í Jemen sögðust í gær
ganga til liðs við unga mótmæl-
endur, sem nánast daglega hafa
komið saman síðustu vikurnar að
krefjast afsagnar forsetans, Ali
Abdullah Saleh.
Þar með virðist fokið í flest
skjól fyrir Saleh, sem hefur verið
við völd í 32 ár.
Á laugardaginn létu tveir
voldugir leiðtogar úr ættbálki
forsetans af stuðningi við hann.
Hundruð þúsunda komu saman
á laugardag í fjölmennustu mót-
mælum landsins til þessa. - gb
Kröftug mótmæli í Jemen:
Þrýstingur vex
á Saleh forseta
Í JEMEN Mótmælendum í Jemen vex
ásmegin. NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Ný landskjörstjórn verður
kosin á Alþingi í dag.
Síðast var landskjörstjórn kosin
í ágúst 2009. Sú stjórn sagði af sér
þann 28. janúar síðastliðinn, eftir
að kosningar til stjórnlagaþings
voru ógiltar. Kosið verður því um
fimm nýja aðalmenn í ráðið sem
og einn varamann.
Ný landskjörstjórn mun sjá um
þjóðaratkvæðagreiðslu um Ice-
save-samningana í apríl. - þeb
Alþingi undirbýr kosningar:
Kjósa nýja
landskjörstjórn
SKÓLAMÁL Rúmlega tuttugu tillögur til sameining-
ar og samreksturs í skólakerfi og frístundastarfi
Reykjavíkur verða teknar fyrir í borgarráði Reykja-
víkur næstkomandi fimmtudag að því er heimildir
Fréttablaðsins herma.
Þessar tillögur starfshóps um hagræðingu í skóla-
kerfi borgarinnar voru kynntar fyrir menntaráði í
vikunni, en skorið hefur verið niður um helming frá
þeim 54 tillögum sem voru kynntar borgarfulltrú-
um og skólastjórnendum í síðustu viku.
Samkvæmt heimildum blaðsins hefur fækkað
verulega þeim tillögum sem kveða á um samrekstur
eða sameiningu milli skólastiga. Sex tillögur voru
þar að lútandi meðal þeirra 54 sem komust í hámæli
en nú eru þær einungis ein eða tvær.
Mikill styr hefur staðið um fyrirhugaðar samein-
ingar og hafa hagsmunasamtök foreldra, kennara
og leikskólakennara sett sig mjög upp á móti þeim.
Meðal þess sem vekur áhyggjur er að sérstaða skóla
og fagleg sjónarmið séu fyrir borð borin.
Þá hefur gagnrýni einnig beinst að því að fjár-
hagslegur ávinningur af hagræðingaraðgerðunum
liggi ekki fyrir. - þj
Starfshópur um sameiningar í skólakerfi Reykjavíkur fækkar tillögum:
Sameiningartillögur að skýrast
SKÓLASAMEININGAR Líða fer að því að starfshópur um sam-
einingar í skólum skili tillögum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÍBÍA, AP Uppreisnarmenn í Líbíu
höfðu í gær náð að mestu völdum
í borginni Zawiya, sem er skammt
frá höfuðborginni Trípolí. Liðs-
menn Gaddafis áttu í átökum við
uppreisnarmenn í Trípolí.
Æ meira þrengir að Gaddafi,
jafnt innan lands sem á alþjóða-
vettvangi. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti seint á laugar-
dag að setja vopnasölubann á Líbíu
og hvatti aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna til að frysta hugsanlegar
eigur Gaddafis og fjölskyldu hans.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna kemur síðan saman á morgun
til að greiða atkvæði um tillögu frá
mannréttindaráði Sameinuðu þjóð-
anna um að víkja Líbíu úr ráðinu.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði Banda-
ríkin reiðubúin til þess að veita
uppreisnarmönnum í Líbíu aðstoð,
og varaði jafnframt Afríkuríki við
því að senda málaliða til stuðnings
Gaddafi. Breskar og þýskar her-
þotur voru í gær sendar til þess að
bjarga flóttafólki úr eyðimörkinni
í Líbíu.
Uppreisnarmenn völdu í gær
fulltrúa í eins konar bráðabirgða-
stjórn til að fara með völd í þeim
hluta landsins, sem þeir hafa náð á
sitt vald. - gb
MYNDA STJÓRN Talsmaður bráðabirgða-
stjórnar uppreisnarmanna, sem náð
hafa flestum borgum Líbíu á sitt vald.
NORDICPHOTOS/AFP
Bandaríkin bjóða uppreisnarmönnum í Líbíu aðstoð:
Æ meir þrengt að Gaddafi
SIGLINGAMÁL Goðafoss fer í slipp
í Óðinsvéum í Danmörku. Skipið
siglir sjálft frá Noregi, þar sem
það strandaði 17. þessa mánaðar.
Ferðin tekur þó lengri tíma en
venjulega þar sem skipið siglir
ekki hraðar en sem nemur átta
sjómílum á klukkustund. Búist
er við að skipið komi til Dan-
merkur seint á morgun eða á
þriðjudag.
Að sögn Ólafs William Hand,
upplýsingafulltrúa Eimskipa,
er áætlað að viðgerð muni taka
tvær til þrjár vikur. - sv
Fer í slipp í Danmörku:
Goðafoss siglir
til Óðinsvéa
SPURNING DAGSINS
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt