Fréttablaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 40
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR4
Framhald af forsíðu
Kirkjustóllinn er í uppáhaldi hjá Gunnari.
Borís Spasskí og Bobby Fischer háðu einvígi um heims-
meistaratitilinn í skák í Reykjavík við þetta borð eftir Gunnar
árið 1972.
Ljós hannað í kringum 1975.
Sýningin á verkum Gunnars stendur til 29. maí í Hönnunarsafni Íslands Garðatorgi 1.
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk
framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
EINNIG ÚRVAL RAFTÆKJA
Á FRÁBÆRU VERÐI
OFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR
UPPÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR
NIÐUR MEÐ VERÐIÐ
OG 10% AÐ AUKI
25% AFSLÁTTUR
SÉ PÖNTUN STAÐFEST Í FEBRÚAR
GLÆSILEGAR
DANSKAR INNRÉTTINGAR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
ELDHÚS-BAÐ-ÞVOTTAHÚS-FATASKÁPAR
UPP MEÐ GÆÐIN
NIÐUR MEÐ VERÐIÐ
OG 10% AÐ AUKI
25% AFSLÁTTUR
SÉ PÖNTUN STAÐFEST Í FEBRÚAR
„Þetta er einfaldur stóll sem
hrópar ekki á neinn. Ég teikn-
aði hann og smíðaði sjálfur og
einungis tvö eintök eru til. Það
er ekki auðvelt að gera góða
hönnun og einfaldleikinn er erf-
iðastur,“ segir Gunnar og telur
Íslendinga eiga enn langt í land
með að bera skynbragð á góða
hönnun.
„Það vantar krítiska umfjöll-
un um hönnun hér á Íslandi.
Tíska og hönnun er sitthvor
hluturinn og þegar fólk lætur
mata sig á tískunni endar í
óefni.“ heida@frettabladid.is
MollaSpace er fyrirtæki sem vinnur að því að koma ungum japönsk-
um hönnuðum á framfæri. Á vefsíðunni www.mollaspace.com gefur
þannig að líta á ýmis áhugavert úr smiðju hönnuðanna og þar á meðal
þennan skemmtilega taupoka sem er tilvalinn undir góða vínflösku.
Hægindastóll-
inn Appollo
frá árinu 1969.
Kollur og borð
eru einnig í
línunni.
Sjónum verður beint að híbýla-
menningu í Reykjavík á 19. öld á
Landnámssýningunni, Aðalstræti
6, klukkan 17 á morgun.
Arndís Árnadóttir listsagnfræð-
ingur heldur fyrirlestur 1. mars
sem nefnist Hégómi og fínerí
– til húsprýði í Reykjavík á 19.
öld. Þar verður skoðað hvernig
ríkjandi hugmyndir um húsabæt-
ur, framfarir í véla-og handiðn-
aði höfðu áhrif á híbýlamenningu
í Reykjavík þegar borgaralegir
lífshættir voru að festa rætur á
19. öld.
Það er ekki fyrr en í lok aldar-
innar sem ljósmyndatæknin leyf-
ir okkur að skyggnast inn á heim-
ilin. Þá hafði greinilega skapast
þörf fyrir að prýða heimilin
með fögrum innanstokksmun-
um, myndum á veggjum, lifandi
stofublómum og tifandi klukkum.
Hannyrðir kvenna settu þar líka
sterkan svip því konur mótuðu
sér ekki aðeins störf á heimilun-
um með slíkum verkum heldur
létu einnig að sér kveða á opin-
berum vettvangi iðnaðarsýninga.
Allir eru velkomnir á fyrirlest-
urinn og er aðgangur ókeypis
- gun
Innlit/útlit á 19. öld
Rækt við fegrun heimilanna kom glögg-
lega fram í stássstofum fyrri alda. Þessi
mynd er úr hinu virðulega Norska húsi í
Stykkishólmi.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.