Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 4
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR4 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,9696 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,92 116,48 186,37 187,27 159,78 160,68 21,43 21,556 20,601 20,723 18,104 18,21 1,4129 1,4211 181,81 160,68 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR KÖNNUN Meirihluti stuðningsmanna allra flokka annarra en Framsóknarflokksins telja að krónan geti ekki verið framtíðargjaldmið- ill Íslands, samkvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðu 59,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni að krónan geti ekki verið framtíðargjaldmiðill Íslands, en 40,5 prósent töldu krónuna brúklega áfram. Þetta er svipað hlutfall og í sambærilegri könnun í apríl 2009. Um 66 prósent þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn hafa trú á krónunni sem framtíðargjaldmiðli. Það er viðsnúningur því 38 prósent stuðningsmanna flokksins voru þeirrar skoðunar í apríl 2009. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks hafa sveiflast í hina áttina. Um 48 prósent telja krónuna geta verið framtíðargjaldmiðil. Um 58 prósent voru þeirrar skoðunar fyrir tveim- ur árum. Aðeins 21,5 prósent stuðningsmanna Sam- fylkingarinnar hafa trú á krónunni sem fram- tíðargjaldmiðli samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar. Um 48 prósent stuðningsmanna VG eru sömu skoðunar. Ekki reyndist marktækt að reikna afstöðu stuðningsmanna Hreyfingarinnar. Hringt var í 800 manns miðvikudaginn 23. febrúar og fimmtudaginn 24. febrúar. Þátttak- endur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóð- skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. - bj Meirihluti landsmanna telur víst að íslenska krónan geti ekki verið framtíðargjaldmiðill samkvæmt könnun: Aðeins framsóknarmenn treysta krónunni Afstaða til krónunnar 70 60 50 40 30 20 10 0% Já Nei Já Nei Allir K ön nu n 19 . a pr íl 20 09 0% 20 40 60 80 100 Könnun 19. apríl 2009 Vilt þú að krónan verði framtíðargjald- miðill á Íslandi? VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 13° 5° 6° 5° 7° 2° 0° 0° 20° 5° 12° 13° 28° -1° 8° 12° -3° Á MORGUN 8-15 m/s. MIÐVIKUDAGUR Stífur vindur í fyrstu. 4 2 4 5 2 2 3 2 6 4 -1 13 13 9 10 9 10 9 10 9 15 13 -1 1 2 2 1 3 2 01 2 ÉLJAGANGUR Það verður heldur hvöss suðvestanátt á landinu í dag og á morgun með kólnandi veðri. Skúrir eða slydduél í fyrstu sunnan og vestan til en síðan má búast við éljagangi er líður á daginn. Norð- austantil verður úrkomulítið. Svipað veður á morgun. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ÍRLAND, AP „Þetta var lýðræðis- leg bylting í kjörklefunum,“ segir Enda Kenny, leiðtogi Fine Gael, sem þykir harla öruggur með að verða næsti forsætisráðherra Írlands. Flokkur hans hafði hlotið 68 þingsæti þegar búið var að úthluta 149 þingsætum af 166 á írska þinginu, en fyrrverandi stjórnar- flokkur, Fianna Fáil, fékk heldur betur að finna fyrir reiði kjósenda og var ekki kominn með nema 17 þingsæti. Skellurinn er mikill, því Fianna Fáil var með 71 þingsæti á síðasta kjörtímabili. Ljóst þótti að Fine Gael fengi ekki hreinan meirihluta og mun væntanlega mynda stjórn með Verkamannaflokknum, sem var kominn með 35 þingsæti. Þess- ir tveir flokkar hafa oft starfað saman í stjórn áður. Eamon Gil- more, leiðtogi Verkamannaflokks- ins, virtist til í slaginn, enda flokk- ur hans orðinn næststærstur á þingi. Þó er talið koma til greina að Kenny myndi minnihlutastjórn ef Fine Gael nær nærri 80 þingsæt- um, en 84 þingsæti þarf til að hafa meirihluta. Kenny sagði verkefni sitt verða að reisa efnahagslíf landsins úr rústum hrunsins: „Við stöndum frammi fyrir grundvallarbreyt- ingu á því hvernig við lítum á okkur sjálf, efnahagslífið og sam- félagið.“ Hann lofaði því að innan fimm ára verði Írland orðið „besta land í heimi“, bæði fyrir fyrirtæki og fjölskyldur. Til skamms tíma naut Kenny ekki mikilla vinsælda, ekki einu sinni meðal eigin flokksmanna sem reyndu að fella hann úr leið- togasætinu síðasta sumar. Hann hefur verið á þingi síðan 1975, og var þá kosinn í stað föður síns sem lést skyndilega. Tveir helstu stjórnmálaflokk- arnir á Írlandi, Fine Gael og Fianna Fáil, voru báðir stofnað- ir upp úr andstæðum fylkingum borgarastríðsins, sem geisaði á Írlandi 1922-23. Málefnalegur munur þeirra er hins vegar lítill nú orðið. Báðir eru þeir hægri-miðjuflokkar, en Fine Gael þykir heldur lengra til hægri. Fianna Fáil geldur þess að hafa verið við stjórnvölinn, bæði þegar eignabólan sprakk árið 2007 og alveg þangað til nú í vetur þegar skuldaholskeflan skall á ríkissjóði og þar með á almenningi. gudsteinn@frettabladid.is ENDA KENNY Líklegt þykir að Enda Kenny, leiðtogi Fine Gael, myndi samsteypustjórn með Verkamannaflokknum. NORDICPHOTOS/AFP Enda Kenny sparar ekki stóru loforðin Fine Gael tekur við stjórninni af Fienna Fáil á Írlandi í kjölfar þingkosninga á laugardag. Enda Kenny, leiðtogi Fine Gael, boðar grundvallarbreytingu á írsku samfélagi. Hans bíður það erfiða verkefni að reisa efnahagslífið úr rústum. FRAMKVÆMDIR Orkuráð hefur veitt fimm styrki að upphæð fimm milljónir hver til jarðhitaleitar á köldum svæðum. Megintilgang- ur styrkjanna er að stuðla að enn frekari nýtingu jarðvarma til húshitunar með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði. Búast má við að leit hefjist með vorinu. - bþs Fimm fá fimm milljóna styrki: 25 milljónir til jarðhitaleitar ■ Arnór Heiðar Ragnarsson, til framhaldsleitar í landi Hofsstaða í Reykhólahreppi. ■ Hörgársveit, til leitar í Hörgárdal og Öxnadal. ■ Jón Svavar Þórðarson, til fram- haldsleitar í landi Ölkeldu í Staðarsveit. ■ Orkuveita Staðarsveitar, til fram- haldsleitar á Lýsuhóli. ■ Steinþór Tryggvason, til loka- áfanga jarðhitaleitar í landi Kýrholts í Viðvíkursveit í Skagafirði. Styrkþegarnir EGYPTALAND, AP Amr Moussa, egypskur stjórnarerindreki sem hefur verið leiðtogi Araba- bandalagsins í áratug, hefur tilkynnt fram- boð sitt til for- setakosninga í Egyptalandi, sem stefnt er að síðar á árinu. Herinn tók við stjórn landsins eftir að Hosni Mub- arak hraktist frá völdum nýver- ið vegna mótmæla almennings. Herinn hefur lofað að breyta stjórnskipan landsins og efna til lýðræðislegra kosninga. Amr Moussa sagðist þó ekki vita hvort hann myndi bjóða sig fram sem einstaklingur eða ganga í stjórnmálaflokk. - gb Amr Moussa býður sig fram: Vill verða arf- taki Mubaraks AMR MOUSSA TÚNIS, AP Allt síðan Zine El Abid- ine Ben Ali forseti hrökklaðist frá Túnis í janúar hafa mótmæl- endur krafist afsagnar bráða- birgðastjórnarinnar, sem tók við völdum undir stjórn Mohameds Ghannouchis forsætisráðherra. Í gær lét Ghannouchi svo undan og sagði af sér, eftir að átök höfðu brotist út á ný með þeim afleiðingum að fjórir létu lífið. Fouad Mebazaa, sem gegnir forsetaembætti til bráðabirgða, fékk strax Beiji Caid-Essebsi til að taka að sér að vera forsætis- ráðherra, einnig til bráðabirgða fram að kosningum, sem reikn- að er með að verði haldnar í júlí. - gb Forsætisráðherra segir af sér: Nýr tekinn við til bráðabirgða STJÓRNSÝSLA Hjördís Björk Hákon- ardóttir, fyrrverandi hæstaréttar- dómari, er formaður hæfisnefndar vegna undirbúnings skipunar í embætti ríkissaksóknara. Nefndin er Ögmundi Jónassyni innanríkis- ráðherra til fulltingis við undir- bún ing skipunar í embættið og skilar honum mati á hæfni umsækjenda. Aðrir í nefndinni eru Guðrún Agnarsdóttir læknir, Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi hæstarétt- ardómari, Ragnheiður Harðar- dóttir héraðsdómari og Valur Ingi- mundarson prófessor. - bþs Val á nýjum ríkissaksóknara: Hjördís fer fyrir hæfisnefnd GENGIÐ 25.02.2011 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is sex saman í p akka L E N S K A S IA .I S M S A 4 58 61 0 4 /0 9

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.