Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2011, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 28.02.2011, Qupperneq 6
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR6 KÖNNUN Óánægja almennings með hefðbundna stjórnmálaflokka virðist síst á undanhaldi ef marka má hlutfall þeirra sem afstöðu taka í skoðanakönnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2 á fylgi stjórnmála- flokkanna. Aðeins 52,5 prósent gáfu upp ákveðinn flokk þegar spurt var hvað fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. Könnunin var gerð á miðvikudag og fimmtu- dag í síðustu viku. Af þeim sem ekki gáfu upp afstöðu sína sögðust um 22 prósent ekki ætla að mæta á kjörstað, eða ætla að mæta og skila auðu. Ellefu prósent sögðust óákveðin, og fjór- tán prósent vildu ekki svara spurn- ingunni. Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr stærsti stjórnmálaflokkurinn. Af þeim sem afstöðu taka í könn- uninni segjast 41,2 prósent styðja flokkinn. Heldur dregur úr stuðn- ingnum frá síðustu könnun, sem gerð var 19. janúar síðastliðinn, þegar 43,4 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Sjálfstæðisflokkur- inn naut stuðnings 23,7 prósenta í síðustu kosningum, og er því nærri tuttugu prósentustigum yfir kjör- fylgi. Yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við niðurstöður könnun- arinnar fengi flokkurinn 28 þing- menn, en er með sextán í dag. Alls sögðust 26 prósent myndu kjósa Samfylkinguna yrði gengið til kosninga nú. Það er nær óbreytt fylgi frá því í könnuninni í janú- ar. Flokkurinn fékk 29,8 prósent atkvæða í síðustu kosningum, og er því enn um fjögur prósentustig undir kjörfylgi. Samfylkingin fengi samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar sautj- án þingmenn, en er með 20 í dag. Heldur dregur úr stuðningi við Vinstri grænt samkvæmt könn- un Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Nú segjast 15,7 prósent styðja flokkinn, en 16,5 prósent sögðust myndu kjósa hann í síðustu könn- un, sem gerð var 19. janúar síðast- liðinn. Flokkurinn fékk 21,7 pró- sent atkvæða í kosningunum fyrir tæpum tveimur árum, og mælist því um sex prósentustigum undir kjörfylgi. Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina félli þriðji hver þingmaður vinstri grænna af þingi. Flokkurinn fengi tíu menn kjörna en er í dag með fimmtán þingmenn. Litlar breytingar hafa orðið á fylgi Framsóknarflokksins frá síðustu könnun. Flokkurinn mælist með stuðning 11,7 prósenta kjós- enda nú, en 11,8 prósent í síðustu könnun. Flokkurinn er því enn ríf- lega þremur prósentustigum undir kjörfylginu, sem var 14,8 prósent. Framsóknarflokkurinn fengi miðað við þetta átta þingmenn, en er með níu í dag. Hreyfingin nýtur nú stuðnings 3,6 prósenta þeirra sem afstöðu taka í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Fylgi flokksins hefur rokkað nokkuð upp og niður í könnunum, mældist 1,5 prósent í janúar síðastliðnum, en 3,6 prósent í febrúar í fyrra. Flokkurinn fengi ekki mann kjörinn yrðu þetta nið- urstöður kosninga. Hringt var í 800 manns mið- vikudaginn 23. febrúar og fimmtu- daginn 24. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokk- inn eða einhvern annan flokk? Þráspurt var með þessum hætti til að auka nákvæmni niðurstöðunn- ar. Alls tóku 52,5 prósent afstöðu. brjann@frettabladid.is Komdu í VIST og hafðu samskipta- og upplýsinga- tæknimál fyrirtækisins á einum og öruggum stað. VIST byggir á grunnpakka sem inniheldur m.a. heimasvæði, tölvupóst, öryggisvarnir og afritun – á föstu mánaðargjaldi fyrir hvern starfsmann. [VIST] UT-lausnir fyrir þitt fyrirtæki Það er 800 4000 – siminn.isAfritun Öryggi Rekstrarþjónusta Hýsing Tímasparnaður 40 35 30 25 20 15 10 5 % FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKANNA 29,8 25 . a pr íl 20 09 28 . j úl í 2 00 9 15 . o kt .2 00 9 7. ja nú ar 2 01 0 18 . m ar s 20 10 23 . s ep t. 20 10 19 . j an . 2 01 1 24 . f eb . 2 01 1 Ko sn in ga r Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 23,7 21,7 14,8 7,2 25,6 7,3 5,6 2,7 35,6 23,2 43,4 25,8 16,5 11,8 2,1 0,5 41,2 26,0 15,7 11,7 3,6 1,9 Ekkert dregur úr óánægju með stjórnmálaflokkana Aðeins rúmur helmingur þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vildi gefa upp hvaða flokk þeir myndu kjósa í þingkosningum. Litlar breytingar mælast á fylgi flokkanna milli kannana. Einungis rúmur helm- ingur aðspurðra í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2 vildu gefa upp ákveðinn flokk þegar spurt var hvernig fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. 52,5% KÍNA, AP Á annan tug erlendra fréttamanna og ljósmyndara voru handteknir í Peking í gær, þegar kínverska lögreglan kæfði í fæð- ingu mótmælafund sem boðað hafði verið til. Meðal annars voru fréttamenn og kvikmyndatöku- menn þýska ríkissjónvarpsins handteknir. Við Alþýðutorgið í Sjanghaí, þar sem mótmælafundur átti einn- ig að verða, stóðu lögregluþjónar í röðum, blésu í flautur og skip- uðu fólki að halda áfram. Um 200 manns reyndu samt að hinkra, sumir af forvitni einni saman. Boðað hafði verið til mótmæla víðar um landið, en alls staðar var lögreglan mætt og kom í veg fyrir að fólk gæti staldrað við. Ólgan í ríkjum Norður-Afríku og Mið-Austurlanda hefur orðið kín- verskum andófsmönnum til hvatn- ingar, en lítið hefur þó enn orðið úr mótmælum þar í landi. Þrátt fyrir mikinn efnahagsupp- gang í Kína hefur verðbólga vaxið undanfarið, með versnandi kjörum sem almenningur finnur fyrir. Í gær skýrðu kínversk stjórnvöld frá því að þau reikni með eitthvað minni hagvexti á næstunni. Jafn- framt kynntu þau nýja áætlun til fimm ára, sem miðar að því að efla neyslu innanlands. - gb Kínversk stjórnvöld óttast mótmæli og bregðast við af fullri hörku: Erlendir blaðamenn handteknir HART BRUGÐIST VIÐ Lögregla í Kína reyndi í gær að kæfa mótmæli í fæðingu. NORDICPHOTOS/AFP KÚBA Ríkistjórn Kúbu ætlar að stuðla að því að almenningur komist á netið. Hingað til hafa bara forréttindahópar haft óheft- an aðgang að internetinu. Fréttastofa Reuters hefur eftir Jorge Luis Perdomo, aðstoðar- samskiptaráðherra Kúbu, að landið ætli að tengjast netaðgangi Venesúela, en leggjast þurfi í nokkrar framkvæmdir til þess að allir íbúar fái netaðgang. Aðstoðarráðherrann taldi að aukinn netaðgangur myndi hafa jákvæð áhrif á efnahagslega og félagslega þróun landsins. - mel Kúbverjar hafa fáir netaðgang: Kúbustjórn hleypir fólki á internetið VIÐ NETKAFFIHÚS Almennir borgarar bíða eftir að komast á netið. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP ALÞINGI Kostnaður við framleiðslu landbúnaðarafurða hefur hækkað mikið undanfarið. Verðlagsnefnd búvara tekur ákvörðun um hvort kostnaðaraukanum verði velt út í verðlagið eða hvort bændur þurfi að bera hann. Einar K. Guðfinnsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, kallaði fyrir helgi eftir viðbrögðum ráðherra. Jón Bjarnason landbúnaðarráð- herra sagði aukinn kostnað bænda og kjaraskerðingu mikið áhyggju- efni og taldi sérstaka ástæðu til að fylgjast með umræðum um málið á Búnaðarþingi. Einari K. Guðfinnssyni fannst svör ráðherrans fátækleg. - pg Kostnaður bænda eykst: Skert kjör eða dýrtíð MENNING Músin Maxímús Músíkús hefur fengið styrk frá Tækniþró- unarsjóði. Samnefnt fyrirtæki, vinnur að því með Fancy Pants Global að setja upp vefsíðuna Maxi´s Music School. Þar á að vera ævintýraleg og fjörleg nálg- un í gagnvirkri tónlistarfræðslu. Tónlistarskólinn á að opna heim tónlistar fyrir íslenskum og erlendum börnum sem Maxímús hefur heimsótt. Komið hafa út bækur um Maximús Músíkús og Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur flutt verk músinni til heiðurs. -jtó Tónlistarskóli á netinu: Maxímús Mús- íkús fær styrk Hefur þú áhuga á að sjá hljóm- sveitina Eagles á hljómleikum? JÁ 58,4% NEI 41,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að kjósa í þjóðar- atkvæðagreiðslu um Icesave 9. apríl? Segðu þína skoðun á Vísir.is. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.