Fréttablaðið - 28.02.2011, Page 8

Fréttablaðið - 28.02.2011, Page 8
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR8 HEILBRIGÐISMÁL Alls búa 509 íslenskir læknar í útlöndum, sem er þriðjungur allra íslenskra lækna. Í janúar síðastliðnum voru starfandi 1.071 læknir hér á landi, en þeir voru 1.157 árið 2008, sam- kvæmt upplýsingum frá Læknafé- laginu. Gera má ráð fyrir því að stór hluti þeirra lækna sem dvelja erlendis séu þar í námi. Eyjólfur Þorkelsson, formaður Félags almennra lækna, segir verulega erfitt að fá íslenska lækna til landsins aftur og fátt kalli þá heim þegar atvinnuástandið er eins og raun ber vitni. Það sárvanti lækna hingað til lands. „Launin úti eru tvöföld, þreföld eða jafnvel fjórföld miðað við tekj- urnar á Íslandi,“ segir Eyjólfur. „Þannig að það er fátt sem kallar heim.“ Eyjólfur segir það sífellt verða erfiðara að fá unga sérfræðinga til að snúa aftur heim til Íslands eftir nám. Að sama skapi hafi verið erfitt að halda læknum í landinu, þegar atvinna er ótrygg og verð- lag hækkar sífellt. Í langan tíma hefur ekki tekist að ráða í átta stöður heimilislækna á höfuðborg- arsvæðinu. Eyjólfur bendir einn- ig á að margir læknar séu skráðir með lögheimili hér á landi, en ferð- ist á milli landa til þess að vinna. Mannskapurinn sem sé starfandi hér á landi segi ekki alla söguna. „Þá spyr maður sig, hversu lengi gengur það áður en fólk fer alfarið?“ segir Eyjólfur. „Það eru mörg óveðurský á lofti, en auð- vitað vonar maður að stjórnvöld sjái hvert stefnir áður en allt fer í óefni.“ Eyjólfur segir sérstaklega skorta yngstu læknana, frá aldr- inum 30 til 45 ára. Eftir 10 ár fari meirihluti þeirra lækna sem eru starfandi á eftirlaun og þá verður erfitt að manna þær stöður verði engin breyting á. „Fólk er að fara fyrr út og kemur seinna eða yfirhöfuð ekki heim,“ segir Eyjólfur. „Það er kannski stærsti vandi heilbrigðis- kerfisins núna.“ sunna@frettabladid.is Það eru mörg óveðurský á lofti, en auðvitað vonar maður að stjórnvöld sjái hvert stefnir áður en allt fer í óefni. EYJÓLFUR ÞORKELSSON FORMAÐUR FÉLAGS ALMENNRA LÆKNA Náttúruvörur úr íslenskri ætihvönn Minna mál með SagaPro Tíð næturþvaglát eru heilmikið mál fyrir marga karlmenn. SagaPro er náttúruvara úr íslenskri ætihvönn ætluð þeim sem eiga við þetta vandamál að etja. Með SagaPro fækkar næturferðum á salernið og þar með færðu betri hvíld. SagaPro fæst í heilsuvöruverslunum, apótekum, stórmörkuðum og Fríhöfninni. Fjöldi íslenskra lækna sem býr utan landsteinanna Danmörk 23 Noregur 79 Svíþjóð 298 Bandaríkin 67 Bretland 23 Kanada 5 Spánn 1 Alls: 509 Holland 7 Sviss 3 Nýja-Sjáland 3 SPOTTIÐ ENDURBIRT Fyrir mistök í umbroti birtist ekki nema hluti skopmyndar Gunnars Karlssonar teiknara í helgarblaði Fréttablaðsins. Þótt sá hluti myndarinnar sem þó birtist hafi verið skemmtilegur er meiri saga sögð með myndinni allri. MYND/GUNNAR KARLSSON 1. Hvað heitir nýr forstjóri Kaup- hallar Íslands og bróðir hans sem er forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar? 2. Hvað búa margir Íslendingar utan landsteinanna? 3. Hvað vilja margir að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forsetakosningum á næsta ári? SVÖRIN ORKUMÁL Orkuveita Reykjavík- ur (OR) undirritaði fyrir helgi viljayfirlýsingu um sölu dóttur- fyrirtækis síns, REI, á jarðhita- réttindum í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Kaupandinn er Nevada Geothermal Power og er söluverð alls 4,15 milljónir dala, eða tæpur hálfur milljarður króna. Í tilkynningu frá OR segir að nýir eigendur hyggist nýta sér reynslu og þekkingu sérfræð- inga OR við uppbyggingu á jarð- hitanýtingu á svæðinu, en hvorki OR né dótturfélög munu fjárfesta í verkefnunum. Búist er við að sölusamningur verði frágenginn í mars. - þj Dótturfyrirtæki OR í USA: Jarðhitaréttindi seld í Kaliforníu ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Dótturfélag OR selur jarðhitaréttindi í Bandaríkj- unum á 500 milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓLK Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri gefur Sjúkrahúsinu á Akureyri eina milljón króna til tækjakaupa í tilefni AF 70 ára afmæli félagsins, samkvæmt aðal- fundarsamþykkt um helgina. Fundurinn varar líka við því að Reykjavíkurflugvöllur verði fluttur úr Vatnsmýri og skorar á stjórnvöld að forval vegna gerðar Vaðlaheiðarganga fari fram sem fyrst. Félagið hvatti að lokum rík- isstjórnina til að stuðla ákveðið að því að stórefla atvinnulíf í Þing- eyjarsýslum sem allra fyrst. - sm Félag málmiðnaðarmanna: Gáfu fé til tækjakaupa DÓMSMÁL Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að kasta snafsaglasi í andlit ann- arrar konu á skemmtistaðnum Vegamótum með þeim afleið- ingum að fjórar tennur brotnuðu eða sprungu í fórnarlambinu. Þá var glasakastarinn dæmdur til að greiða hinni 400 þúsund krónur í miskabætur. Konurnar höfðu verið að skemmta sér hvor í sínum hópn- um á Vegamótum. Við barinn snöggreiddist sú dæmda og kast- aði snafsaglasi í átt að tiltekinni stúlku. Skotið geigaði og lenti glasið á brotaþola. - jss Sex mánuðir á skilorði: Braut tennur með glasakasti ORKUMÁL Heitavatnslaust var í rað- húsahverfinu í Neðra-Breiðholti á laugardagskvöld. Bilun í annari aðalæðinni sem flytur heitt vatn til suðurhluta borgarinnar orsakaði vatnleysið. Eiríkur Hjálmarsson, upplýs- ingafulltrúi Orkuveitu Reykjavík- ur, sagði að líklega hefði bilunin komið í kjölfar háspennubilunar í Kópavoginum en viðgerð var lokið í gærmorgun. -sm Bilun á vatnsæð: Heitavatnslaust í Breiðholti Þriðjungur íslenskra lækna býr í útlöndum Þriðjungur allra íslenskra lækna er búsettur erlendis. Gera má ráð fyrir að margir séu í námi. Verulega erfitt er að fá íslenska sérfræðinga aftur til lands- ins, enda fátt sem kallar þá heim, segir formaður Félags almennra lækna. 1. Páll og Magnús Harðarsynir. 2. Rúmlega 38 þúsund. 3. 50,2 prósent. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Rúmlega helmingur þeirra íslensku lækna sem búa erlendis eru í Svíþjóð. Margir þeirra eru í námi. Formaður félags almennra lækna segir eitt stærsta vandamál heilbrigðis- kerfisins í dag hversu fáir læknar komi til baka að loknu framhaldsnámi. Heimild: Upplýsingaveitan Fannir ehf. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.