Fréttablaðið - 28.02.2011, Page 10
10 28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
Nýir útreikningar samninganefndarinnar (í milljörðum)
hentar öllum sem leita
að bættri heilsu í liðum en kjósa náttúrulegar
lausnir fram yfir lyf m.a. vegna mögulegra
aukaverkana þeirra.
„Ég hef alltaf verið mikið í íþróttum og stundað fjallgöngur undanfarin
ár. Um mitt síðasta sumar fór ég að finna fyrir miklum verkjum í hnjám
og gat ekki stundað göngur eða íþróttir eftir það. Eftir nokkra mánuði
þegar ég hafði náð litlum bata var mér bent á að prófa Regenovex
vörurnar. Eftir einungis u.þ.b. mánaðar notkun fór ég strax að finna mun
á mér og gat farið að stunda hlaup og fjallgöngur á ný. Ég mæli með
að allir þeir sem finna fyrir eymslum í hnjám eða öðrum liðum prófi
Regenovex, það er vel þess virði ef maður getur byrjað að hreyfa sig
á ný.“
Einar Már Aðalsteinsson, 44 ára
FJÖLMIÐLAR Tveir ljósmyndarar
Fréttablaðsins, Gunnar V. Andrés-
son og Vilhelm Gunnarsson, voru
meðal vinningshafa þegar Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands kynnti
bestu ljósmyndir síðasta árs á laug-
ardag.
Gunnar átti bestu fréttamynd
ársins, sem tekin var á biskups-
stofu þegar fréttir af kynferðis-
brotum Ólafs Skúlasonar voru
í hámarki, en Vilhelm bestu
umhverfsimynd ársins, sem tekin
var af eldgosinu í Eyjafjallajökli.
Brynjar Gauti Sveinsson átti mynd
ársins, sem einnig tengdist eldgos-
inu. Aðrir vinningshafar eru Krist-
inn Ingvarsson, Óskar Páll Elfars-
son og Rakel Ósk Sigurðardóttir.
Myndirnar eru til sýnis á árlegri
sýningu Blaðaljósmyndarafélags-
ins í Gerðarsafni í Kópavogi. Sýn-
ingin stendur til 10. apríl. - gb
Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags í Gerðarsafni:
Bestu ljósmyndirnar
verða sýndar áfram
BISKUPSRAUNIR Ljósmynd Gunnars V.
Andréssonar var valin besta fréttamynd
ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ELDINGAR Í ELDGOSI Ljósmynd Vilhelms Gunnarssonar var valin besta umhverfis-
mynd ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Danski sjóðurinn Willi-
am Demant þarf ekki að leggja
fram yfirtökutilboð í stoðtækja-
fyrirtækið Össur, samkvæmt upp-
lýsingum úr Fjármálaeftirlitinu.
Sjóðurinn jók nýverið eign sína
í Össuri í 39,6 prósent. Yfirtöku-
skyldu var nýlega breytt, en hún
miðast við 30 prósenta hlutafjár-
eign í skráðu félagi. Í athuga-
semdum við breytinguna er miðað
við hlutafjáreign 1. apríl 2009. Þá
átti William Demant 39,88 pró-
sent í Össuri. - jab
Hlutabréfakaupin í góðu lagi:
Eigandinn var
innan marka
FORSTJÓRI ÖSSURAR William Demant
mátti auka hlut í Össuri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VILHJÁLMUR OG KATA Óðum styttist í
konunglegt brúðkaup í Bretlandi. Í til-
efni þess verður gefin út teiknimynda-
saga um tilhugalíf hjónaleysanna.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Femínistafélag
Íslands skorar á borgaryfirvöld
að gaumgæfa ítarlega samein-
ingartillögur leikskólanna.
Í tilkynningu sem Femín-
istafélagið hefur sent frá sér
er minnt á mannréttindastefnu
borgarinnar og bent á að þar
standi að Reykjavíkurborg
hafi „jafnræði borgaranna og
mannréttindi að leiðarljósi í
öllu starfi og hefur einsett sér
að vera í fararbroddi í mann-
réttindamálum með sérstakri
áherslu á jafna stöðu kvenna og
karla“.
Femínistafélagið telur sam-
einingartillögurnar vera aðför
að leikskólakennurum sem
starfsstétt og varar jafnframt
við niðurskurðartillögum sem
ekki eru unnar í samræmi við
kynjaða hagstjórn. - sv
FÍ varar við sameiningum:
Skora á yfirvöld
að endurskoða
STJÓRNMÁL Stjórn ungliðahreyf-
ingar Vinstri grænna fordæmir
flutninga flugfélagsins Atlanta á
stríðsgögnum til Afganistan.
Í ályktun segir að flutningur-
inn geti ekki talist annað en þátt-
taka í stríði og að fyrirtækið ætti
að sjá sóma sinn í því að hagnast
ekki á dauða fólks. Er því beint til
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra að hann taki sem fyrst
í taumana. Óforsvaranlegt sé að
íslensk fyrirtæki fái heimild til
þátttöku í stríði í stjórnartíð VG.
- bþs
UVG um hergagnaflutninga:
Segja Atlanta
taka þátt í stríði
ICESAVE Mögulegur vaxtakostnað-
ur vegna Icesave gæti orðið rúmir
713 milljarðar, tapist málið fyrir
dómstólum árið 2014. Þessar nið-
urstöður miða við að Íslendingum
verði gert að greiða sömu vexti og
Portúgal greiðir af sínum neyðar-
lánum. Fái Íslendingar sömu vexti
og Írar, endar málið í 513 milljörð-
um. Sé núverandi samningur látinn
gilda, eftir að þrotabú gamla Lands-
bankans hefur verið gert upp, endar
skuldin í 48 milljörðum króna. Þar
er miðað við þá 20 milljarða sem nú
þegar eru til staðar.
Þetta eru niðurstöður nýrra
útreikninga sem unnir voru fyrir
íslensku samninganefndina um
Icesave.
Lárus Blöndal hæstaréttarlög-
maður og einn af samningamönn-
um Íslands, segir útreikningana
meðal annars hafa verið gerða í
ljósi þess misskilnings sem hefur
verið á kreiki að verði farið með
málið fyrir dómstóla gætu Íslend-
ingar endað á því að greiða ekki
kostnað af því.
„Menn eru að halda fram að
kostnaðurinn við Icesave-samn-
ingana gæti verið allt frá 25 og upp
í 250 milljarða, á meðan kostnað-
urinn við það ef málið tapast fyrir
dómstólum sé frá núll og upp í 140.
Í ljósi þess er nauðsynlegt að menn
fái betri upplýsingar svo ekki sé
verið að taka ákvarðanir á kolröng-
um forsendum,“ segir Lárus. „Það
myndi geta kostað okkur mörg
hundruð milljarða.“
Samkvæmt útreikningunum, sé
miðað við 86 prósenta endurheimt-
ur og gengisspár, fæst nokkurn veg-
inn upp í höfuðstól Icesave-skuldar-
innar. Sé samningaleiðin farin með
núverandi samingi, gætu endur-
heimtur úr þrotabúi gamla Lands-
bankans verið 8 milljörðum meiri
heldur en höfuðstóll skuldarinnar.
Meðal þeirra forsenda sem gefn-
ar eru í útreikningunum eru meðal
annars þær að forgangsgröfur
Tryggingasjóðs innstæðueigenda
og fjárfesta (TIF) eru 1.171 millj-
arðar króna og sömuleiðis skuld
við Breta og Hollendinga. Heildar-
kröfur búsins eru 1.321 milljarðar
og TIF fær 88,64 prósent af öllum
útgreiðslum búsins og er endur-
heimtuhlutfall 86 prósent. Afborg-
anir af höfuðstól hefjast árið 2016
þegar búið hefur verið gert upp.
sunna@frettabladid.is
Skuldin gæti hækk-
að um 665 milljarða
Dómstólaleiðin gæti reynst Íslendingum dýrkeypt, ef marka má niðursöður
nýjustu útreikninga samningsnefndar Íslands um Icesave. Vaxtakostnaður ríkis-
ins gæti orðið 713 milljarðar, ef miðað er við vexti Portúgala og málið tapast.
Skuldir/Eignir Samningaleið Ef dómsmáli lýkur 2014 Ef dómsmáli lýkur 2012
Fyrirliggjandi samningur Vextir Íra 5,8% Vextir Portúgala 7% 5,8% vextir 7% vextir
Endurheimtur úr búi 603 1.044 1.044 1.044 1.044
Höfuðstóll skuldar 595 1.048 1.044 1.048 1.045
Skuldir umfram eignir -8 3 0 4 0
Kostnaður
Vaxtakostnaður 77 530 733 455 621
Skuldir umfram eignir -8 3 0 4 0
Heildarkostnaður ríkis 69 533 733 458 621