Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 19
nýir bílar
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011
Bílamarkaðurinn á Íslandi er að
taka við sér. Sölustjórar Ingvars
Helgasonar og B&L finna fyrir
meiri bjartsýni enda vorið
handan við hornið.
„Já, við erum bara bjartsýnir á
það sem er fram undan“ segja
sölustjórar Ingvars Helgasonar og
B&L, í stuttu spjalli um horfurnar
hjá Ingvari Helgasyni og B&L. „Við
erum búnir að ganga frá samning-
um um sölu á rúmlega 400 bílum
til bílaleiga og höfum á undanförn-
um vikum kynnt margar gerðir
af nýjum bílum í öllum stærðar-
og verðflokkum. Viðbrögðin hafa
verið mjög góð frá viðskiptavin-
um sem vilja nýta sér gott verð á
bílum, sem lækkaði um áramót, og
hagstæð kjör á bílalánum sem nú
bjóðast. Þar að auki hafa framleið-
endur okkar flestir sýnt ástandinu
skilning með því að bjóða okkur
gott verð sem við getum með
vissu sagt að sé með því hagstæð-
asta sem er í boði,“ segir Rúnar H.
Bridde, sölustjóri Nissan og Sub-
aru, og þeir Bjarni Þ. Sigurðsson,
sölustjóri Hyundai og Renault, og
Karl S. Óskarsson, sölustjóri BMW
og Land Rover, taka undir.
Vörugjaldabreytingarnar sem
urðu um áramót gerðu umboðun-
um kleyft að lækka verð umtals-
vert á mörgum bílum, meðal ann-
ars vinsælum lúxusbílum svo sem
BMW. Þetta er vegna afar lágra
CO2 -gilda í útblæstri bílanna.
„Við erum líka stolt og ánægð
yfir að hafa komist í gegnum versta
ástandið. Við áttum okkar erfiðu
tíma þegar við þurftum að segja
upp mörgu góðu starfsfólki til að
komast í gegnum erfiðustu skafl-
ana, en í dag er fólkið okkar fullt
af anda uppbyggingar og tilbúið til
að leggja mikið á sig til að koma
verkefnunum í farveg og veita við-
skiptavinum okkar góða þjónustu,“
segir Bjarni. „Margir hafa átt erf-
itt en nú horfir til betri vegar
og við finnum fyrir meiri
bjartsýni, enda vorið rétt
handan við hornið,“ bætir
Karl við að lokum.
Erum bjartsýn á framhaldið
Sölustjórarnir Rúnar Bridde og Bjarni Þórarinn Sigurðsson eru sérlega ánægðir með hvernig árið hefur byrjað. Þeir gátu ekki á sér setið og lyftu af því tilefni félaga sínum
Karli S. Óskarssyni sem hafði gaman af. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
● 1.500 GESTIR Á EINNI
HELGI OG 27% MARK
AÐSHLUTDEILD Starfsfólk
B&L og Ingvars Helgasonar er
afar ánægt með hlutdeild sína
það sem af er árinu. „Við höfum
haldið þrjár sýningar og feng-
ið þúsundir viðskiptavina til að
koma og skoða nýju bílana sem
við höfum verið að kynna. Salan
það sem af er ári hefur svo til
eingöngu verið til einstaklinga
og eftirspurnin verið stöðug og
jöfn,“ segir Loftur Ágústsson,
markaðsstjóri umboðsins.
Eftir stendur að fyrirtækið
er komið með rúmlega 16%
hlutdeild það sem af er árinu og
27% markaðshlutdeild það sem
liðið er af febrúar.
| KYNNING
● HAGSTÆÐ KJÖR Á
BÍLALÁNUM Núna standa
viðskiptavinum til boða óverð-
tryggð lán sem bera undir 9%
fasta vesti og hafa kjör á óverð-
tryggðum lánum ekki verið hag-
stæðari í langan tíma. Viðskipta-
vinir sem taka lán núna geta
líka treyst því að afborganirn-
ar verða nokkuð stöðugar og
sveiflast ekki óeðlilega mikið
upp þótt verðbólga hækki tíma-
bundið. Lánshlutfall getur al-
mennt ekki orðið hærra en sem
nemur 70% af verði bílsins.
INGVAR HELGASON og B&L • Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
5
5
5