Fréttablaðið - 28.02.2011, Qupperneq 22
28. FEBRÚAR 2011 MÁNUDAGUR
CAPTIVA
Verð:
Captiva LT - 2,0 L - dísel - sjálfskiptur 5.540.000
Captiva LT - 2,0 L - dísel - leður - 7 sæta - sjálfskiptur 5.990.000
SPARK
Verð
Spark L - 1,0 L 1.695.000
Spark LS - 1,2 L 1.895.000
CRUZE
Verð:
Cruze LS - 1,8 L - beinskiptur 2.990.000
Cruze LT - 1,8 L - beinskiptur 3.190.000
Cruze LT - 1,8 L - sjálfskiptur 3.590.000
Cruze LT LUX* - 1,8 L - sjálfskiptur 3.990.000
Cruze LT - 2,0 L - dísel - beinskiptur 3.590.000
Cruze LT - 2,0 L - dísel - sjálfskiptur 3.990.000
AVEO
Verð:
Aveo LS - 5 dyra - 1,4 L - beinskiptur 2.295.000
Aveo LS - 1,4 L - sjálfskiptur 2.495.000
Bílabúð Benna er rótgróið
bílaumboð og hélt upp á
35 ára afmæli sitt í fyrra.
Fyrirtækið hefur verið með
umboð fyrir Chevrolet á Íslandi
frá árinu 2004.
„Chevrolet er 100 ára á þessu ári.
Chevrolet merkið er teiknað eftir
slaufu og því þótti vel við hæfi að
skíra afmælisárið, Ár slaufunnar,“
segir Benedikt Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Bílabúð Benna.
„Ár slaufunnar, afmælisár Chevr-
olet, byrjar vel hjá okkur og við
finnum vel fyrir því að fleiri og
fleiri Íslendingar eru að uppgötva
Chevrolet-gæðin, enda hefur verð-
ið líka komið fólki skemmtilega á
óvart.“
Fyrirtækið ætlar að fagna af-
mælisárinu með viðskiptavinum
sínum á ýmsa vegu og bjóða upp
á fjölbreyttar sýningar og tilboð
allt árið.
„Síðasta uppákoma Bílabúð-
ar Benna var sérlega vel heppn-
aður spurningaleikur í Kringl-
unni, nú í febrúar, undir heitinu,
Veistu Chevrolet-svarið. Gestir
Kringlunnar gátu skoðað Chevr-
olet Spark og svarað léttum spurn-
ingum um Chevrolet á Íslandi í
leiðinni. Þetta vakti mikla lukku,
verðlaun í boði og þúsundir tóku
þátt.“
Benedikt segir að Chevrolet
fyrirtækið hafi á síðustu árum
lagt gríðarlega fjármuni í nýsköp-
unar- og þróunarstarf, sem nú sé
að skila sér á öllum sviðum fram-
leiðslunnar. Nú standi Chevrolet,
sem aldrei fyrr, fyrir gegnheilt ör-
yggi, glæsilega hönnun og framúr-
skarandi tækni.
„Velgengni Chevrolet á heims-
vísu hefur heldur ekki látið á sér
standa og birtist meðal annars í
ótal verðlaunum og viðurkenning-
um fagaðila í bílabrasanum sem
og frábærum viðtökum neytenda
á kröfuhörðustu mörkuðum heims,
þar sem Chevrolet hefur slegið
hvert sölumetið á fætur öðru.“
Hann segir að Chevrolet leggi
allt kapp á að gera afmælisár-
ið sem glæsilegast, þar sem hver
frumsýningin reki aðra.
„Það má segja að Chevrolet sé
að tefla fram heilum flota af nýj-
ungum á afmælisárinu, því áður
en árið er liðið munu sjö nýir
Chevrolet bílar, hafa litið dags-
ins ljós: Chevrolet Orlando, nýr
Captiva, nýr Aveo, Cruze hlað-
bakur, ný Corvetta Grand Sport,
nýr Camaro og síðast en ekki síst
Chevrolet Volt. Chevrolet Spark
kom nýr í fyrra og hefur verið á
mikilli siglingu um allan heim.“
Íslenskir neytendur eiga því
bara von á góðu frá Chevrolet og
Bílabúð Benna, sem ætlar að nýta
35 ára reynslu sína við að þjónusta
viðskiptavini sem allra best. „Við
leysum hvers manns vanda þegar
bílar eru annars vegar. Við lítum
á okkur sem sérfræðinga í bílum
og getum því staðhæft að Chevr-
olet séu einhver skynsamlegustu
bílakaup sem hægt er að gera í
dag,“ segir Benedikt Eyjólfsson
hjá Bílabúð Benna.
Floti af nýjungum á
afmælisári Chevrolet
„Við leysum hvers manns vanda þegar bílar eru annars vegar,” segir Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna,
sem hér stendur við Camaro SS. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sérfræðingar Motor Trend sæmdu byltingarkennda rafmagnsbílinn, Chevr-
olet Volt, titlinum „2011 Motor Trend Car of the Year“.
Þessi árlega útnefning er almennt talin sú virðulegasta í bíla-
iðnaðinum og er enn ein sönnun þess að nýir tímar eru í
uppsiglingu hjá Chevrolet og bílamarkaðnum í heild
sinni.
Benedikt segir að Voltinn sé bíll sem
kennir fólki að nota rafmagnsbíla.
„Þú hleður hann heima hjá þér og
þeir þurfa aldrei að verða orku-
lausir vegna þess að í Chevrolet
Volt er rafmagnshleðslumótor
sem gengur fyrir bensíni. Voltinn
er eini rafbíllinn sem býður upp á
þessa lausn og því mjög spennandi
valkostur í framtíðinni.“
Rafmagnaður Volt