Fréttablaðið - 28.02.2011, Qupperneq 50
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR26
Eimskipsbikar kvenna:
Fram-Valur 25-22 (13-9)
Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 7/1
(15/2), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5 (5), Karen
Knútsdóttir 4/1 (8/1), Pavla Nevrilova 3 (3), Birna
Berg Haraldsdóttir 2 (2), Hildur Þorgeirsdóttir 2
(7), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1 (2).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 20 (42/7)
48%.
Hraðaupphlaup: 1 (Karen).
Fiskuð víti: 3 (Karen, Pavla, Birna).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Vals (skot): Annett Köbli 8/7 (11/7), Anna
Úrsula Guðmundsdóttir 3 (5), Kristín Guðmunds-
dóttir 3 (9), Karólína B. Gunnarsdóttir 2 (4),
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 2 (4), Hildigunnur
Einarsdóttir 2 (2), Rebekka Rut Skúladóttir 1 (1),
Íris Ásta Pétursdóttir 1 (4).
Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 9/1 (31/3) 29%,
Guðný Jenný Ásmundsdóttir 3 (16) 19%.
Hraðaupphlaup: 3 (Karólína, Kristín, Hildi-
gunnur).
Fiskuð víti: 7 (Anna 2, Íris 2, Hrafnhildur,
Rebekka, Kristín)
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson,
mjög góðir.
ÚRSLIT
Enska úrvalsdeildin:
WEST HAM - LIVERPOOL 3-1
1-0 Scott Parker (22.), 2-0 Demba Ba (44.), 2-1
Glen Johnson (83.), 3-1 Carlton Cole (90.+1).
MAN. CITY - FULHAM 1-1
1-0 Mario Balotelli (26.), 1-1 Damien Duff (48.)
ASTON VILLA - BLACKBURN 4-1
1-0 Ashley Young (48.), 3-0 Stewart Downing
(63.), 3-1 Nikola Kalinic (80.), 4-1 Ashley Young
(81.).
EVERTON - SUNDERLAND 2-0
1-0 Jermaine Beckford (7.), 2-0 Jermaine Beck-
ford (38.).
NEWCASTLE - BOLTON WANDERERS 1-1
1-0 Kevin Nolan (12.), 1-1 Daniel Sturridge (37.).
WIGAN - MANCHESTER UNITED 0-4
0-1 Javier Hernandez (16.), 0-2 Javier Hernandez
(73.), 0-3 Wayne Rooney (83.), 0-4 Fabio (86.).
WOLVES - BLACKPOOL 4-0
1-0 Matt Jarvis (1.), 2-0 Jamie O’Hara (53.), 3-0
Sylvan Ebanks-Blake (77.), 4-0 Sylvan Ebanks-
Blake (89.)
STAÐAN:
Man. United 27 17 9 1 61-25 60
Arsenal 27 17 5 5 57-27 56
Man. City 28 14 8 6 44-25 50
Tottenham 27 13 8 6 38-31 47
Chelsea 26 13 6 7 46-22 45
Liverpool 28 11 6 11 36-35 39
Bolton 28 9 10 9 39-38 37
Sunderland 28 9 10 9 33-35 37
Newcastle 28 9 9 10 43-39 36
Everton 27 7 12 8 35-36 33
Stoke City 27 10 3 14 31-34 33
Aston Villa 28 8 9 11 35-47 33
Fulham 28 6 14 8 29-29 32
Blackburn 28 9 5 14 35-46 32
Blackpool 28 9 5 14 42-55 32
Birmingham 26 6 12 8 25-35 30
Wolves 28 8 4 16 31-46 28
WBA 27 7 7 13 35-52 28
West Ham 28 6 10 12 33-49 28
Wigan 28 5 12 11 27-49 27
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Mexíkóinn Javier Hernan-
dez heldur áfram að gera það gott
hjá Man. Utd en hann skoraði tvö
marka liðsins um helgina er það
lagði Wigan af velli, 0-4.
Wigan ákvað að legga nýtt gras
á völlinn fyrir leikinn og það
kunnu leikmenn Man. Utd vel að
meta og þeir þökkuðu fyrir með
fjórum mörkum.
Leikurinn var þó ekki án
umdeildra atvika en Wayne
Rooney virtist gefa einum leik-
manni Wigan olnbogaskot í leikn-
um og Roberto Martinez, stjóri
Wigan, vildi sjá rautt spjald á
Rooney.
„Ég sá þetta atvik vel og dóm-
arinn líka því hann dæmdi auka-
spyrnu. Fyrst hann dæmdi auka-
spyrnu þá var alveg kristaltært
að hann þurfti að gefa rautt spjald
í leiðinni. Það sést líka vel í sjón-
varpinu að Rooney gefur mínum
manni olnbogaskot í andlitið. Ef
þetta hefði gerst fyrir minn mann
þá hefði ég talið mig heppinn að
halda ellefu leikmönnum inn á
vellinum,“ sagði Martinez svekkt-
ur en Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, var á öndverðum meiði.
„Ég er búinn að sjá þetta og það
er ekkert að þessu. Það er samt
búið að opna málið og fjölmiðlar
munu reka áróður í málinu þar
sem þetta er Wayne Rooney. Þeir
munu reyna að hengja hann eða
taka hann af lífi í rafmagnsstóln-
um,“ sagði Ferguson afar hvass.
„Það er ótrúlegt að fylgjast með
meðferðinni sem hann fær. Fylg-
ist með fjölmiðlum. Það verður
áhugavert að fylgjast með þessu.“
Ef Rooney hefði fengið rauða
spjaldið þá hefði hann misst af
leiknum gegn Chelsea á morgun
og leiknum gegn Liverpool næsta
sunnudag.
„Þrátt fyrir allt er ég ánægður
með úrslitin því þetta er erfiður
útivöllur,“ sagði Ferguson kurteis-
lega en United hefur unnið alla 13
leiki sína gegn Wigan.
- hbg
Manchester United aftur komið með fjögurra stiga forskot eftir öruggan sigur á Wigan á útivelli:
Wayne Rooney þótti sleppa vel gegn Wigan
SAKLEYSIÐ UPPMÁLAÐ Rooney labbar hér til Clattenburg á meðan leikmaður Wigan
kveinkar sér eftir olnbogaskotið. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Miðjumaðurinn Sigur-
björg Jóhannsdóttir átti hreint út
sagt magnaða innkomu í úrslita-
leikinn gegn Val. Skoraði fimm
mörk úr fimm skotum.
„Mér fannst við vera með þetta
allan tímann og það var þvílík
yfirvegun í okkar leik og það skein
úr hverju andliti einbeiting og
ákveðni. Það var engin hræðsla og
ekkert hik,“ segir Sigurbjörg bros-
mild en hún var einnig ánægð með
þá frábæru vörn sem Fram spilaði
í leiknum.
„Vörnin skipti sköpum strax í
byrjun. Við vissum að ef við ætl-
uðum okkur að vinna leikinn þá
yrðum við að finna drápseðlið í
okkur og það kom algjörlega,“
segir Sigurbjörg og fyrir aftan
vörnina var Íris Björk í hreint frá-
bæru formi.
„Ég get varla byrjað að lýsa því
hversu frábær hún var. Það er sér-
stakt að eiga svona góðan mark-
vörð fyrir aftan,“ segir Sigur-
björg sem vildi lítið gera úr eigin
frammistöðu.
„Ég er mjög sátt og gott að
geta bætt við spilið hjá okkur.
Við ætlum okkur meira í vetur og
þessi sigur gefur okkur kraft til
þess að klára næsta bikar líka.“
- hbg
Sigurbjörg Jóhannsdóttir átti frábæran leik gegn Val:
Vissum að við yrðum
að finna drápseðlið
HANDBOLTI Fram varð um helgina
bikarmeistari kvenna eftir hreint
út sagt stórskemmtilegan og vel
spilaðan handboltaleik tveggja
bestu liða landsins. Framstúlkur
voru skrefinu á undan allan leik-
inn og þó svo forskotið hafi ekki
alltaf verið stórt virtist sigurinn
aldrei vera í hættu.
Fram-stúlkur gáfu nefnilega
engin færi á sér, leikur þeirra
brotnaði ekki undir pressu og með
viljann og ákveðnina að vopni
gengu þær frá leiknum á afar
snyrtilegan og sannfærandi hátt.
Það sem lagði grunninn að
þessum góða sigri var þó fyrst og
fremst frábær varnarleikur og
mögnuð markvarsla Írisar Bjark-
ar sem varði vel allan leikinn og
oftar en ekki þegar mest á reyndi.
Valsstúlkur áttu lengstum engin
svör við stórkostlegum varnarleik
Framstúlkna og það segir sína
sögu að Valur skoraði aðeins þrjú
mörk úr uppstilltum leik í síðari
hálfleik. Önnur mörk komu af víta-
línunni eða úr hraðaupphlaupum.
Enginn leikmaður Vals náði sér
almennilega á strik í sókninni og
Valsstúlkur fundu aldrei almenni-
leg svör í sóknarleiknum. Varnar-
leikur liðsins var oft með miklum
ágætum en stór munur lá í mark-
vörslunni því markverðir Vals
vörðu sama og ekkert á meðan Íris
var í stuði allan leikinn. Sunneva
kom þó sterk upp undir lokin en
það var of lítið og of seint.
Sóknarleikur Fram gekk oft vel
og Stella Sigurðardóttir fór mik-
inn. Sigurbjörg átti einnig magn-
aða innk–omu, Karen skoraði góð
mörk og stýrði sóknarleiknum
af röggsemi sem fyrr og svo var
áhugavert að sjá innkomu hinnar
ungu Birnu Berg Haraldsdóttur
en þar er upprennandi stórskytta
á ferðinni.
„Mér fannst við vera betri. Við
vorum skrefi á undan nánast allan
leikinn en við vorum samt alltaf á
tánum þvi við vitum að Valur er
oftast betri í seinni hálfleik. Við
ætluðum því að vera brjálaðar
allan leikinn og mér fannst það
ganga vel því við misstum aldrei
yfirhöndina,“ segir Karen Knúts-
dóttir og hún brosti allan hring-
inn eins og liðsfélagar hennar eftir
leik.
„Við ákváðum að spila 5/1 vörn á
þær. Koma framar og klukka þær
svo þær gætu ekki skotið okkur í
kaf. Það virkaði og Íris er síðan
frábær markvörður sem alltaf
er hægt að treysta á. Við höfðum
bilaða trú á að við gætum unnið
og ekki leiðinlegra að vinna Val
aftur. Nú er stefnan bara að vinna
Íslandsmeistaratitilinn líka.“
Stefán Arnarson, þjálfari Vals,
viðurkenndi eftir leik að hans lið
hefði tapað á sanngjarnan hátt.
„Við töpum á öllum sviðum – mark-
vörslu, vörn og sóknarleik. Þær
voru bara miklu betri en við að
þessu sinni,“ sagði Stefán heiðar-
legur.
„Það sem er sorglegt við þetta
er að við vorum búin að búa okkur
undir þessa vörn þeirra og hún
kom því ekki á óvart. Þær gerðu
þetta aftur á móti mun betur á
meðan við virtumst ekki vera klár-
ar í slaginn.“
henry@frettabladid.is
Sannfærandi sigur Framstúlkna
Leikur Fram og Vals í úrslitum Eimskipsbikars kvenna var frábær skemmtun frá góðum liðum. Framstúlk-
ur spiluðu hreint út sagt frábæran varnarleik og fyrir aftan vörnina var Íris Björk í fantaformi. Valsstúlkur
áttu engin svör við góðum leik Framara sem gáfu aldrei færi á sér og unnu sanngjarnan sigur.
GRÁTIÐ AF GLEÐI Guðríður Guðjóns-
dóttir, aðstoðarþjálfari Fram, grét af
gleði eftir leik en hún var að vinna sinn
fjórtánda bikartitil. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÁTAR Karen Knútsdóttir, Stella Sigurðardóttir og Hildur Þorgeirsdóttir fögnuðu
titlinum innilega. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SIGURDANSINN Einar Jónsson, þjálfari Fram, leiddi sigurdansinn eftir leik og þótti sýna frábær tilþrif á fjölum Laugardalshallarinn-
ar. Einar setti síðan á sig bindi eftir leikinn rétt eins og í fyrra er Fram vann bikarinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Lærisveinar Kenny
Dalglish hjá Liverpool riðu ekki
feitum hestu frá viðureign sinni
gegn botnliði West Ham í gær.
Hamrarnir unnu sannfærandi
og öruggan 3-1 sigur og lyftu sér
um leið úr botnsæti deildarinnar.
Scott Parker var frábær í liði
West Ham en það stóð lengi vel til
að hvíla hann vegna meiðsla.
„Scott er sérstakur maður.
Andinn sem hann sýndi var ein-
stakur. Þrem tímum fyrir leik
vorum við búnir að afskrifa
hann því hann gat varla labbað.
Læknateymið stóð sig frábærlega
við að koma honum í stand,“ sagði
Avram Grant, stjóri West Ham.
- hbg
Áfall fyrir Liverpool:
Tapaði fyrir
botnliðinu
BÚIÐ SPIL Carlton Cole skorar hér
lokamark leiksins. NORDIC PHOTOS/GETTY