Fréttablaðið - 28.02.2011, Side 54

Fréttablaðið - 28.02.2011, Side 54
28. febrúar 2011 MÁNUDAGUR30 Auglýsingasími SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Það er án efa Ástríður sem sýnd var á Stöð 2. Ég bara fæ ekki nóg og get fengið kjána- hroll með henni aftur og aftur. Ég bind einnig miklar vonir við Makalaus og við vinkonurnar erum búnar að plana kokteila og sjónvarpskvöld alla fimmtu- daga í vetur.“ Anna Bergljót Thorarensen, leikkona. Á sama tíma og Sena auglýsir tón- leika með hljómsveitinni Eagles í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní auglýsir Icelandair pakkaferð á Eagles-tónleika í Hamborg tæpum þremur vikum síðar, eða 28. júní, sem kostar á annað hundrað þús- und krónur. „Þetta var tilviljun,“ segir Þor- varður Guðlaugsson, forstöðumað- ur íslenska sölusvæðisins hjá Ice- landair. „Við erum búnir að vera með þessa miða í svolítinn tíma. Þetta fór á netið tveimur dögum áður en tilkynningin um tón- leikana hérna heima kom.“ Hann viðurkennir að hafa feng- ið nett sjokk þegar hann frétti að Eagles væri á leiðinni til Íslands. „Auðvitað kippist maður aðeins við. Maður hefði kannski ekki gert þetta ef þessi tilkynning hefði verið komin á undan. Maður hefði sjálfsagt beðið eitthvað með það.“ Að sögn Þorvarðar hafa nokkr- ir aðilar keypt miða á tónleikana í Hamborg og enginn hætt við þrátt fyrir tónleikana hér heima. Hann útilokar samt ekki að hætt verði við ferðina út. Allt fer það auð- vitað eftir eftirspurninni en um 20-30 miðar eru í boði. Fararstjóri verður Ingi Gunnar Jóhannsson. „Maður er svo vanur því að það komi aldrei neinn hing- að en það er ekkert nema gleði yfir því að sjá þá í Laugar- dalshöll. En það er eitt að sjá þá í Hamborg og annað að sjá þá hér,“ segir Ingi Gunnar, sem hefur séð Eagles fjórum sinn- um. „Þeir eru æðislegir á tónleikum og spila- mennskan er eins fullkomin og mögulegt er. Upplifunin að sjá þá er óviðjafnan- leg.“ - fb Óvissa um Eagles-ferð til Hamborgar TVÖFÖLD GLEÐI Glenn Frey og félagar í Eagles spila bæði í Nýju Laugardalshöllinni og í Hamborg í júní. Ingi Gunnar Jóhannsson segir eitt að sjá þá hér á landi og annað í Hamborg. „Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima,“ segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrir- tækinu Framestore Reykjavík. Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðal- hlutverkum. Mikil tölvugrafík verður í mynd- inni og því varð að forvinna hana mjög mikið. Daði þurfti til að mynda að hanna hreyfingar leik- ara og gera nánast myndina fyrir eiginlegar tökur ásamt því að skipuleggja hvernig ætti að taka upp aðalleikarana þegar eiginleg- ar tökur hæfust. Hann ber Alfonso Cuarón vel söguna en leikstjórinn á að baki myndir á borð við Harry Potter og fangann frá Azkeban og Children of Men með Clive Owen. „Hann er rosalegur karakter og mikill kvikmyndagerðarmaður. Það var virkilega skemmtilegt og forvitnilegt að fá að vinna þessa kvikmynd í svona nánu samneyti við innsta hringinn.“ Daði flutti heim til Íslands fyrir fjórum árum eftir að hafa búið í London og New York frá því fyrir aldamót. Hann var á mála hjá tölvubrellufyrirtækinu Fram- estore þegar hann og eiginkona hans tóku þá ákvörðun að snúa aftur til föðurlandsins. Framestore vildi hins vegar síður en svo sjá á eftir sínum manni og fékk hann til að opna með sér útibú í gamla Landsímahúsinu við Austurvöll. Þar starfa nú fimmtán Íslendingar við gerð tölvubrellna og tæknilega eftirvinnslu og úrvinnslu kvik- mynda og auglýsinga. Og þetta er allt lítið mál á stafrænni öld. „Við erum með mjög öflugar tölv- ur og öfluga nettengingu við London og New York þaðan sem við fáum stærsta part- inn af okkar vinnu.“ En það eru ekki bara tæknibrellu-skrýmsli sem rata inn á borð til Daða og Framestore. Því hann er einnig að vinna við kvik- mynd Baltasars Kormáks, Contraband. „Í nútíma kvik- myndum er eiginlega allt lagað, litir og leikkonur. Í Titanic til að mynda voru 800 brelluskot, í Mamma Mia voru þau 2000. Contra- band er þokkalega stórt verkefni en það fellur ein- mitt undir þann hatt að ef áhorfendur taka ekki eftir vinnu okkar þá höfum við staðið okkur í stykkinu.“ freyrgigja@frettabladid.is DAÐI EINARSSON: LAGAR BÆÐI LITI OG LEIKARA Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock Hermann Hermannsson klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Knicks Poetry Slam. Verðlaunin eru systurverðlaun hinna þekktu Emmy-verðlauna og hafa verið veitt árlega frá árinu 1955. Hermann flutti heim til Íslands í fyrravor eftir þriggja ára dvöl í Bandaríkjunum. Á þeim tíma starfaði hann hjá þarlendu fram- leiðslufyrirtæki sem framleiddi meðal annars sjónvarpsþætt- ina Knicks Poetry Slam, en þeir hlutu alls sex tilnefningar. Þætt- irnir fjalla um samkeppni í ljóða- slammi. „Þessi sena er mjög stór og öflug í New York og keppnin hefur verið haldin árlega í mörg ár. Keppendurnir eru allir á aldr- inum 13 til 19 ára og eru sigtaðir út þar til einn stendur uppi sem sigurvegari,“ útskýrir Hermann en þetta er í annað sinn sem hann er tilnefndur til verðlaunanna. „Ég fékk styttu fyrir fyrsta verk- efnið sem ég tók að mér eftir að ég flutti til New York á sínum tíma.“ Mikil vinna liggur að baki þátt- anna og segist Hermann hafa unnið nánast daglega í þrjá mán- uði við gerð þeirra. „Það var lítill peningur til og þess vegna þurft- um við að leggja mikla vinnu í gerð þáttanna. Ég vann nánast daglega allan þann tíma og mér finnst eins og þessar tilnefningar réttlæti það svolítið,“ segir hann og hlær. Aðspurður segir hann tilnefn- ingarnar hafa mikla þýðingu enda geti þær greitt leið hans aftur inn á vinnumarkaðinn í Bandaríkjun- um. „Ég er svolítið að skima aftur út og langar að geta verið í þeirri aðstöðu að hoppa fram og tilbaka á milli Íslands og Bandaríkjanna. Þessi tilnefning mun vonandi greiða götu manns í þeim efnum.“ Hermann vinnur nú að sjón- varpsþáttunum Makalaus og segist hafa fengið leyfi frá sam- starfsfélögum sínum til að vera viðstaddur verðlaunaafhend- inguna í byrjun apríl. „Ég er farinn að hlakka mikið til. Mest hlakka ég til að hitta alla gömlu vinnufélagana aftur,“ segir Her- mann að lokum. - sm Tilnefndur til Emmy-verðlauna TILNEFNDUR Hermann Hermanns- son klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir bandaríska sjónvarpsþætti sem fjalla um ljóðasamkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MIKILL KVIKMYNDA- GERÐARMAÐUR Daði Einarsson (fyrir ofan) vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity. Daði segir leik- stjórann vera mikinn kvikmyndagerðarmann en Daði vann meðal annars við að hanna hreyfingar George Clooney. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Má bjóða ykkur meiri Vísi? ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM HEIMAVELLI Meiri Vísir. Tónlistarkonan Ólöf Arnalds greinir frá þremur áhrifavöldum sínum í hönnunar- tímaritinu Livingetc sem er það stærsta sinnar tegundar í Bretlandi. Fyrst nefnir hún safn- plötu með vegatónlist frá Víetnam sem var gefin út árið 2000 og næst nefnir hún tónlistarmanninn Skúla Sverrisson sem hún hefur unnið töluvert með í gegnum árin. Loks minnist hún á listabókina Proust Was A Neuroscientist eftir Jonah Lehrer og segir hana í miklu uppáhaldi hjá sér. Breska tónlistarblaðið Q fjallar um nýjustu plötu íslensku hljóm- sveitarinnar Amiinu í apríltölublaði sínu. Platan, Puzzle, sem kom út á síðasta ári, fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum og nokkuð jákvæða umsögn. Segir blaðið að þrátt fyrir að María Huld Markan og félagar hafi bætt tveimur karlkynsmeðlimum við bandið sé útkoman samt enn það sem búast megi við af strengjasveit Sigur Rósar. Fleiri Íslendingar koma við sögu í gagnrýni Q þennan mánuðinn. Fyrsta plata The Vaccines, sem Árni Hjörvar Árnason spilar á bassa í, fær fjórar stjörnur og glimrandi meðmæli. Segir blaðið að sveitin standi fylli- lega undir öllu „hæpinu“ sem byggt hefur verið upp að undanförnu. - fb, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.