19. júní


19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 24

19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 24
andi aðferðir við niðursuðu og niðursuðuglös og dósir, vinnutæki til heimilisstarfa, geymsluefni, þvottaefni og slitþol ýmiss konar vefnaðarvöru. Heimilisráð ríkisins birtir niðurstöður sínar í smáritum, með útvarpserindum, í sérstakri upp- lýsingarmiðstöð og á skrifsofu sinni. Gefnir liafa verið út smá bæklingar eins og t. d. „Góður matur og gott verð“, Heimaþveginn þvottur", „Barnamatur“, Að frysta og þíða kjöt“, Niður- suða“ o. s. frv. Árið 1949 liófst í danska útvarpinu dagleg hús- mæðrafræðsla á vegum Heimilisráðsins. Þáttur- inn stendur yfir tvær mínútur í einu, kl. 6,15 og 8 á morgnana. Kostað er kapps um að hafa þessa stuttu þætti gagnlega og tilbreytingaríka. Hin 1 jölmörgu bréf, sem berast frá hlustendum í sam- handi við þennan dagskrárlið, sýnir, að hann vek- ur athygli, þó mörgum heimilisfeðrum virðist vera meinilla við hann. Ennfremur sér Heimilis- ráðið oft um útvarpserindi og þætti síðari hluta dags. Síðastliðið ár voru um 80 slíkir útvarpstím- ar. Árið 1946 stofnaði Heimilisráðið í Lyrskov- gade 12 upplýsingarstöð fyrir húsmæður. Árið 1949—1950 svaraði stöðin 28.781 fyrirspurn. Hús- mæður úr öllum stéttum leita upplýsinga, en þó einkum þær, sem eru efnaminni. Tvo daga vik- unnar eru fundir og útbreiðslustarfsemi. í skrif- stofu ráðsins eru látnar í té margvíslegar ráðlegg- ingar. Þar eru gerðar margvíslegar töflur og skýrslur, sem eru lánaðar til notkunar við fyrir- lestra og sýningar, sem Heimilisráðið tekur þátt í. Innan Heimilisráðs ríkisins eru meir en 20 nefndir sérfróðra manna, ýmsar tilnefndar af rík- inu. Það vinnur með byggingarmálaráðuneytinu að því að koma upp sameiginlegum stofnunum í sambandi við íbúðarhúsahverfi. Stofnunin hefur margvísleg sambönd við önnur lönd. Margir munu eflaust furða sig á því, hvers vegna danskar konur, sem áttu svo athafnasamt og vakandi Heimilisráð, er ef til vill verður einn góðan veðurdag að sérstöku ráðuneyti, töldu sig þurfa, er í hart sló, að stofna Neytendaráð og starfrækja það ennþá. í sjálfu sér eru fulltrúar sömu samtaka í Neytendaráðinu og Heimilis-ráði ríkisins, en mismunurinn er þeim ljós, er vinna í báðum þessum samtökum. Heimilisráðið vinnur að viðfangsefnum sínum hægt og af nákvæmni, sem er eðlilegt fyrir ríkis- stofnun, en Neytendaráðið er ævinlega viðbúið SXGURBORG EYJÓLFSDÓTTIR: Skjólið mitt eina Heiminum fórnaði’ eg œskunnar Ijúfustu Ijósum og lcit fram á veginn svo breiðan og angandi af rósum. Með dreymandi hjarta eg dansaði og naut þess að lifa, á döggvotar blómkrónur hamingju mina að skrifa. Dagarnir liðu og draumarnir brátt urðu frerri, dimmbláu fjöllin þau gránuðu, er kom eg þeim nrrrri. lilómin á veginum blilinuðu og urðu að steinum, þá brosti eg til fjöldans og harm minn eg sagði’ ckki neinum. Krerleikans Drottinn hann sá, að minn bát hafði eg brotið i briminu þunga, við klettana áföllin hlotið. Hann rétti mér hönd sina heilaga, máttuga, hreina. Við hjarlað hans blíða er skjólið mitt trúfasta, eina, að grípa inn í vandamál dagsins. Síðan snýr það sér til ríkisstjórnar og þings og finnur óhikað, ef þörf þykir, að ráðstöfunum þessara aðila. Þeir eru því ekki vandabundnir. Neytendaráð húsmæðra knýr danskar húsmæður til að vera á verði í þjóð- félagsmálum og vekur þar með þá virðingu fyrir húsmóðurstarfinu, sem því ber. 10 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.