19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 32
nema að því er varðar tekjuöflun giftra kvenna,
að kostnaður við að afla teknanna eigi að vera
frádráttarbær, og sýnist það því vera alrnenn rétt-
lætiskrafa svo langt sem hún nær, að heimilin
fengju frádrátt fyrir bein útgjöld vegna vinnu
konunnar. Hitt skapar beinlínis ranglæti milli
vinnandi kvenna, ef þær konur, sem vinna inn
beinar peningatekjur eiga að njóta skattfríðinda
umfram allar liinar, og myndi hafa þau áhrif,
að skattalækkun þeirra heimila, sem þessara fríð-
inda njóta, myndi þyngja hlut hinna, þar sem
konan vinnur í heimilinu eða við hlið manns
síns.
Eina lausnin, sem möguleg virðist í þessu máli
til frambúðar, er sú, að öllum tekjum heimilisins
sé skipt til helminga milli hjónanna og hjónin
skattlögð eftir því. Og nái það til allra lijóna,
hvernig sem verkaskiptingu þeirra við sameigin-
legt bú þeirra er háttað. Þetta myndi skapa rétt-
ari hlutföll en nú eru milli skattgreiðslna hjóna
og einstaklinga og eðlilega hafa í för með sér til-
færslu á skattaálögum milli Jaessara aðila.
Jafnframt virðist eðlilegt, að veittur sé frá-
dráttur til þeirra heimila, sem þurfa að kaupa
hjálp vegna vinnu konunnar utan heimilis. Er
})að eðlileg afleiðing þess, að konan sem vinnur
störf sín í heimilinu fær vinnu sína að mestu leyti
skattfrjálsa, en hin ekki.
í þessu sambandi má á það benda, að núgild-
andi skattalög taka svo lítið tillit til vinnu kon-
unnar á heimilinu, að jafnvel þar sem konan hef-
ur verið á heilsuhæli eða sjúkrahúsi mánuðum
saman, er ekki við álagningu skattsins tekið
minnsta tillit til }:>ess, hve heimilið er miklu verr
sett en það heimili, Jjar sem konan getur unnið
heimilinu með fullri starfsorku. Er nauðsynlegt
að ákveðið sé í hinum nýju skattalögum, að
heimili sé veittur frádráttur, j^egar kaupa þarf
hjálp vegna veikinda húsmóðurinnar.
Ef ganga skal út frá því, að beinu skattarnir
gefi hér eftir svipaðar tekjur og hingað til — þ. e.,
að tekjuöflunin skidi ekki flutt frá beinu skött-
unum inn á óbeina skatta — þá mun hljóta að
fylgja skipulagsbreytingu þeirri, sem að framan
greinir mikil breyting á skattstiganum, þar sem
vegna hins skipta framtals, að skattgreiðendur
mundu verða miklu fleiri, og langtum færri en
áður kæmu í háar tekjur. Má því hugsa sér, að
mestur hluti skattteknanna yrði með þessu fyrir-
komulagi tekinn af upphæðum, sem fram að
j}essu hafa verið taldar nálægt meðaltekjum.
Breyting sú, sem óhjákvæmilega verður að gera á
persónufrádrættinum gerir það að verkum, að
við skattlagninguna yrði byrjað á hærri upphæð-
um en nú á sér stað og hlýtur allt þetta að leiða
til Jaess, að skattstiginn yrði allt öðruvísi með
þeim breytingum, sem hér eru ræddar, en hann
er nú.
Það er ekki auðvelt að gera sér grein fyrir Joví,
hverjar afleiðingar þær breytingar, sem að fram-
an getur, myndu hafa fyrir heimilin, en líklegt
má telja, að þótt einhver breyting kynni að verða
til lækkunar á skattabyrðunum, að nokkru leyti
vegna áhrifa frá hækkuðum persónufrádrætti, þá
kunni Jjetta í öðrum tilfellum að hafa í för með
sér hækkanir á samanlögðum skatti hjónanna, en
Jjað yrði þó ekki nema þar, sem tekjur heimilis-
ins eru það miklar, að eðlilegt mætti telja að
skattgreiðslan yrði hærri samanborið við aðra.
En þetta að skipta öllum tekjum hjónanna með
tilheyrandi breytingum á skattstiganum myndi
þó skapa aukið réttlæti við það sem nú er og í
einstökum tilfellum bæta úr miklu ranglæti, sem
nú á sér stað. Ef gerður væri í þessu efni algerður
jöfnuður á milli kvenna á hvern hátt, sem þær
vinna heimili sínu, breytist líka viðhorf þeirra
kvenna, sem nú telja það Jdví nær byrði fyrir
heimilið, að þær vinni störf utan J^ess og sú þving-
un, sem núgildandi ákvæði skattalaganna leggja
á ýmsar konur varðandi val á starfi, myndi
hverfa, og skattalögin hætta að vera fjandsamleg
heimili og hjónabandi eins og margir telja jDau
nú vera.
Á Jiað vil ég benda, að víða hjá öðrum J}jóðum
eru í skattalögum ákvæði um }:>að, að veita ungu
fólki, sem er að stofna heimili, sérstaka skatta-
ívilnun á því ári og myndi slíkt ákvæði einmitt
eiga heima í nýjum skattalögum hjá okkur til
þess að létta fólki byrjunarkostnaðinn við það að
eignast heimili.
Atriðið um skattamál hjóna verður ekki ein-
angrað og skilið frá öðrum þáttum skattamál-
anna. Til þess hefur það of mikil áhrif á allt kerf-
ið, og hefur það m. a. verið tilgangur minn með
þessum orðum, að reyna að sýna fram á það. En
gott er til þess að vita, að nefnd þeirri, sem nú
starfar að endurskoðun skattalaganna, var sér-
staklega falið að hafa Jiað í liuga við endurskoð-
unina, að hjónum verði ekki íþyngt með opin-
19. JÚNl
18