19. júní


19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 43

19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 43
umkomulaust og vegavillt sem það virðist, seril er æðsta vera jarðarinnar? Svörin við þessum spurningum fara sennilega fyrst og fremst eftir lífsskoðun okkar. En um eitt meginatriði hljóta flestir að verða sammála. Efnahagsleg velgengni hverrar þjóðar hlýtur nokkuð að fara eftir skyn- samlegri hagnýtingu vinnuaflsins í landinu. Versta sóun verðmætanna eru iðjulausu hend- urnar og hugir, sem ekki finna verkefni við sitt hæfi. III Aldrei verður ofsögum sagt af margþættri bölv- un atvinnuleysisins, og hörmung má það teljast að sá draugur liefur nú skotið upp kollinum víða um land. Beina fjárhagslega tjónið fyrir hvern einstakling, heimili lians og þjóðfélagið blasir við allra' augum en tjónið hið innra, skaðinn á sál- unni, er ekki jafn augljós fyrst í stað. En fullyrða Jná að fyrir utan drykkjuskap er ekkert sem feygir og tærir máttarviði mannssálarinnar eins og ein- niitt atvinnuleysið. Deila má um livar atvinnuleysið komi harðast niður. En verða ekki konurnar þar, eins og víða, að bera þyngstu byrðina? Ekki aðeins beinlínis eins og t. d. hér í Reykjavík þar sem slíkt hrun liefur orðið í iðnaðinum, að fróðir menn telja að 600—800 stúlkur hafi misst atvinnuna af þeim sökum. En engar tölur eru til um þær mæður og eiginkonur, sem á þessum vetri hafa barizt við atvinnuleysið og illbærilega dýrtíð. Ekki væri það að ástæðulausu þó að konur ^ugsuðu sér að bregða sínu venjulega tómlæti um atvinnumálin. En þar eins og annars staðar geta þsr iiaft djúptæk áhrif. Ekki einungis þau, sem málafylgja og atkvæði hafa, heldur einnig óbeinu ahrifin af starfi konunnar sem innkaupastjóra heimilanna. Vafasamt er, hvort nokkur ræður eins miklu um framtíð iðnaðar og iðju í landinu enis og konan, sem í dag velur og kaupir nauð- synjar heimilanna. Vel ætti hver kona að leggja Oiður fyrir sér, hvað hún telur hagkvæmast og otiða jrá við fleira en líðandi stund. Þættist hver einstök kona sjá þar lítinn árangur, kænru sam- tökin til sögunnar, flestar konur landsins munu vera í einhverju félagi þar sem hægt er að reifa ahugamálin og afla þeim fylgis og síðar beita sameiginlegu átaki. karsælast verður hvert það þjóðfélag, sem boð- getur hverri vinnufærri hönn starf að haétti frjálsra manna, án allra þrælataka. !9. JÚNÍ ÍV En svo mikils virði sem það er, að enginrt vinnufús- og fær þegn þurfi að ganga iðjulaus þá er þó ekki allt fengið með því. Eitt vandamál mannlegs samfélags er, að starfshæfni, menntun og hæfileikar hvers og eins nýtist sem bezt, ekki aðeins fyrir hann sjálfan, heldur korni þjóðinni allri að því gagni sem verða má. Nú getur hver og einn skyggnzt um sína sveit. Telur ekki þjóð- félagið sig hafa efni á að bera fyrir borð, eða vísa til sætis á óæðri bekk miklu af glæsilegum gáfum, þekkingu og menntun, að því er séð verður af þeirri einu ástæðu, að konur eiga í hlut en ekki karlar? I daolega lífinu og baráttu þess er hið margumtalaða jafnrétti karls og konu ekki fyrir- ferðarmikið. Við sjáum það bezt, þegar við athug- um störfin, sem konum er trúað fyrir. Við skul- um byrja efst í stiganum, athuga landsstjórn vora og löggjafarþing, æðstu trúnaðarmenn þjóðarinn- ar, helztu embættismenn, forstjóra ríkisstofnana eða stórra fyrirtækja, alla þá sem segja má að ráði einhverju um liag Jrjóðarinnar. í öllum þessum hóp finnið þið ekki eins margar konur og fingur annarrar handar, en eftir því sem neðar dregur í stiganum, breytast hlutföllin, konum fjölgar Jrar sem launin verða lægri og hækkunarmöguleikar innan hverrar starfsgreinar minni. Karlmennirn- ir verða að sitja fyir stöðum, þar sem mögulegt er að vinna sig upp, sem svo er kallað. Dæmin um Jretta eru óteljandi, sum átakanleg eins og rang- sleitnin er æfinlega, önnur næstum hlægileg eins og heimskan er stundum. En í stað þess að rekja hér ýms þau dæmi og skamma karlmennina að sama skapi, vil ég lieldur ljúka þessu greinar- korni með því að snúa rnáli mínu heim til okkar kvennanna. Þetta er okkar eigin sök. Ef við fynd- um til niðurlægingarinnar af því að vera alltaf 2. flokks þjóð innan þjóðfélagsins, þá breyttum við því. Fyrst og fremst með því að lœra, læra full- komlega, jafnvel hin einföldustu og að því er virðist ómerkilegustu verk, til þeirrar hlítar, að betur verði ekki gert. Konurnar þurfa að afla sér hinnar beztu bóklegrar og verklegrar menntunar sem völ er á og vera svo ekki hræddar eða hlé- drægar um of við að beita henni. Og svo Jrað sem alltaf er sterkast í allri frelsisbaráttu: Sætta sig aldrei við ranglætið, verða umfrarn allt aldrei vikadrengur Jress. Vekja athygli á misréttinum, mótmæla og aftur mótmæla, ekki með glamri, lieldur rökum skynsemiunar og sannleikans. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.