19. júní - 19.06.1952, Blaðsíða 54
Vorið kemur, vittu til
vaknar f jör á ný,
allar jurtir jarðar
jafnan fagna’ er hlý,
vekur vorgolan lif
vökvar úðaregn,
lifsmagn alls er lifir glœðist
lyflist doða gegn.
Sólin lieekkar himni á
heldur sina braut.
Þroskast líf og litskrúð
litkast jarðar skaut.
Losna klakabönd köld,
hvert eitt visið strá,
endurlífgað lyftir kolli
lifna blómin smá.
Vitin fyllir bliður blœr
og blóma-angan scet.
Blóðbergið og birkið
■og berjalyngin mœt,
fylla unaði og ilm
yndisfagurt land.
Sólargeislar sindra og glitra
sjatnar vetrargrand.
SIGURLAUG ÁRNADÓTTIR:
VORLJÓÐ
Ort þegar vorið ætlaði aldrei að koma,
árið 1949.
Skepnur allar skynja brált
að skammdegið er brott,
andrúmsloftið ilmar,
allt ber Ijósan vott,
um vorsins vekjandi mátt,
vermir sólin heit.
Skuggar flýja, skýlaus birtan,
skin i hverjum reit.
Fuglar ótal flykkjast að
fagran hefja söng,
ástar raddir óma
einlœgt dœgrin löng.
Byrja búskap sinn fljótt
bera’ i nefi strá,
hreiðrin fóðra fínum mosa
fallegt er að sjá.
Fyrr en varir sumarsól
signir dal og strönd,
lif og fegurð flytur
og fjölmörg störf i hönd.
— Ungar hreiðrunum i
ccpa, — kynslóð ný
á flug sér lyftir, vcengir vaxa
veröld brosir lilý.
UTANFARIR
K.R.F.Í. hefur verið boðin þátttaka í tveimur
fundum erlendis á þessu sumri.
Fyrri fundurinn var haldinn í Osló þ. 19.—21.
maí af Nordisk Kvinders Samorganisasjon, sem
eru samtök kvennréttindafélaga á Norðurlönd-
um. Á þessum fundi voru aðallega rædd mál er
varða fjölskylduna. Á fundinn fóru formaður og
varaformaður K.R.F.Í. og 11 konur aðrar úr
K.R.F.Í. og sambandfélögum þess.
Síðari fundurinn verður í Neapel í september,
og þar verður rætt um „frið og uppeldi". Hann
er haldinn á vegum Alþjóðasambandsins. K.R.-
F.í. má senda sex fulltrúa á þann fund, en enn er
óvíst um þátttöku liéðan. Formaður félagsins gef-
ur allar upplýsingar, þeim er þess kynnu að óska,
og væri æskilegt að hægt yrði að senda fulltrúa
héðan á fundinn. Seinasti alþjóðafundur sam-
bandsins var haldinn í Amsterdam 1949 og fóru
tveir fulltrúar frá K.R.F.Í. á þann fund.
( —
19. JÚNÍ
Útgefandi: Kveméttindafélag íslands.
Utgáfustjórn: Soffía Ingvarsdóttir, Sigríður J. Magnús-
son, Bjarnveig Bjarnadóttir, Friðrikka Sveinsdóttir,
Guðlaug Narfadóttir, Ragnheiður Möller, Snjólaug
Bruun, Svafa Þórleifsdóttir, Þórunn Elfa Magnúsdóttir.
Ritstjóri: Svafa Þórleifsdóttir.
Auglýsingaritstjórar: Bjarnveig Bjarnadóttir,
Snjólaug Bruun.
Afgreiðsla blaðsins er í skrifstofu Kvenréttindafélags
íslands, Skálholtsstíg 7, Reykjavík, sími 8I15G.
PRENTSMIÐJAN HÓLAR H-F
_______________________________________________ -y
Smáa meistaraverkið, heimilið, er verk konunnar með aðstoð
karlmannsins.
Stóra meistaraverkið, fyrirmyndar þjóðfélag, mun karlinann-
inum takast að koma á fót, þegar hann hefur í fullri alvöru
gert konuna að starfsfélaga sínum í þjóðmálunum. —
Selma Lagerlöf.
19. JÚNÍ
40