19. júní


19. júní - 19.06.1952, Page 30

19. júní - 19.06.1952, Page 30
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR: Endurskoðun skattalaganna Á síðasta þingi var borin fram þingsályktunar- tillaga, þar sem skorað var á ríkisstjórnina að beita sér fyrir heildarendurskoðun laga um skatta og útsvör. Við endurskoðun þessa skyldi stefna að því, að lögfest verði heilsteypt kerfi skattamála, sem byggist á eðlilegri og samræmdri tekju- og verkaskiptingu ríkisins annars vegar og bæjar- og sveitarfélaga hins vegar, og jafnframt við það miðað að ofþyngja ekki einstaklingum, félögum og atvinnurekstri í opinberum gjöldum. í meðferð þingsins tók tillaga þessi m. a. þeim breytingum, að bætt var inn í upptalningu þeirra aðila, sem ekki skyldi ofþyngja með opinberum gjöldum, orðinu ,,hjónum“, þannig að málsgrein- in leit þannig út, er tillagan var samþykkt: „Sé jafnframt við það miðað að ofþyngja ekki ein- staklingum, hjónum, félögum og atvinnurekstri í opinberum gjöldum", og er það þá ákveðið, að við endurskoðun skattalaganna beri að taka sér- stakt tillit til aðstöðu giftra kvenna í þjóðfélag- inu, en það er mál, sem réttindasamtök kvenna hafa á undanförnum árum látið sig miklu skipta. Ákveðið er að rannsókn og undirbúningi máls- ins sé hraðað svo, að ríkisstjórnin leggi frumvarp til laga um málið fyrir næsta reglulegt Alþingi. Ríkisstjórnin hefur svo skipað nefnd til þess að vinna að undirbúningi skattalaganna á fvrr- greindum grundvelli og er sú nefnd nú þegar bú- in að sitja alllengi á rökstólum, en þó mun starfi hennar ennþá ekki vera langt komið. Skatta- og útsvarsmál eru einhverjir allra um- fangsmestu málaflokkar þjóðfélagsins, ekki sízt hjá þjóð eins og okkur, þar sem opinber rekstur og afskipti ríkis- og sveitarfélaga af málefnum einstaklinganna eykst ár frá ári, m. a. vegna óska borgaranna um slík afskipti, og framkvæmdir ríkis og bæja verða að greiðast með fé, sem jafnað er niður á borgarana með ýmsu móti, en þó eink- um með sköttum og tollum. Það snertir því hvern einasta borgara þjóðfélagsins, hvernig þessi rhál Í6 eru leyst, bæði í heildinni og í einstökum atrið- um, og er erfitt að taka ákveðna þætti skattamála út úr heildinni, og ræða þá sérstaklega, vegna þess að livert einasta atriði skattamálanna hefur áhrif . langt út fyrir það, sem kalla mætti takmörk þess sjálfs. Og þótt konur hafi fyrst og fremst tekið upp baráttuna fyrir réttlátri sköttun giftra kvenna — hjóna — þá er það mál, sem snertir alla skattgreiðendur, eins og líka að aðrir þættir skattamálanna snerta jafnt giftar konur og aðra skattþegna. Ríki og sveitarfélög þurfa árlega að innheimta frá borgurunum upphæðir, sem að vísu eru ekki fast ákveðnar fyrirfram, en sem þó eru, hvað rík- ið snertir, miðaðar við fyrirfram gerða áætlun, — fjárlögin — og hvað bæina snertir miðaðar við þörf hvers árs, eftir að áætlun um fjárþörfina liggur fyrir. Það er m. ö. o. við álagningu opin- berra gjalda miðað við þarfir ríkis og bæja, en ekki við getu eða vilja borgaranna til þess að greiða þessi gjöld. Að vísu eru tekjustofnar ríkis og bæja með ýmsu móti, en í aðalatriðum er það þó þannig, að með óbreyttum útgjöldum fiá ári til árs má ganga út frá því, að lækkun á einum tekjustofni þýði hækkun á öðrum, og að hækkað- ur reksturskostnaður hins opinbera þýðir liækk- anir á opinberum gjöldum, einhverjum eða öll- um, og ef til vill nýjar skattaálögur. Það er að sjálfsögðu mjög til athugunar fyrir þegnana, á hvern hátt heppilegast sé að tekjurnar séu fengnar, hvort t. d. að heppilegra sé að þær séu teknar með óbeinum sköttum, þ. e. sem neyzluskattur á hvern mann eða með beinum sköttum, sem lagðir eru á eftir fjárhag. Óbeinu skattarnir eru m. a. tollarnir, sem hljóta aðallega að verða nefskattur, þar sem þeir eru miðaðir við neyzlu manna, og sem koma að miklu leyti jafnt niður á einstaklingana og þá tiltölulega þyngra á framfærendur, sem hafa þung heimili og mörg börn, heldur en liina. Beinu skattarnir eru mið- 19. JÚNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.